Þrettán sagt upp hjá Sýn – meðal annars á fréttastofu

Alls var þrettán manns sagt upp störfum hjá fjöl­miðla- og fjar­skipta­fé­lag­inu Sýn í dag. Á meðal þeirra er dag­skrár­gerð­ar­mað­ur­inn Hjörvar Haf­liða­son.

Þrettán manns var sagt upp störfum hjá fjöl­miðla-- og fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu Sýn í dag, sam­kvæmt frétt Frétta­blaðs­ins. Á meðal þeirra eru dag­skrár­gerð­ar­mað­ur­inn Hjörvar Haf­liða­son, sem hefur starfað í sjón­varpi og útvarpi árum saman, og frétta­menn­irnir Kristín Ýr Gunn­ars­dóttir og Sig­hvatur Jónsson, sem starfa á frétta­stofu Stöðvar 2 og Bylgj­unnar.

Boðað var til starfs­manna­fundar hjá Sýn klukkan 14 í dag og stendur hann nú yfir.

Sýn varð til þegar Fjar­skipti, móð­ur­fé­lag Vodafone á Íslandi, breytti nafni sínu á aðal­fundi sínum í mars í fyrra. Nokkrum mán­uðum áður, nánar til­tekið í des­em­ber 2017, höfðu Fjar­skipti sam­einað fjöl­miðla­starf­semi inn í rekstur félags­ins sem fól í sér meðal ann­ars Stöð 2, Stöð2 Sport, Vísi, Bylgj­una, FM957 og Xið 977. Miðlana höfðu Fjar­skipti keypt af 365 miðlum. Nafna­breyt­ingin var fram­kvæmd svo að heitið væri meira lýsandi fyrir starf­semi hins sam­ein­aða félags.

365 miðlar fengu greitt fyrir með 10,92 pró­sent hlut í Sýn, tæp­lega 1,6 millj­arði króna í reiðufé auk þess sem Sýn tók yfir 4,6 millj­arða króna af vaxta­ber­andi skuldum. Eigendur 365 miðla, sem eru félög tengd Ingi­björgu Pálma­dóttur, seldu eign­ar­hlut­inn sinn í Sýn í októ­ber í fyrra á tvo millj­arða króna. Því má segja að þeir hafi fengið um 3,6 millj­arða króna í reiðufé út úr söl­unni auk þess sem Sýn tók yfir 4,6 millj­arða króna af skuldum 365 miðla. Sam­an­lagt er kaup­verðið sam­kvæmt því um 8,2 millj­arðar króna.

Í sátt sem Sýn gerði við Sam­keppn­is­eft­ir­litið vegna kaupana þá skuld­batt félagið sig til að halda áfram rekstri þeirra fjöl­miðla sem voru and­lag kaupanna næstu þrjú ár. Í því fólst meðal ann­ars áfram­hald­andi rekstur frétta­stofu Stöðvar 2 og Bylgj­unnar eða sam­bæri­legra frétta­stofa. Þessi skuld­bind­ing var þó ekki án fyr­ir­vara. Í sátt­inni segir að félagið geti „gert breyt­ingar á fram­boði frétta eða fram­leiðslu íslensks efnis vegna veru­legra utan­að­kom­andi nei­kvæðra breyt­inga á mark­aðs­að­stæðum.“

Hagnaður í fyrra langt undir væntingum

Miklar svipt­ingar hafa verið hjá Sýn und­an­farin mis­s­eri, en kaupin á fjöl­mið­l­unum hafa ekki skilað þeim árangri sem áætl­­­anir gerðu ráð fyr­­ir. Hagn­aður félags­­ins í fyrra var til að mynda 473 millj­­ónir króna, sem var langt undir vænt­ing­­um. Ekk­ert félag í Kaup­höll­inni lækk­­aði meira í virði en Sýn á síð­­asta ári, en virði bréfa þess fór niður um 38,3 pró­­sent.

Þá misstu fjöl­miðlar Sýn rétt­inn af einni af sínum vin­­sæl­­ustu vörum, Enska bolt­an­um, í lok árs í fyrra og fær­­ast sýn­ingar á honum yfir til Sím­ans frá og með því tíma­bili sem nú er nýhafið.

Þrír stjórn­­endur Sýnar hafa verið látnir fara á þessu ári. Í lok febr­­ú­­ar, rúmum tveimur mín­útum eftir að upp­­­gjör félags­­ins vegna árs­ins 2018 var birt, barst til­­kynn­ing um að Stefán Sig­­urðs­­son, for­­stjóri félags­­ins, hefði náð sam­komu­lagi um að hætta störf­­um.

Í byrjun árs voru tveir aðrir rekn­ir, þar á meðal Björn Víglunds­­son, sem var yfir miðlum félags­­ins. Hans hlut­verk hafði sér­­stak­­lega verið að leiða sam­þætt­ingu fjöl­miðla­hluta Sýnar við aðrar ein­ingar Fjar­­skipta og vinna að vöru­­þró­un.

Í árs­upp­gjör­inu kemur fram að áhrif starfs­loka stjórn­enda hjá Sýn á fyrsta árs­fjórð­ungi hafi numið 137 millj­ónum króna.

Birta uppgjör síðar í mánuðinum

Sýn hefur ekki birt upp­gjör sitt vegna ann­ars árs­fjórð­ungs, en mun gera það 28. ágúst. Félagið skil­aði 670 millj­ónum króna hagn­aði á fyrsta árs­fjórð­ungi, sem er hækkun um 619 millj­ónir króna milli ára. Lyk­ilá­stæða þess að Sýn skil­aði hagn­aði á árs­fjórð­ungnum er vegna þess að bók­færður sölu­hagn­aður vegna sam­runa P/F Hey, dótt­ur­fé­lags Sýnar hf. í Fær­eyjum og Nema, dótt­ur­fé­lag Tjald­urs, gekk í gegn á fjórð­ungnum og er 49,9 pró­sent hlutur Sýnar hf. í nýju sam­ein­uðu félagi færður sam­kvæmt hlut­deild­ar­að­ferð og því ekki hluti af sam­stæðu­reikn­ings­skilum Sýnar hf. frá byrjun þessa árs. Alls nemur bók­færður sölu­hagn­aður vegna þessa 817 millj­ónum króna. Án hans hefði verið tap á rekstri Sýnar á árs­fjórð­ungn­um.

Tekjur Sýnar á tíma­bil­inu voru 4.975 millj­ónir króna sem er lækkun um eitt pró­sent frá sama tíma­bili í fyrra, þegar tekjur voru 5.030 millj­ónir króna. Ef verð­bólga er tekin inn í dæmið þá var sam­drátt­ur­inn í raun­tekjum meiri en áður­nefnt eitt pró­sent. Kostn­að­ar­verð jókst að sama skapi og dróst fram­legð saman um 118 millj­ónir króna milli ára.

Tekjur Sýnar sam­an­standa úr nokkrum stoð­um. Sú eina þeirra sem skil­aði meiri tekjum í ár en á sama árs­fjórð­ungi 2018 var sala á inter­net­þjón­ustu. Tekjur vegna fjöl­miðl­un­ar, far­síma, fast­línu og vöru­sölu dróg­ust allar sam­an.

Von er á ítar­legri kynn­ingu á stefnu­mótun Sýnar í næsta upp­gjöri félags­ins.

Heiðar ráðinn forstjóri í apríl

Í lok apríl var greint frá því að Heiðar Guð­jóns­­son, hag­fræð­ingur og fjár­­­fest­ir, hefði verið ráð­inn for­­stjóri Sýn­­ar. Hann hætti á sama tíma sem stjórn­­­ar­­for­­maður félags­­ins, en Heiðar er einn stærsti hlut­hafi Sýnar með 6,4 pró­­sent eign­­ar­hlut. Heiðar hafði gegnt starfi for­­stjóra tíma­bundið í nokkrar vikur áður en að hann var ráð­inn í starf­ið.

Nokkrum dögum síðar var greint frá því að Þór­hallur Gunn­­ar­s­­son, fyrr­ver­andi rit­­stjóri Kast­­ljóss, hefði verið ráð­inn sem fram­­kvæmda­­stjóra Miðla hjá fyr­ir­tæk­inu. Hann tók við starf­inu 22. maí en undir sviðið heyra meðal ann­­ars fjöl­mið­l­­arnir Stöð 2, Stöð 2 sport og útvarps­­­stöðv­­­arnar Bylgj­an, FM957 og Xið977 auk Vís­­is.

Á sama tíma var Signý Magn­ús­dóttir ráðin fjár­­­mála­­stjóri Sýnar frá og með 1. júní síð­ast­liðnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár