Icelandair gengur frá 4,3 milljarða króna fjármögnun

Eigið fé Icelandair nam um 60 millj­örðum í lok þriðja árs­fjórð­ungs.

Icelandair hefur gengið frá lána­samn­ingi að fjár­hæð 4,3 millj­arðar króna eða 35 millj­ónir Banda­ríkja­dala við banda­ríska bank­ann CIT Bank til fimm ára.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá félag­inu.

Um er að ræða end­ur­fjár­mögnun í kjöl­far upp­greiðslu skulda­bréfa­flokks félags­ins fyrr á þessu ári.

Mark­aðsvirði Icelandair nemur 43,5 millj­örðum króna, en tölu­verðar sveiflur hafa ein­kennt þróun mark­aðsvirðis félags­ins á und­an­förnum mán­uðum. Ennþá er félagið að glíma við nei­kvæð áhrif af alþjóð­legri kyrr­setn­ingu á 737 Max vélum frá Boeing, en ekki liggur fyrir enn hvenær þær geta farið að fljúga aftur. Ástæðan fyrir kyrr­setn­ing­unni voru flug­slys 29. októ­ber í fyrra í Indónesíu, og 13. mars á þessu ári í Eþíópíu. Samtals lét­ust 346 í þeim, allir um borð í báðum vélum.

Eigið fé félags­ins nemur nú rúm­lega 500 millj­ónum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 60 millj­örðum króna, sé miðað við stöð­una eins og hún var í lok þriðja árs­fjórð­ungs.

Heild­ar­eignir félags­ins nema um 190 millj­örðum króna, en heild­ar­skuldir voru um 130 millj­arðar, sé miðað við stöð­una eins og hún var í lok þriðja árs­fjórð­ungs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár