Gylfi: Launafólki mestur greiði gerður með því að vernda fyrirtækin frá þroti

Við­skipta­bankar og stjórn­völd þurfa að gera sitt besta til að hjálpa fyr­ir­tækjum sem verða fyrir áföllum yfir hjall­ann sem blasir við. Það er hægt með því að fresta inn­heimtu skatta, fella þá niður eða veita nið­ur­greidd lán, segir Gylfi Zoega.

Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði.
Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði. Mynd: Skjáskot/RÚV

Mestu máli skiptir á næstu mán­uðum, við núver­andi aðstæður í heims­mál­unum, að við­skipta­bankar og stjórn­völd geri sitt besta til þess að líf­væn­leg fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu og öðrum greinum sem verða fyrir áföllum geti haldið áfram rekstri þegar ástand verður eðli­legt aftur. Þetta segir Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði, í grein í nýj­ustu Vís­bend­ingu sem kom út í lok síð­ustu viku.

Gylfi segir að við­skipta­bank­arnir hér­lendis hafi laust fé til þess að hjálpa fyr­ir­tækjum með nægt eigið fé yfir hjall­ann og stjórn­völd geti frestað inn­heimtu skatta hjá þeim fyr­ir­tækjum sem verst standa, fellt niður skatta eða lækkað þá og veitt nið­ur­greidd lán til þess að hjálpa þeim að ná sér á strik. „Vaxta­lækkun Seðla­bank­ans myndi fyrst og fremst hafa þau áhrif að létta á fjár­magns­kostn­aði fyr­ir­tækja og heim­ila á meðan á far­sótt­inni stendur og ýta aðeins undir nýfjár­fest­ingar eftir að hún er gengin yfir.

Í kjöl­far far­sóttar geta stjórn­völd, ef þörf reyn­ist á, síðan aukið opin­berar fjár­fest­ingar til þess að auka eft­ir­spurn í hag­kerf­inu. Launa­fólki er mestur greiði gerður með því að vernda fyr­ir­tækin frá þroti vegna þess að þá eykst atvinnu­leysi minna. Þeir sem missa atvinn­una þrátt fyrir þessar aðgerðir njóta síðan atvinnu­leys­is­bóta.“

Afleiðingar geta orðið miklar fyrir alþjóðlegt efnahagslíf

Í grein­inni, sem er ítar­leg og fjallar heild­rænt um efna­hags­leg áhrif útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum á hag­kerfi heims­ins. Þar segir hann að nú þegar far­sóttin herjar á öllum Vest­ur­löndum og nær að breið­ast út geta afleið­ing­arnar orðið miklar fyrir hið alþjóð­lega efna­hags­líf.

[adspot]Þar segir Gylfi að í hag­fræði sé talað um „heldni“, sem er íslensk þýð­ing á enska orð­inu „hyster­esis“, þegar tíma­bundið áfall hefur langvar­andi áhrif. „Þegar atvinnu­leysi eykst tíma­bundið þá geta sumir þeirra sem fyrir því verða misst móð­inn og trúna á sjálfan sig og þá dottið út af vinnu­mark­aði og sitja þá eftir þegar hag­kerfið nær sér á strik aftur. Þannig getur skamm­vinn nið­ur­sveifla haft áhrif til langs tíma.

Þegar far­sótt geisar þá geta einnig orðið afleið­ingar til lengri tíma. Aug­ljós­asta afleið­ingin er sú að mörg fyr­ir­tæki verði gjald­þrota vegna þess að við­skipta­vinum fækkar tíma­bundið og starfs­fólk er heima og þorir ekki að koma til vinnu.

[links]Þá lækka tekjur, lausa­fjár­staðan versnar og slök afkoma getur valdið því að eigið fé verði upp urið áður en far­ald­ur­inn hefur runnið sitt skeið. Fyr­ir­tækjaflóran verður þá fátæk­ari þegar upp er staðið og í gjald­þroti fyr­ir­tækj­anna felst heldni – það að tíma­bundin far­sótt hefur áhrif til lengri tíma á efna­hags­lífið. Þetta á sér­stak­lega við um þrot kerf­is­lega mik­il­vægra fyr­ir­tækja sem hefur síðan áhrif á rekstur ann­arra fyr­ir­tækja. En áhrifin eru ekki ein­skorðuð við þau fyr­ir­tæki sem fara í þrot. Þau fyr­ir­tæki sem ekki verða gjald­þrota hafa minna eigið fé eftir en áður og eig­in­fjár­skortur hefur áhrif á ákvarð­anir stjórn­enda. Vöxtur þeirra er þá minni fyrir vikið þegar eðli­legt ástand hefur náð að mynd­ast.“

Þess vegna skipti mestu málið á næstu mán­uðum að við­skipta­bankar og stjórn­völd geri sitt besta til þess að líf­væn­leg fyr­ir­tæki sem verði fyrir áföllum geti haldið áfram rekstri þegar ástand verður eðli­legt aftur. Það sé, líkt og áður sagði, hægt að gera með því að sjá fyr­ir­tækjum með nægt eigið fé fyrir lausu fé auk þess sem stjórn­völd geta frestað inn­heimtu skatta hjá þeim fyr­ir­tækjum sem verst standa, fellt niður skatta eða lækkað þá og veitt nið­ur­greidd lán til þess að hjálpa þeim að ná sér á strik.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár