Bann við ólöglegu samráði tekið úr sambandi á ýmsum sviðum vegna COVID-19

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur þegar veitt ýmis­konar und­an­þágur frá lögum fyrir t.d. ferða­skrif­stofur sem reyna að koma Íslend­ingum heim, keppi­nauta í lyfja­iðn­aði til að tryggja nægt fram­boð og á fjár­mála­mark­aði vegna yfir­vof­andi þreng­inga fyr­ir­tækja.

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins.
Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Mynd: Hringbraut

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur ákveðið að und­an­þágu­beiðnir, þar sem sóst er eftir því að víkja ákvæðum sam­keppn­islaga til hliðar og sem tengj­ast COVID-19, verði afgreiddar innan tveggja sól­ar­hringa.

Eft­ir­litið hefur þegar veitt nokkrar und­an­þágur innan þessa ramma, sem gefur fyr­ir­tækjum eða sam­tökum þeirra und­an­þágu frá banni sam­keppn­islaga við ólög­mætu sam­ráði vegna COVID-19. Þá hefur verið lögð áhersla á að stjórn­völd á við­kom­andi sviði, til dæmis Lyfja­stofnun eða Ferða­mála­stofa, taki þátt í sam­skiptum keppi­nauta hafi yfir­sýn yfir við­kom­andi sam­starf og þar með einnig fyr­ir­sýn yfir þær aðgerðir sem ráð­ist er í.

[adspot]Þetta er gert vegna þess að sú heilsuvá af völdum COVID-19 sem er yfir­stand­andi orsakar að neyt­endur og atvinnu- og efna­hags­líf standa „frammi fyrir áskor­unum sem ekki eiga sér nein for­dæmi.“

Við veit­ingu und­an­þágu er einkum metið hvort sam­starfið sé nauð­syn­legt og hvort það komi almenn­ingi raun­veru­lega til góða. Meðal ann­ars er reynt að tryggja að hættan af skað­legum áhrifum sam­starfs­ins verði tak­mörkuð.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið mun því á næstu vikum leggja áherslu á afgreiðslu mála er varða við­brögð við efna­hagsvá tengdri COVID-19. Af þeim sökum mun eft­ir­litið þurfa að fresta með­ferð ýmissa mála eða end­ur­meta með­ferð þeirra að öðru leyti.

Þær sex undanþágur sem þegar hafa verið veittar eru eftirfarandi:

  1. Samstarf ferða­skrif­stofa sem miðar að því að við­skipta­vinir þeirra kom­ist til síns heima og tak­marka tjón af völdum COVID-19. Sam­starfið er bundið þeim skil­yrðum að Ferða­mála­stofa meti sam­starfið nauð­syn­legt hverju sinni og að stofn­unin sé þátt­tak­andi í sam­skiptum keppi­naut­anna. Til skoð­unar er af hálfu Ferða­mála­stofu hvort þörf sé að óska eftir frek­ari und­an­þága á þessu sviði.
  2. Heimild til handa Ferða­mála­stofu til að kalla saman ferða­þjón­ustu­að­ila á öllum sviðum. til að meta hvernig brugð­ist skuli við áhrifum COVID-19.
  3. Heimild til handa Samtökum í ferða­þjón­ustu (SAF) til að grípa til til­tek­inna aðgerða til að auð­velda ferða­þjón­ustu­að­ilum að bregð­ast við breyttum aðstæðum vegna COVID-19.
  4. Samstarf keppi­nauta á vett­vangi inn­flutn­ings og dreif­ingar á lyfjum sem miðar að því að tryggja full­nægj­andi aðgengi að lyfjum. Sam­starfið er bundið þeim skil­yrðum að Lyfja­stofnun meti nauð­syn sam­starfs­ins og að stofn­unin sé þátt­tak­andi í sam­skiptum keppi­naut­anna..
  5. Heimild til handa Embætti land­læknis til að kalla saman keppi­nauta á ýmsum sviðum, með það að mark­miði að tryggja órof­inn rekstur mik­il­vægrar starf­semi og full­nægj­andi aðföng.
  6. Afmörkuð heim­ild til handa Samtökum fjár­mála­fyr­ir­tækja (SFF) til beita sér fyrir og taka þátt í sam­starfi aðild­ar­fyr­ir­tækja sinna og ann­arra aðila á lána­mark­aði, sem miðar að því að und­ir­búa við­brögð við tíma­bundnum greiðslu­erf­ið­leikum fyr­ir­tækja vegna COVID-19. Forsenda heim­ild­ar­innar er að Seðla­banka Íslands sé boðið að taka þátt sam­skiptum keppi­nauta og utan­að­kom­andi aðili með þekk­ingu á sam­keppn­is­rétti haldi utan um sam­skiptin.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár