Fréttablaðið og Hringbraut fá undanþágu til að renna strax saman

Útgáfu­fé­lag Frétta­blaðs­ins fær að taka yfir Hring­braut þó Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafi ekki lokið umfjöllun sinni á sam­run­anum. Ástæðan er sú að Hring­braut þarf fjár­magn til að styrkja rekstur sinn.

Torg, útgáfu­fé­lag Frétta­blaðs­ins og tengdra miðla, má fram­kvæma yfir­töku sína á sjón­varps­stöð­inni Hring­braut strax þótt að umfjöllun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um hann sé ekki lokið. Eft­ir­litið hefur veitt slíka heim­ild á grund­velli und­an­þágu í sam­keppn­is­lögum.

Ástæðan fyrir veit­ingu heim­ild­ar­innar er að Hring­braut þurfi á auknum fjár­munum að halda til að styrkja rekstur sinn en er háð því að ekki verði aðhafst nokkuð í rekstri Hring­brautar á und­an­þágu­tíma sem ekki verði mögu­legt að vinda ofan af verði ekki af sam­runa félag­anna.

Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Nýr aðaleigandi

Sam­run­inn á sér stað í kjöl­far þess að Helgi Magn­ús­son fjár­fest­ir, sem í sumar keypti helm­ing­inn í útgáfu­fé­lagi Frétta­blaðs­ins, bætti við sig hinum helm­ingnum fyrr í mán­uð­inum. Með þeim kaupum lauk ára­löngu eign­­ar­haldi hjón­anna Jóns Ásgeirs Jóhann­es­­sonar og Ing­i­­bjargar Pálma­dóttur á íslenskum fjöl­mið­l­um, en þau höfðu verið aðal­­eig­endur 365 miðla og fyr­ir­renn­­ara þeirrar fjöl­miðla­­sam­­steypu í um 16 ár.

[adspot]Samhliða var Ólöfu Skafta­dóttur gert að hætta sem öðrum rit­stjóra blaðs­ins og Jón Þór­is­son, fyrr­ver­andi banka­stjóri VBS fjár­fest­inga­banka og lög­mað­ur, tók við hennar stöðu. Hinn rit­stjóri Frétta­blaðs­ins er Davíð Stef­áns­son, sem hefur aðal­lega starfað við almanna­tengsl og ráð­gjöf áður, sem var ráð­inn í sum­ar.

Auk þess var greint frá því að sjón­varps­stöðin Hring­braut verði sam­einuð Frétta­blað­inu og í kjöl­far þess sam­runa verði Sig­urður Arn­gríms­son, við­skipta­fé­lagi Helga sem á meg­in­þorra hluta­fjár í Hring­braut, hlut­hafi í sam­ein­uðu félagi ásamt Jóni Þórs­syni og Guð­mundi Erni Jóhanns­syni, stofn­anda Hring­braut­ar.

Í ljósi þess að búið er að veita und­an­þágu fyrir þeim sam­runa getur Hring­braut flutt starf­semi sína í höf­uð­stöðvar Frétta­blaðs­ins á Hafn­ar­torgi. Áhrif sam­run­ans sáust strax í Frétta­blað­inu í morgun þar sem stór aug­lýs­ing var frá Hring­braut á síðu sex.

Fréttablaðið situr bráðum eitt að efninu sínu

Þegar 365 miðlar, fyrr­ver­andi eig­andi Torgs ehf., seldi ljós­vaka­miðla sína og Vísi.is til félags­ins sem nú heitir Sýn var upp­haf­lega gerður samn­ingur um að efni úr Frétta­blað­inu myndi birt­ast áfram á Vísi.is í 44 mán­uði. Sam­keppn­is­eft­ir­litið lét aðila máls­ins hins vegar stytta þann samn­ing vegna þess að það taldi hann vera of lang­an. Nið­ur­staðan var að samn­ing­ur­inn myndi gilda frá 1. des­em­ber 2017, þegar miðl­arnir færð­ust form­lega yfir til Sýn­ar, og til 1. des­em­ber 2019.

Torg ehf. hefur alla tíð síðan verið að byggja upp nýjan frétta­vef, Fretta­bla­did.­is, og til stendur að vefur Hring­brautar muni sam­ein­ast honum. Því hefur sama efnið birst að morgni á tveimur mis­mun­andi vefum í nálægt tvö ár.

Nú stytt­ist veru­lega í að Fretta­bla­did.is sitji eitt að efn­inu úr blað­inu á vefn­um, en það ger­ist eftir rúman mánuð.

Ný og gjörbreytt ritstjórnarstefna

Í lok síð­ustu viku var ný rit­stjórn­ar­stefna fjöl­miðla í eigu Torgs ehf. birt á vef fjöl­miðla­nefndar. Í henni felst að halda fram „borg­ara­legum við­horf­um, víð­sýni og frjáls­lyndi. Frelsi verði gert hátt undir höfði og hag neyt­enda haldið á lofti. Stjórn­völdum á hverjum tíma verði veitt aðhald á öllum svið­um. Sama gildi um dóm­stóla. Áhersla verði lögð á mik­il­vægi umhverf­is­vernd­ar, efl­ingu atvinnu­lífs­ins og sam­starf Íslend­inga á alþjóð­legum vett­vang­i.“

Til við­bótar við þetta verður „kapp­kostað að fjöl­miðlar TORGS verði áfram mik­il­vægur vett­vangur skoð­ana­skipta og frétta­miðl­unar á Ísland­i.“

Rit­stjórn­ar­stefnan er mjög frá­brugðin þeirri stefnu sem áður var við lýði. Í henni sagði meðal ann­ars að Frétta­blaðið legði áherslu á „áreið­an­legan og vand­aðan frétta­flutn­ing“, að hafa „sjálft ekki skoðun á neinu máli“, að fjalla um „margar hliðar mála og draga fram ólíkar skoð­anir og sjón­ar­mið“ og að vera „.op­inn og líf­legur umræðu­vett­vangur fyrir les­endur og birta dag­lega umræðu­greinar frá þeim“. Þá var lögð sér­stök áhersla á að blaðið væri „hóf­stillt í fram­setn­ingu og útlit­i“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár