Rúmlega 30 þúsund fleiri gestir heimsótt Fjölskyldu- og húsdýragarðinn

Þrátt fyrir fækkun ferða­manna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins hafa mun fleiri heim­sótt Fjöl­skyldu- og hús­dýra­garð­inn það sem af er ári miðað við sama tíma­bili í fyrra. Alls hafa rúm­lega hund­rað þús­und manns heim­sótt garð­inn frá því í jan­úar.

Selur að spóka sig.
Selur að spóka sig. Mynd: Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn.

Mun fleiri hafa heim­sótt Fjöl­skyldu- og hús­dýra­garð­inn það sem af er ári en í fyrra. Alls heim­sóttu 100.600 manns garð­inn á fyrstu sex mán­uðum árs­ins en það eru um 32 þús­und fleiri en á sama tíma­bili í fyrra. Nýr fall­turn var tek­inn í notkun í Fjöl­skyldu- og hús­dýra­garð­inum í fyrra og unnið er að því gang­setja Sleggj­una svoköll­uðu í garð­inum.

Fjölskyldu og húsdýragarðurinn opnaður fyrir nærri þrjátíu árum

Borg­ar­ráð Reykja­víkur ákvað að byggja hús­dýra­garð í Laug­ar­dalnum í apríl árið 1986. Markmið borg­ar­innar með garð­inum var að kynna Reyk­vík­ingum íslensk hús­dýr og færa borg­ar­búa nær íslenskum búskap­ar­háttum. Hús­dýra­garð­ur­inn var síðar opn­aður af Davíð Oddssyni, borg­ar­stjóri, þann 19. maí 1990. Þá voru í garð­inum voru rúm­lega tutt­ugu dýra­teg­undir, bæði hús­dýr og villt dýr. 

Í kjöl­far góðra við­taka var ákveðið að bæta við aðstöðu fyrir fjöl­skyldur að verja tóm­stundum sínum sem nefndur var Fjöl­skyldu­garð­ur­inn og var opn­aður þremur árum seinna. Garð­arnir tveir, hús­dýra­garð­ur­inn og fjöl­skyldu­garð­ur­inn, eru land­fræði­lega tengdir saman með brúnni Bifröst.

Í fyrra sumar opn­aði nýr fall­turn í garð­inum, sem þykir gott aðdrátta­afl á gesti, en einnig er stefnt að því að gang­setja skemmti­tækið Sleggj­una, sem var forðum í Skemmti­garð­inum í Smára­lind, í garð­inum sem fyrst. „Sleggj­an hef­ur aldrei farið í gang. Það hef­ur verið unnið að því að koma henni í gang í allt sum­ar. Það þarf að upp­fylla alls kyns ör­yggis­atriði áður en hún fer í gang. Bæði þessi tæki eru við­kvæm og með fullt af skynj­ur­um og nem­um. Þegar eitt­hvað fer er svo­lítið flókið að kom­ast að því hvað er að,“ sagði Sigrún Thorlacius, aðstoð­ar­for­stöðu­maður Hús­dýra- og fjöl­skyldug­arðs­ins, í sam­tali við Morg­un­blaðið í gær.

Heimsóknum í garðinn fjölgar á meðan ferðamönnum fækkar

Samkvæmt heima­síðu Fjöl­skyldu- og hús­dýra­garðs­ins heim­sækja að með­al­tali um 170 þús­und gestir garð­inn árlega. Í maí síð­ast­liðnum var hins vegar met­að­sókn í Fjöl­skyldu- og hús­dýra­garð­inn en alls sóttu 26 þús­und garð­inn. Það er tvö­falt fleiri en heim­sóttu garð­inn í maí árið á undan en sá mán­uður var versti í sögu garðs­ins.

Alls hafa rúm­lega 100 þús­und manns heim­sótt garð­inn það sem af er ári, sem er um þrjá­tíu þús­und fleiri en sóttu garð­inn á sama tíma­bili í fyrra.

Á sama tíma hefur ferða­mönnum fækk­aði ferða­mönnum hér á landi um 12,4 pró­sent á fyrstu sex mán­uðum árs­ins sama­borið við árið á undan. Í jan­úar fækk­­aði brott­­förum ferða­manna um 5,8 pró­­sent, í febr­­úar um 6,9 pró­­sent, í mars um 1,7 pró­­sent, í apríl um 18,5 pró­­sent, um 23,6 pró­­sent í maí og loks 16,7 pró­sent fækkun í júní eða alls 39 þús­und færri ferða­menn en árið á und­an­.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár