Það er karlmannlegt að sparka bolta í mark. Það er karlmannlegt að veiða fisk á togara. Það er karlmannlegt að taka 100 kíló í bekk og horfa á aðra karlmenn lumbra hvor á öðrum í boxhring. Það er karlmannlegt að skjóta úr byssu og ybba gogg. Það er karlmannlegt að keyra yfir hámarkshraða.
Það er karlmannlegt að taka áhættu – og yfirstíga ótta.
Það er kvenlegt að sauma í. Það er kvenlegt að elda mat. Það er kvenlegt að vinna í verslun. Það er kvenlegt að halda hreinu. Það er kvenlegt að ræða málin. Það er kvenlegt að hjúkra sjúkum.
[adspot]Er það karlmannlegt að bjarga mannslífum? Er það karlmannlegt að vinna 24 tíma á dag? Er það karlmannlegt að lækna fólk? Er það karlmannlegt að taka ógn og hættu með jafnaðargeði? Er það karlmannlegt að setja sjálfan sig í hættu til þess að bjarga mannslífum?
58% starfandi lyfsala eru konur. 70% lyfjafræðinga eru konur. 92% geislafræðinga eru konur. 97% sjúkraliða eru konur. 97% hjúkrunarfræðinga eru konur. 99% lífeindafræðinga eru konur. Allar ljósmæður Íslands eru konur.
Heilbrigðisstarfsfólk, eftir kyni og stétt (2019)

Rúmlega 85% heilbrigðisstarfsmanna Íslands eru konur.
Ef horft er á fréttir mætti halda að það væri karlmannlegt að ræða peningastefnu Seðlabankans. Maður gæti líka haldið að það væri karlmannlegt að útbúa efnahagspakka, til með að koma í veg fyrir það sem gæti auðveldlega orðið verra hrun en hrunið.
Víglínan gegn COVID-19 er að mestu mynduð af konum. Það eru aðallega konur sem mæta í vinnuna, taka sýni og hlúa að sjúkum, þrátt fyrir smithættu. Það eru fyrst og fremst konur sem stara framan í COVID-19 og berja ófétið á brott. Konur taka áhættu og yfirstíga óttann.
Kannski er orðið karlmennska rangnefni. Ef ekki þá hlýtur það að vera karlmannlegt að haga sér eins og kona þessa dagana.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




















































Athugasemdir