Borgin frestar, lækkar eða fellir niður gjöld á heimili og flýtir lækkun fasteignaskatts

Borg­ar­ráð sam­þykkti ein­róma alls 13 aðgerðir til að bregð­ast við þeirra stöðu sem upp er komin vegna efna­hags­legra áhrifa útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum.

Vigdís Hauksdóttir, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Sanna Magdalena Mörtudóttur tóku öll þátt í blaðamannafundinum í dag, ásamt öðrum oddvitum í borgarstjórn.
Vigdís Hauks­dóttir, Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri og Sanna Magda­lena Mörtu­dóttur tóku öll þátt í blaða­manna­fund­inum í dag, ásamt öðrum odd­vitum í borg­ar­stjórn. Mynd: Skjáskot

Reykja­vík­ur­borg ætlar að fresta, lækka eða fella niður ýmis gjöld á fólk og fyr­ir­tæki til að hjálpa þeim að takast á við efna­hags­legar afleið­ingar kór­ónu­far­ald­urs­ins. Borg­ar­ráð sam­þykkti aðgerð­irnar, sem eru 13 tals­ins, ein­róma á fundi sínum fyrstu aðgerðir til að bregð­ast við stöð­una og full­trúar allra afla sem eiga sæti í borg­ar­stjórn tóku þátt í blaða­manna­fundi í dag þar sem aðgerð­irnar voru kynntar.

Í til­kynn­ingu segir að aðgerðir borg­ar­innar nái „til frest­unar gjalda og auk­ins svig­rúms fyrir heim­ili og fyr­ir­tæki og lækk­unar fast­eigna­gjalda. Fram­kvæmdum borg­ar­innar og fyr­ir­tækja hennar, Orku­veitu Reykja­víkur, Faxa­flóa­hafna og Félags­bú­staða, verður flýtt, farið verður í upp­bygg­ingu hús­næðis og mark­aðsátaks í ferða­þjón­ustu með áherslu á Reykja­vík sem áfanga­stað. Sér­stak­lega er litið til skap­andi greina, nýsköp­unar, þekk­ing­ar­greina, menn­ingar, íþrótta, lista og við­burða­halds. Áhersla verður lögð á vinnu­mark­aðs­að­gerðir, þá einkum til þeirra hópa sem mögu­lega fara illa út úr ástand­inu, ein­yrkja og fólks af erlendum upp­runa.“

[adspot]Á meðal helstu aðgerða eru að gjöld vegna leik­skóla, grunn­skóla og frí­stundar verða lækkuð, felld niður eða leið­rétt í sam­ræmi við skerð­ingu þjón­ustu vegna veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum og fyr­ir­tæki munu geta fengið frest á greiðslu allt að þriggja gjald­daga fast­eigna­skatta á þessu ári, til að bregð­ast við höggi á tekju­flæði þessa dag­ana.

Að auki hefur verið ákveðið að lækkun fast­eigna­skatta á atvinnu­hús­næði verði flýtt og lækki úr 1,65 í 1,60 pró­sent um næstu ára­mót. Fast­eigna­eig­endur eru auk þess hvattir til að láta minni fyr­ir­tæki sem leigja hjá þeim einnig að njóta þess­ara aðgerða.

Hægt er að sjá aðgerðirnar 13 hér að neðan:

1. Frestun gjalda, niðurfelling og lækkun

Gjöld heim­ila og fjöl­skyldna verða felld niður eða lækkuð vegna skertrar þjón­ustu, sótt­kvíar og ann­arra við­bragða vegna Covid-19. Fyr­ir­tækjum verður gef­inn kostur á að fresta allt að þremur gjald­dögum fast­eigna­skatta vorið 2020 og skoðuð önnur frestun og/eða lækkun þegar um er að ræða tíma­bundið tekju­fall, sbr. lið 1 e.

a. Heimili. Leik­skólar, grunn­skólar og frí­stund. Gjöld verða lækkuð, felld niður eða leið­rétt í sam­ræmi við skerð­ingu þjón­ustu vegna Covid-19, skv. nán­ari reglum. Þá taka árskort t.d. sund­kort og menn­ing­ar­kort mið af skerð­ingum opn­un­ar­tíma og gild­is­tími fram­lengdur sem því nemur.

b. Fyr­ir­tæki. Veittur verði frestur á greiðslu allt að þriggja gjald­daga fast­eigna­skatta atvinnu­hús­næðis vegna árs­ins 2020, skv. lögum og nán­ari reglum. Fast­eigna­eig­endur eru hvattir til að leigj­endur þeirra njóti góðs af þeirri frestun líkt og stór fast­eigna­fé­lög á mark­aði hafa gefið fyr­ir­heit um.

c. Lækkun fast­eigna­skatta. Lækkun fast­eigna­skatta af atvinnu­hús­næði í Reykja­vík­ur­borg verði flýtt og verði 1,60% á árinu 2021.

d. Frestun leigu. Borg­ar­ráð beinir því til fjár­mála- og áhættu­stýr­ing­ar­sviðs að móta reglur um frestun eða afslátt af leigu þriðja aðila í atvinnu­rekstri í hús­næði Reykja­vík­ur­borgar á grund­velli umsókna, vegna tíma­bund­ins tekju­falls í ljósi sér­stakra aðstæðna.

e. Frestun gjalda. Borg­ar­ráð beinir því til fyr­ir­tækja borg­ar­innar að skoða mögu­leika á frestun gjalda og/eða lækkun þegar um er að ræða tíma­bundið tekju­fall, skv. nán­ari reglum.

2. Sveigjanleiki í innheimtu og gjaldfrestum

Fjármála- og áhættu­stýr­ing­ar­sviði verði falið að gera til­lögu að tíma­bundnum breyt­ingum á inn­heimtu­reglum Reykja­vík­ur­borgar sem feli í sér auk­inn sveigj­an­leika varð­andi greiðslu­fresti í ljósi tíma­bund­ins tekju­falls og óvissu, sem nái hvoru tveggja til heim­ila og fyr­ir­tækja. Tillagan á að tryggja að jafn­ræðis og góðrar stjórn­sýslu verði gætt og tekið mið af gild­andi lögum. Mark­miðið er að auka sveigj­an­leika í ljósi núver­andi ástands, inn­heimta verði sann­gjörn og drátt­ar­vextir og kostn­aður í lág­marki um leið og jafn­ræðis og hag­muna borg­ar­innar verði gætt. Regl­urnar verði lagðar fyrir borg­ar­ráð til stað­fest­ingar.

3. Borgarvakt í velferðar- og atvinnumálum

Tölu­legum gögnum og stað­reyndum um þróun aðstæðna hjá ein­stak­lingum, fjöl­skyldum og atvinnu­lífi verður safnað á vett­vangi Reykja­vík­ur­borgar næstu mán­uði og miss­eri til að leggja grunn að frek­ari til­lögu­gerð og aðgerðum sem ýmist verður beint til borg­ar­ráðs, fagráða Reykja­vík­ur­borgar, ríkis eða sam­eig­in­legs vett­vangs sveit­ar­fé­laga eða ann­arra aðila. Í sam­ráði við hags­muna­að­ila verður fylgst með lyk­il­þáttum og áhrifum stöð­unnar á atvinnu­líf og sam­fé­lag, lífs­kjör og hús­næð­is­markað með sér­stakri áherslu á börn og menntun þeirra, barna­fjöl­skyldur, fatlað fólk, eldra fólk, atvinnu­lausa og við­kvæma og útsetta hópa.

4. Ferðaþjónusta og ferðaþjónustutengdar greinar

Stutt verði við eft­ir­spurn eftir heim­sóknum ferða­manna til Reykja­víkur um leið og það er metið tíma­bært.

a. Mark­aðsá­tak stjórn­valda og Íslands­stofu. Reykja­vík­ur­borg verði virkur þátt­tak­andi í útfærslu og fram­kvæmd mark­aðsátaks stjórn­valda í ljósi Covid-19.

b. Mark­aðsá­tak Reykja­víkur. Menn­ingar- og ferða­mála­svið útfæri sér­staka mark­aðs­setn­ingu Reykja­víkur sem við­brögð við hruni í ferða­þjón­ustu fyrir árin 2020-2021. Áætlaður kostn­aður Reykja­vík­ur­borgar verði ætl­aður að lág­marki 150 millj­ónir króna. Tillögur liggi fyrir í maí.

5. Nýsköpun og ný tækni

Fjár­fest­ingum í inn­leið­ingu nýrrar tækni hjá Reykja­vík­ur­borg verði flýtt og opnað fyrir aðkomu frum­kvöðla og nýsköp­un­ar­um­hverf­is­ins að lausn­a­leit á grund­velli nýrrar nýsköp­un­ar­stefnu. Tillögur liggi fyrir í maí nk.

6. Skapandi greinar

Haldið verði áfram að skapa skap­andi greinum betri skil­yrði til vaxtar til lengri tíma með áherslu á að skapa aðstöðu og vinnu­rými, m.a. í tengslum við nýjan klasa skap­andi greina í Gufunesi. Tillögur liggi fyrir í maí nk.

7. Þekkingargreinar

Unnin verði áætlun um frek­ari upp­bygg­ingu þekk­ing­ar­tengdra greina í sam­vinnu við Háskóla Íslands, Vís­inda­garða, Háskól­ann í Reykja­vík og Land­spít­al­ann. Tillögur liggi fyrir í maí nk.

8. Menning, listir, íþróttir og viðburðahald

Unnar verði til­lögur um aðgerðir og við­spyrnu í menn­ingar-, íþrótta- og lista­lífi Reykja­vík­ur­borgar í sam­vinnu við Bandalag íslenskra lista­manna, ÍBR o.fl. Tillögur liggi fyrir í maí nk.

9. Markvissar vinnumarkaðsaðgerðir

Nauð­syn­legar vinnu­mark­aðs­að­gerðir sem við­brögð gegn atvinnu­leysi verða þró­aðar tíma­lega einsog til­efni verður til. Unnið verði í sam­vinnu við ríkið og aðila vinnu­mark­að­ar­ins þar sem sér­stak­lega verði lögð áhersla á hópa sem skv. grein­ingum verða illa úti í ástand­inu, s.s. ein­yrkja, fólk af erlendum upp­runa og konur. Áhersla verði lögð á að bjóða starfstæki­færi, starfs­nám og íslensku­kennslu og aðra menntun á atvinnu­leys­is­bótum.

10. Flýting fjárfestinga og viðhalds á vegum Reykjavíkurborgar og fyrirtækja hennar

Fjár­fest­ingum verður flýtt og við­hald aukið til að auka atvinnu og umsvif í efn­hags­líf­inu þegar á þessu ári. Við­bót­ar­fjár­fest­ingar borg­ar­sjóðs og B-hluta fyr­ir­tækja geta sam­an­lagt orðið um 5 millj­arðar króna á árinu og enn meiri árið 2021. Efnt verði til við­ræðna við ríkið um kostn­að­ar­hlut­deild, skatta og gjöld í tengslum við fram­kvæmd­irnar.

a. Fjár­fest­ingar borg­ar­sjóðs (A-hluta) í nýfram­kvæmdum og við­haldi verði auknar um 2,5 millj­arða árið 2020 með áherslu á mann­afls­frek og virð­is­auk­andi verk­efni.

b. Orku­veita Reykja­víkur og dótt­ur­fé­lög. Verið er að útfæra við­bót­ar­fjár­fest­ingar OR.

c. Félags­bú­staðir vinna að áætlun um við­bótar búsetu­úr­ræði og íbúðir.

d. Faxa­flóa­hafnir hafa ásamt Veitum útfært áætlun um orku­skipti í höfnum og munu eiga við­ræður við ríkið um að ráð­ast í verk­efnið.

11. Undirbúningi fjárfestingarverkefna á vegum Reykjavíkurborgar verði flýtt

Sam­keppnum um skipu­lag og hönnun fjár­fest­ing­ar­verk­efna verði flýtt og gerð deiliskipu­lags vegna þeirra verði sett í for­gang. Þar er meðal ann­ars um að ræða sam­keppnir um Sam­göngu­mið­stöð Reykja­víkur á umferð­ar­mið­stöðv­ar­reit, sam­keppni um stærra borg­ar­bóka­safn í Gróf­ar­húsi, sam­keppni um end­ur­nýjun og end­ur­gerð Laug­ar­dals­laugar og stúku Laug­ar­dals­laugar, sam­keppni um nýja skóla, fjölgun ung­barna­deilda og nýrra leik­skóla­plássa sem hluti af Brúum bilið, mark­aðs­könnun á bíla­stæða­húsi, sam­keppni um Fógeta-torg/Vík­ur­garð, skipu­lag nýrra hverfiskjarna í Arn­ar­bakka og Völvu­felli og hugs­an­lega víðar.

12. Undirbúningi fjárfestingarverkefna í samvinnu við ríkið verði flýtt

Breyt­ingar á deiliskipu­lagi og und­ir­bún­ingi vegna fjár­fest­ing­ar­verk­efna rík­is­ins sem vilji er til að fari af stað verði sett í for­gang, s.s. brýn sam­göngu­verk­efni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu , nýjum hjúkr­un­ar­heim­ilum, upp­bygg­ingu á vegum Háskóla Íslands, Háskól­ans í Reykja­vík, Nýs Lands­spít­ala, auk ann­arra verk­efna skv. nán­ara sam­komu­lagi.

13. Átak í uppbyggingu fjölbreytts og hagkvæms húsnæðis

Til að koma í veg fyrir fyr­ir­sjá­an­legan skort á hús­næð­is­mark­aði verði ráð­ist í nýtt átak í hús­næð­is­upp­bygg­ingu með áherslu á hag­kvæmar íbúðir, almennar íbúðir og öruggt og nægj­an­legt fram­boð lóða og auk­ins bygg­ing­ar­réttar á grund­velli aðal­skipu­lags Reykja­víkur. Áætlun um lóða­út­hlut­anir, frek­ari stofn­fram­lög og hús­næð­is­upp­bygg­ingu verði upp­færð í sam­ráði við verka­lýðs­hreyf­ing­una, upp­bygg­ing­ar­fé­lög án hagn­að­ar­sjón­ar­miða, Samtök iðn­að­ar­ins, Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun og stjórn­völd. Áfanga­skil verði í maí og full­mótuð áætlun liggi fyrir í sept­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár