Vonsvikin að upphæðin hafi ekki orðið hærri

Formaður Öryrkja­banda­lags­ins segir að þau hjá banda­lag­inu séu auð­vitað ánægð með að öryrkjar fái sér­staka ein­greiðslu vegna COVID-19 en að þau séu von­svikin að upp­hæðin hafi ekki orðið hærri. Margir séu í vanda.

Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalagsins.
Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir, for­maður Öryrkja­banda­lags­ins. Mynd: Bára Huld Beck

„Við erum auð­vitað ánægð með að hóp­ur­inn skuli fá eitt­hvað en von­svikin að upp­hæðin varð ekki meiri.“ Þetta segir Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir, for­maður Öryrkja­banda­lags­ins (ÖBÍ), í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans. Örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyr­is­þegar, sem eiga rétt á orlofs­upp­bót á árinu 2020, fá 20 þús­und króna ein­greiðslu til við­bótar vegna þeirra áhrifa sem COVID-19 far­ald­ur­inn hefur haft.

Í svari Þuríðar Hörpu kemur fram að ÖBÍ hafi gert athuga­semd við fjár­auka­lög rík­is­stjórn­ar­innar – þar sem ekki hafi verið minnst á örorku­líf­eyr­is­þega. „Við sendum inn umsögn þar sem gerðar voru til­lögur til úrbóta fyrir hóp­inn. Við vorum í fram­haldi beðin um að koma með til­lögur sem fljótt væri hægt að afgreiða og sem ekki krefð­ust þess að breyta lögum.“

ÖBÍ sendi inn sex aðal­til­lögur. Samkvæmt Þuríði Hörpu var þar á meðal þessi ein­greiðsla – orlofs­upp­bót til öryrkja að upp­hæð 100 þús­und krónur. Þá lögðu þau til að ein­greiðslan yrði að vera skatta- og skerð­inga­laus þar sem ann­ars hefði hún áhrif á sér­stakan hús­næð­is­stuðn­ing, húsa­leigu­bætur og jafn­vel örorku­líf­eyri.

Fólk hefur minni möguleika á að nálgast mat og lyf

„Við bentum á að nú þegar veikt og fatlað fólk hefur ein­angrað sig vegna und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, kemur í ljós að fólk hefur minni mögu­leika á að nálg­ast mat og lyf.

Hjálp­ar­stofn­anir eru eins og önnur þjón­ustu­úr­ræði að mestu lok­aðar, en flestar reyna að aðstoða fólk í gegnum síma og net­fang. Það kemur mjög fram núna hvað margt fólk reiðir sig alfarið á að fá mat­ar­að­stoð,“ segir í svari Þuríðar Hörpu.

Kostnaður ríkissjóðs vegna aðgerðarinnar áætlaður um 400 milljónir

Alþingi sam­þykkti í gær til­lögu um að örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyr­is­þegar, sem eiga rétt á orlofs­upp­bót á árinu 2020, fengju 20.000 króna ein­greiðslu til við­bótar vegna þeirra áhifa sem COVID-19 far­ald­ur­inn hefur haft. Jafn­framt var gerð breyt­ing á lögum um almanna­trygg­ingar til að þessi greiðsla gæti farið fram. Greiðslan kemur til fram­kvæmda þann 1. júní næst­kom­andi.

Greiðslan kemur til við­bótar við þá orlofs­upp­bót sem örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyr­is­þegar eiga rétt á í ár og telst ekki til tekna þeirra. Hún mun þar af leið­andi ekki skerða aðrar greiðslur til hóps­ins, að því er fram kemur í til­kynn­ingu á vegum félags­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Miðað er við að um það bil 20.000 örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyr­is­þegar upp­fylli skil­yrðið um rétt á orlofs­upp­bót á árinu 2020 og er kostn­aður rík­is­sjóðs vegna aðgerð­ar­innar áætl­aður um 400 millj­ónir króna.

Ásmundur Einar Daðason, félags-og barna­mála­ráð­herra, sagði við til­efnið að áhrif­anna af COVID-19 far­aldr­inum gætti víða í okkar sam­fé­lagi og „við höfum frá upp­hafi lagt áherslu á það að styðja við við­kvæma hópa á þessum tímum. Á nokkrum vikum hefur dag­legt líf okkar allra raskast mikið og aukið álag á öllum sviðum sam­fé­lags­ins, ekki síst þá hópa sem minna mega sín. Það er því einkar ánægju­legt að þessi til­laga hafi verið sam­þykkt á Alþingi. Saman förum við í gegnum skafl­inn.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár