Verkefni sem Hanna Birna vinnur að hjá UN Women styrkt af íslenskum stjórnvöldum

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, var ráðin til UN Women sem tíma­bund­inn ráð­gjafi til að vinna meðal ann­ars að verk­efni sem lýtur að póli­tískri vald­efl­ingu kvenna. Ísland styrkir það til­tekna verk­efni um 70 millj­ónir.

Hanna Birna Kristjánsdóttir.
Hanna Birna Krist­jáns­dóttir. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri, inn­an­rík­is­ráð­herra og vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, var ráðin sem tíma­bund­inn ráð­gjafi á aðal­skrif­stofu UN Women í New York í byrjun árs 2019. Hún var meðal ann­ars ráðin til að vinna að verk­efn­inu Women's Politcal Empowerment and Leaders­hip en það er eitt þeirra verk­efna sem íslensk stjórn­völd ákváðu að styrkja árið 2018.

[links]UN Women er stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna um kynja­jafn­rétti og vald­efl­ingu kvenna. Hún er jafn­framt ein af áherslu­stofn­unum Íslands á sviði þró­un­ar­sam­vinnu og sam­kvæmt ramma­samn­ingi við UN Women greiðir Ísland almenn fram­lög til stofn­un­ar­innar, sem og fram­lög til ein­stakra verk­efna.

Heild­ar­stuðn­ingur Íslands til stofn­un­ar­innar á árinu 2019 er áætl­aður 234 millj­ónir króna, sam­kvæmt svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans. Af þeim 234 millj­ónum er 35 millj­ónum varið til verk­efn­is­ins Women's Political Empowerment and Leaders­hip, sem lýtur að póli­tískri vald­efl­ingu kvenna og leið­toga­hæfni víða um heim, þar á meðal í þró­un­ar­ríkj­unum, í ár, auk 35 millj­óna á næsta ári.

Það verk­efni er eitt þeirra verk­efna sem Hanna Birnu vinnur að hjá UN Women ásamt öðrum störfum. Í svari ráðu­neyt­is­ins kemur fram að ákvörðun um að styrkja verk­efnið hafi verið tekin 2018. Aðspurð hvort að ráðn­ing Hönnu Birnu til verk­efn­is­ins sé tengd fjár­fram­lagi Íslands til verk­efn­is­ins segir ráðu­neytið að UN Women hafi ráðið Hönnu Birnu til starfa og ráðn­ing­ar­sam­bandið liggi alfarið hjá stofn­un­inni.

Hanna Birna greindi frá ráðn­ing­unni til UN Women í byrjun febr­úar á þessu ári en hún hætti í stjórn­málum hér­lendis eftir kosn­ing­arnar sem fram fóru haustið 2016. Hún hætti sem inn­­an­­rík­­is­ráð­herra í lok árs 2014 í kjöl­far leka­­máls­ins og fór í leyfi frá þing­­störfum í kjöl­far­ið. Skömmu síð­­­ar, eða í októ­ber 2015, ákvað hún að hætta sem vara­­for­­maður Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

þróunarsamvinna

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár