Besta platan með The Beatles – Revolver

Gefin út af Parloph­one þann 5. ágúst 1966, 14 lög á 35 mín­útum og 1 sek­úndu.

Hug­myndin um bestu plöt­una hverju sinni bygg­ist ein­göngu á skoðun minni og þekk­ingu. Skoðunin er oft­ast mjög sterk en þekk­ingin getur verið alla­vega. Þannig hika ég ekki við að til­nefna bestu plöt­una og þá skiptir engu hvort ég þekki allar útgáfur við­kom­andi mjög vel eða bara þessa einu – já eða eitt­hvað þar á milli.

Ég er þess vegna alltaf til í rök­ræður og upp­fræðslu frá les­endum sem annað hvort vita betur eða telja sig vita betur. Aðal­málið er að hlusta á og ræða hljóm­plötur sem heild, bestu plöt­una í hvert skipti.

Hljóm­sveitin The Beatles var stofnuð árið 1960 í Liverpool á Englandi og hætti störfum árið 1970. The Beatles gaf út 13 breið­skífur á ferl­inum:

Please Please Me (1963)

With the Beatles (1963)

A Hard Day's Night (1964)

Beatles for Sale (1964)

Help! (1965)

Rubber Soul (1965)

Revolver (1966)

Sgt. Pepper's Lonely Hearts Club Band (1967)

Magical Mystery Tour (1967)

The Beatles (The White Album) (1968)

Yellow Submar­ine (1969)

Abbey Road (1969)

Let It Be (1970)

Revolver var sjö­unda stóra plata Bítlana á þremur árum og þá áttu þeir eftir að gefa út sex til við­bótar á þeim fjórum árum sem bandið tórði. Tíu ára fer­ill, 13 breið­skífur á sjö árum (sem reyndar má toga upp í 23 ef til­teknar eru allar furðu­út­gáfur af þessum þrettán fyrir aðra heims­hluta og þá aðal­lega Banda­ríkin) frægð, frami og áhrif sem ekk­ert tón­list­ar­fólk hefur kom­ist í námunda við fyrr, síðar eða mun gera eft­ir­leiðis. Nákvæm­lega þarna má skipta ferl­inum í tvennt, fyrir og eftir Revolver því eftir útgáfu plöt­unnar tók við síð­asta tón­leika­ferð þeirra og eft­ir­leiðis unnu þeir aðeins í hljóð­ver­inu.

Það er auðvelt að hlusta á The Beatles

Ég man ekki hvenær ég heyrði Revolver fyrst. Og senni­lega veit ég það bara ekki. Þessar plötur voru ekki til á heim­il­inu og ég varð ekk­ert sér­stak­lega mikið var við þær sem slíkar. En eins og hvert annað manns­barn heyrði ég auð­vitað Bítlalög í löngum bunum. Ég var hins­vegar kom­inn yfir tví­tugt þegar ég tók fyrstu skipu­legu yfir­ferð­ina á ferl­inum. Þá setti ég Please Please Me á fón­inn, síðan With the Beatles og svo koll af kolli þangað til ég hafði klárað Let It Be. Til ykkar sem ekki hafa prófað að hlusta svona krónólógískt á Bítlana vil ég nefna sér­stak­lega hversu auð­velt það er. Plöt­urnar eru lang­flestar undir 35 mín­útum að lengd og engin nema Hvíta albú­mið sem ruggar þeim báti alvar­lega, tvö­föld og meira en einn og hálfur tími. En það tekur bara um það bil 10 tíma að hlusta á allar 13 plöt­urnar að við­bættum tím­anum sem tekur að skipta um skífur á fón­inum og snúa þeim við. Og það er gaman. Þetta er allt svo auð­velt. Og það er mjög skýr bogi á ferl­inum.

Rauða platan og Bláa platan

Við eigum þær öll. Og við eigum öll að eiga þær. Þær eru frá­bær­lega heppn­aðar og með betri safn­plötum allra tíma.

En ég held að það sé vin­sældum þeirra að kenna hversu mörg okkar þekkja ekki ein­stakar plötur Bítlanna. Það er eig­in­lega með ólík­indum að við skulum ekki öll vita meira en við vitum. Það var það sem fékk mig til að rúlla í gegnum þær í réttri röð og þær negldu mig svo ger­sam­lega að ég man hvar ég var þegar ég var að hlusta á hverja og eina þeirra í dag. Jæja, kannski ekki alveg. En alltaf þegar ég hlusta á Rubber Soul man ég eftir sól úti á svölum. Help! er tengd við tré og ég er nokkuð við um að ég hafi verið á rölti með Discman þegar ég hlust­aði á hana. Abbey Road, her­bergið mitt og ég löðr­andi á fingr­unum að borða eitt­hvað. Já ok, þetta eru nú greini­lega ekki heilar minn­ingar en ég fæ þessar sömu myndir upp í hug­ann í hvert skipti. Og vegna þess að ég hlust­aði svona harka­lega í röð þá hef ég líka alltaf mjög sterka til­finn­ingu fyrir upp­haf­inu, miðju og endi.

Þetta byrjar allt af gríð­ar­legum frum­krafti og Please Please Me er eig­in­lega hálf­gert brjál­æði. Hún er tekin upp á innan við 13 klukku­tímum og eðl­is­á­vísun látin ráða för frekar en eitt­hvað annað. Þar eru mörg tök­u­lög og allt eins hrátt og hægt er að hugsa sér, gredda, vilj­inn til að sigra heim­inn, óáskyggj­an­leg gleði og áhyggju­leysi fjög­urra manna sem héldu hóp­inn eins og her­sveit. Á hinum enda fer­ils­ins er Let It Be og hún er allt það sem Please Please Me er ekki. Jú, hún er auð­vitað frá­bær, því allar Bítla­plöt­urnar eru það.

En hún er þaul­hugsuð og kannski of. Hún er búin til af mönnum sem höfðu ekk­ert að sanna, voru ekki lengur þessi sam­ein­aða heild, áttu allt of mikla pen­inga og allan tíma heims­ins, voru með haus­inn á kafi í útsetn­ingum og nýj­ustu hljóð­upp­töku­tækni og stundum fær maður á til­finn­ing­una að þeir hafi verið að drepa tím­ann eða að fylla upp í eitt­hvert hlut­verk sem þeim hafði verið skaffað. Höfum í huga að við erum að tala um 13 plötur sem allar eru ótrú­leg verk og innan þess skala verðum við að dæma þær. Þannig eru sumar síðri en aðrar og fyrir mér eru það þessar enda­plötur sem eru verstar. Hápunktur fer­ils Bítlanna er um mið­bikið þegar allt þetta ofan­greinda fer saman í réttu hlut­falli. Rubber Soul, Revolver og Sgt. Pepper's Lonely Hearts Club Band. Þetta eru bestu verkin þeirra. Rubber Soul er á rétt að verða komin á tind­inn, Sgt. Pepper’s er komin nokkur skref niður hinum megin. Og Revolver er þarna á milli, full­komið jafn­vægi af frum­krafti, sköpun, kunn­áttu, for­vitni, sjálfs­ör­yggi, monti, sam­heldni og sann­fær­ingu.

Lögin sem aldrei hljómuðu á tónleikum

Bítl­arnir spil­uðu aldrei eitt ein­asta lag af Revolver á tón­leikum. Þau voru ein­fald­lega of flókin eða víð­fem og ekki útsett fyrir fjög­urra manna hljóm­sveit. Þar að auki nutu þeir þess­ara mán­aða á túrnum alls ekki vegna þess að hljóð­kerfi og magn­arar þess tíma voru ekki tæki sem réðu við að koma hljóði til svona margra ein­stak­linga í einu. Bítl­arnir voru orðnir fyrsta leik­vanga­band ver­aldar og ómögu­legt að fólk fengi að heyra þá og sjá þannig að sóma­sam­legt væri. Þeir voru orðnir svo stórir að þeir heyrðu hrein­lega ekki í sjálfum sér. Og aðrir heyrðu enn minna.

Eftir þetta spil­uðu þeir bara saman í hljóð­ver­inu. En þeir urðu líka meist­arar hljóð­vers­ins og fundu upp stóran hluta af þeirri tækni sem búið er að þróa til muna og notuð er enn í dag. Ef ekki væru Bítl­arnir hefðu seinni­tímarisar tón­list­ar­sög­unnar ekki hljó­mað eins og þær gerðu. Queen er þar gott dæmi og nær­tæk­ast að tala um söngupp­tök­urnar og sándið sem ein­kennir margt sem Freddie setti inn á teip. Bítl­arnir höfðu lengi barist við að tvö­falda söng­inn við upp­tökur, sem sagt taka upp nákvæm­lega eins söng ofan í þann sem fyrir var.

Þetta var bæði tíma­frekt og erfitt því til þess að slíkt hljómi vel þarf fram­kvæmdin að vera afar nákvæm, en þá er upp­skeran líka góð. Upp­töku­stjóri Bítlanna ein­fald­aði þessa aðgerð þegar þeir unnu að Revolver. Honum datt í hug að tengja saman tvær teip­vélar, not­ast bara við eina söng­töku en senda hana í gegnum báðar vél­arnar áður en hann sam­ein­aði hljóð­merkin á ný. Vegna þess að hljóðið var örlítið lengur á leið­inni í gegnum aðra vél­ina en hina (hér ein­falda ég sann­leik­ann aðeins) voru þessi tvö hljóð­merki ekki alveg sam­taka þegar á hinn end­ann var komið og því hljóm­aði söng­ur­inn tvö­faldur. Þessu fylgir þó alger­lega sér­stakur hljómur sem fæst ekki með öðrum aðferðum og nákvæm­lega þetta nýttu Queen-liðar sér ákaft á sínum ferli. Bohemian Rhapsody er gríð­ar­lega gott dæmi um þetta.

Annað blað brutu þeir í upp­töku­tækni við gerð Revolver og það var sú aðferð að setja hljóð­nem­ana alveg upp að því sem taka átti upp. Fram að þessu höfðu míkró­fónar verið hugs­aðir sem ígildi eyrna, þeim var stillt upp á stað sem hægt var að hugsa sér sem þægi­legan stað fyrir til­von­andi kaup­anda plöt­unnar, hefði hann verið á staðnum. Þannig skyldi upp­lifunin flutt beint úr hljóð­ver­inu í eyru okkar.

En með því að setja hljóð­nem­ana alveg upp að gít­armagn­ar­anum, trommum, píanóum, org­elum og öllu hinu fékkst ákveðin ein­angrun og auð­veld­ara var að úti­loka umhverf­is­hljóð. Öll eft­ir­vinnsla er með þessu móti tals­vert auð­veld­ari og í dag er þessi aðferð notuð í 99% til­vika. Þarna þótti þetta hins vegar svo fjar­stæðu­kennt að tækni­maður hljóð­vers­ins var skammaður af yfir­boð­urum og eig­endum fyrir að fara illa með hljóð­nem­ana og auð­velt að setja sig í spor þess­ara jakka­fata­manna sem vit­an­lega sáu fyrir sér mann­eskju með eyrað klesst upp við sner­il­trommu sem Ringo barði síðan í erg og gríð. Fyrst slíkt skemmdi manns­eyrað hlaut það að skemma hljóð­nem­ann.

183.000.000 eintök seld

Þetta er rosa­leg tala. Bítl­arnir hafa selt 183 millj­ónir ein­taka platna í heild­ina og eru langsölu­hæsta band allra tíma. Hvíta albú­mið er langstærst, 24.000.000 ein­tök seld og þótt ótrú­legt megi virð­ast er hún eina plata þeirra sem fer á topp 10 yfir mest seldu breið­skífur heims, hún er í fjórða sæti á eftir Thriller með Michael Jackson og Hotel California og Their Greatest Hits (1971–1975) með Eagles. Revolver er hvergi nálægt þeirra vin­sæl­ustu verkum og hefur „aðeins“ selst í rúm­lega 6 milljón ein­taka.

Guli kafbáturinn í herberginu

Besta lagið á Revolver er I'm Only Sleeping en þau eru öll meist­ara­verk. Nema eitt. Helvítis Yellow Submar­ine. Það er eig­in­lega bara ógeðs­legt. Senni­lega átti þetta að vera fyndið en þetta er ekk­ert fyndið. Þeir sögðu síðar í við­tölum að lagið hefði verið smíðað sér­stak­lega til þess að Ringo gæti sungið það, hann býr jú ekki yfir neitt sér­stak­lega víðu raddsviði. En kommon, þið eruð Bítl­arnir. Hvernig var þetta leiðin til þess að leysa málið?

Annað sér­lega mark­vert er að Harrison kemur þremur frá­bærum lögum á blað. Þeirra best er upp­haf­slag plöt­unnar, Taxman. Það er auð­vitað eitt­hvað brjálað við það að semja lag í stíl við þema­lög ofur­hetju­mynda sam­tím­ans og kvarta undan því að skatt­ur­inn sé grimmur við þig þegar þú ert er George Harrison í Bítlunum árið 1966. Og til að bæta ofan á pirr­ing­inn tekur Paul þarna eitt brjál­að­asta gít­ar­sóló í sögu Bítlana, metalskotið og gauðrifið. Bassa­leik­ar­inn sjálfur sem aldrei tók sóló.

Ég er aðeins minna hrif­inn af sítaræf­ingum Harrison en læt það þó ekk­ert fara í taug­arnar á mér. Ekkert mikið.

Lögin sem víst hljómuðu á tónleikum

Við nið­ur­lag þess­ara pistla þykir mér gaman að velta fyrir mér stöðu við­kom­andi bands eða lista­fólks í dag. Hér er því auð­vitað ekki að heilsa. Einnig finnst mér gaman að skoða hvernig lög af plöt­unni sem um ræðir hafa ratað inn á tón­leik­ar­prógröm á þeim árum sem síðan eru liðin. Þar er sömu sögu að segja, þessi lög hafa aldrei verið spiluð á tón­leikum. Ekki af Bítlunum. Og þá komum við að þeirri svaka­legu stað­reynd að öll lögin af Revolver og öllum hinum plöt­unum af hljóð­vers­tíma­bil­inu hafa verið spiluð á tón­leikum um víða ver­öld, oftar og fyrir fleiri en næstum öll lög önnur sem samin hafa verið. Flutt af ótelj­andi lista­fólki við allar aðstæður.

Eleanor Rigby er einmitt fyrsta lagið sem rataði inn á Bítla­plötu þar sem þeir sjálfir spila ekki á eitt ein­asta hljóð­færi. Og svo gerir Ray þetta bara blind­andi.

Ég hvet ykkur öll til að hlusta á þetta meist­ara­verk í heild. Hér er mín skoðun en ég skal glaður rök­ræða hana: Revolver er besta platan með The Beatles.

Laga­listi:

Hlið A

01 – Taxman

02 – Eleanor Rigby

03 – I'm Only Sleeping

04 – Love You To

05 – Here, There and Everywhere

06 – Yellow Submar­ine

07 – She Said She Said

08 – Good Day Sunshine

09 – And Your Bird Can Sing

10 – For No One

11 – Doctor Robert

12 – I Want To Tell You

13 – Go To Get You Into My Life

14 – Tomorrow Never Knows

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár