Hægt að fá Teslu frá fimm milljónum króna á Íslandi

Nú er hægt að panta Teslu á heima­síðu fyr­ir­tæk­is­ins í gegnum íslenskt við­mót, fá upp­gefið hvað hann kostar með og án íslensks virð­is­auka­skatts, hvaða gjalda­af­slættir eru í boði og hvenær bíl­inn fæst afhentur.

Íslend­ingar geta nú keypt Teslu Model 3 frá 4.990.000 krónum án virð­is­auka­skatts í gegnum heima­síðu fyr­ir­tæk­is­ins ef um stað­greiðslu er að ræða, en það opn­aði starfs­stöð sinni hér­lendis í gær. Bíllinn yrði til afhend­ingar á fyrri hluta árs­ins 2020.

Verð­list­inn á bílum frá Teslu fyrir íslenskan markað var birtur í gær. Á Íslandi eru ýmsir fjár­hags­legir hvatar inn­byggðir fyrir kaup­endur til að versla sér raf­bíl, sem í felst meðal ann­ars und­an­þága frá greiðslu 24 pró­sents virð­is­auka­skatts á kaup­verði upp að sex millj­ónum króna, und­an­þága frá inn­flutn­ings­gjöldum og lægri bif­reiða­gjöld.

Á heima­síðu Tesla er áætlað að sá sem keyrir 20 þús­und kíló­metra á ári spari sér um 1,6 millj­ónir króna í elds­neyt­is­sparnað á fimm ára tíma­bili með því að skipta yfir í raf­bíl, en fimm ár er með­al­lengd þess sem fólk á hvern bíl.

[adspot]Model 3 Teslan er, sam­kvæmt heima­síð­unni, með drægni upp á 409 kíló­metra á hleðslu, kemst upp í 225 kíló­metra hraða og er 5,6 sek­úndur í 100 km/klst.

Það er einnig hægt að panta aðrar og dýr­ari gerðir af Teslum á heima­síð­unni. Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum og miðað við íslenskt gjalda­um­hverfi. Model X kostar frá 10.890.000 krónum án virð­is­auka­skatts og Model S kostar frá 9.890.000 krónum án virð­is­auka­skatts.

Vinsælasti rafbíll í Evrópu

Elon Musk, stofn­andi og aðal­eig­andi Tesla, stað­festi að fyr­ir­tækið myndi opna þjón­ustu­mið­stöð hér­lendis 9. sept­em­ber á Twitter fyrir rúmri viku. Húsnæðið er við Krókháls í Reykja­vík og á vef Tesla segir að til standi að setja upp öfl­ugar hrað­hleðslu­stöðv­ar, svo­kall­aðar „superchargers“, á fjórum stöðum á land­inu í nán­ustu fram­tíð. Þær eiga að vera í Reykja­vík, á Kirkju­bæj­ar­klaustri, Egils­stöðum og við Stað­ar­skála. Slíkar stöðvar hlaða raf­bíla á um hálf­tíma.

Tesla Model 3 er sem stendur vin­sæl­asti raf­bíll Evr­ópu. Í júní síð­ast­liðnum seld­ust 11.604 slíkir bíl­ar. Næst vin­sæl­asti raf­bíll­inn var Renault Zoe, en 4.881 slíkir seld­ust í þeim mán­uð­i.

Vin­sældir hans í Banda­ríkj­unum eru enn meira afger­andi, en það sem af er ári hafa þar selst 81.100 slíkir í land­inu. Næst sölu­hæsti raf­tengdi bíl­inn þar er Toyota Prius Prime en 11.555 ein­tök af þeirri teg­und, sem er tengit­vinn­bíll, hafa selst í Banda­ríkjum á fyrstu sjö mán­uðum árs­ins 2019. Þriðji vin­sæl­asti raf­bíl­inn þar er síðan önnur Tesla, Model X, sem selst hefur í 10.225 ein­tökum í ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

loftlagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár