Undanfarnar vikur hefur faraldurinn geisað og yfirvöld gera sitt best til að miðla upplýsingum til landsmanna og er það vel. Við höfum fengið upplýsingar matreiddar með yfirveguðum hætti og meira að segja nettröllin þegja að mestu og er þá mikið unnið.
En það er einn hópur sem mér sýnist hafa orðið illilega útundan. Við höfum jú séð að allar fréttir RÚV, og og annarra miðla að einhverju leyti líka, eru táknmálstúlkaðar þessa dagana, einnig blaðamannafundir Almannavarna með land- og sóttvarnalækni og fleirum. Þetta er mjög gott og sýnir vitund um að ekki skilji allir talaða íslensku og að alvarleiki málsins kallar á þetta. En ég hef ekki orðið var við að slíkir viðburðir séu túlkaðir eða þýddir á tungumál innflytjenda sem búa hér tugþúsundum saman og eru einnig veigamiklir skattborgarar í þessu landi. Það er með ólíkindum að stjórnvöld og fjölmiðlar sýni þessum borgurum landsins í raun vanvirðingu með þessum hætti, fyrir utan þá augljósu staðreynd að þeir hafa þá ekki sömu upplýsingar og vitneskju til að átta sig á hvernig ber að hegða sér í þessari vá sem að steðjar.
[adspot]Það eru vissulega einhverjar felusíður með ensku og pólsku hér og þar og meira að segja hefur eitthvað verið textað á ensku eins og allt þetta verkafólk og iðnaðarmenn frá Austur-Evrópu, svo ekki sé minnst á fólk sem komið hefur enn lengra að, tali reiprennandi ensku. Svo er ekki, það er tómt mál að tala um að nota ensku sem samskiptamál við stóra hópa innflytjenda þegar um er að ræða svo alvarlegt mál sem þennan faraldur. Það er ekki hægt að nota ensku sem alíbí þegar svona mikil vá steðjar að, það þarf að ávarpa fólkið á tungumáli sem það skilur. Það hreinlega verður að þýða eða túlka skilaboðin til fólksins.
Útvarpsstjóri hefur nefnt að verið væri að undirbúa einhverjar þýðingar á pólsku og er það vel, en það er of seint og ég óttast að það verði ekki nógu mikið. Ekki þýðir að segja mér að það sé of þunglamalegt eða ekki hægt, það eru til margar leiðir til að koma þessum upplýsingum á framfæri, með þýddum skilaboðum, það væri hægt að sýna fréttamannafundina túlkaða á hljóðrásum hjá fjölmiðlum, eða textaða með einhverri seinkun. Það eru allir möguleikar fyrir hendi og þetta fólk á rétt á upplýsingum frá þeim yfirvöldum sem það greiðir skatta sína til. Ég geri þá kröfur að yfirvöld og fjölmiðlar í þessu landi sinni öllum borgurum þess óháð móðurmáli þeirra.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir