Íslandsbanki frestar greiðslu arðs – Enginn stóru bankanna greiðir út í ár

Allir stóru bank­arnir þrír eru hættir við að greiða út arð vegna for­dæma­lausra aðstæðna á fjár­mála­mörk­uðum sem skap­ast hafa vegna útbreiðslu kór­ónu­veirunnar.

Stjórn Íslands­banka, sem er að öllu leyti í eigu rík­is­ins, hefur ákveðið, í ljósi óvissu af völdum for­dæma­lausra aðstæðna á fjár­mála­mörk­uðum, að greiða ekki út arð til hlut­hafa á árinu 2019. „Jafn­framt verður lagt til við aðal­fund að stjórn bank­ans fái heim­ild til að kalla til sér­staks hlut­hafa­fundar síðar á þessu ári þar sem til­laga um greiðslu arðs af hagn­aði fyrri rekstr­ar­ára kann að vera lögð fram.“

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem Íslands­banki sendi Kauphöll Íslands í dag. Þar segir enn fremur að eig­in­fjár­staða bank­ans sé sterkt og með þess­ari ákvörðun sé bank­inn „enn betur í stakk búinn að takast á við þær áskor­anir sem framundan eru.“ Íslands­banki ætl­aði að greiða út 4,2 millj­arða króna í arð í ár.

[adspot]Seðla­banki Íslands hafði beint þeim til­mælum til fjár­mála­fyr­ir­tækja að end­ur­skoða allar arð­greiðslu­til­lögur í ljósi óvissu í efna­hags­um­hverf­inu vegna útbreiðslu kór­ónu­veirunnar.

Bankaráð Lands­bank­ans, sem er í 98 pró­sent eigu íslenska rík­is­ins, reið á vaðið á föstu­dag og til­kynnti að það myndi leggja til við aðal­fund bank­ans að fresta arð­greiðslu. Upp­haf­lega stóð til að greiða 9,45 millj­arða króna út úr bank­anum í arð.

Frétta­blaðið greindi frá því að Arion banki hefði frestað boð­aðri tíu millj­arða króna arð­greiðslu til hlut­hafa að fjár­hæð sam­tals tíu millj­arðar króna um tvo mán­uði. Í til­kynn­ingu sem Arion banki sendi frá sér á föstu­dag kom fram að bank­anum hafi borist skrif­legar beiðnir frá hlut­höfum, sem ráða yfir meira en þriðj­ungi hluta­fjár, um frestun ákvörð­unar á greiðslu arðs á aðal­fundi en hann fer fram 17. mars næst­kom­andi.

Blaðið sagð­ist hafa heim­ildir fyrir því að frum­kvæðið um að fresta arð­greiðsl­unni hefði komið frá banda­ríska vog­un­ar­sjóðs­ins Taconic Capital, stærsta hlut­hafa Arion banka með rúm­lega 23,5 pró­senta hlut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár