Telja að taka mætti tillit til umhverfisáhrifa í mataræðisráðleggingum Landlæknis

Tveir sér­fræð­ingar í lýð­heilsu­vís­indum leggja til að Embætti land­læknis end­ur­skoði ráð­legg­ingar sínar um matar­æði og taki til­lit til sjálf­bærni og umhverf­is­á­hrif, meðal ann­ars með því að draga úr neyslu á rauðu kjöti og mjólk­ur­af­urðum.

Jóhanne E. Torfa­dóttir, nær­ing­ar­fræð­ingur og doktor í lýð­heilsu­fræðum, og Thor Aspelund, pró­fessor í líf­töl­fræði, telja að end­ur­skoða mætti ráð­legg­ingar um matar­æði á vegum Embættis land­læknis og að tekið yrði til­lit til sjálf­bærni og umhverf­is­á­hrifa. Í grein sinni í Lækna­blað­inu fjalla Jóhanna og Thor um svo­kallað Flex­it­arian matar­æði þar sem megin áhersla er lögð á fæði úr jurta­rík­inu með það fyrir augum að bæta heilsu og draga úr kolefn­is­út­blæstri.

Tæplega þriðjungur af losun gróðurhúsaloftengunda kemur frá matvælaframleiðslu

Í grein Jóhönnu og Thors er fjallað um nýlega grein alþjóðlega vísindahópsins, EAT, sem unnið hefur að því síðustu þrjú ár að setja fram vísindaleg gögn og útreikninga sem sýna hvernig þjóðir heims geti tekist á við aðkallandi vandamál þegar kemur fæðuframboð og mataræði.

Í grein EAT er greint frá því að 30 pró­sent af losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og 70 pró­sent af notkun fersks vatns kemur til vegna mat­væla­fram­leiðslu. Þá krefst ræktun kjöts mestrar nýt­ingar auð­linda, lands og vatns, og losar mest af gróð­ur­húsa­loft­eng­undum, sam­an­borið við ræktun ann­ara mat­væla.

Offita á Íslandi orðin 27 prósent

Á heims­vísu hefur tíðni offitu þre­fald­ast frá árinu 1975 en í ár eru yfir tveir millj­arðar manna í ofþyngd eða glímir við offitu í heim­inum. Svipaða þróun má sjá á Íslandi en á tæpum þrjá­tíu árum hefur tíðni offitu á Íslandi auk­ist gríð­ar­lega, farið úr 8 pró­sentum árið 1990 í 27 pró­sent árið 2017. Samhliða hefur tíðni syk­ur­sýki 2 tvö­fald­ast á síð­ustu 30 árum.

Óhollt matar­æði vegur þyngri sem orsök lífstílstengdra sjúk­dóma en áfeng­is­neysla, reyk­ingar, vímu­efna­neysla og óvarið kyn­líf sam­an­lagt, sam­kvæmt skýrslu Global Panel on Agriculture and Food Systems for Nutrition.[adspot]

Þá er krabba­mein í dag algeng­asta orsök dauðs­falla Íslend­inga yngri en 75 ára. Í grein­inni segir að vitað sé að hægt er að koma í veg fyrir 40 pró­sent krabba­meina með lífs­stíl, svo sem reglu­legri hreyf­ingu, minni tóbaks­notkun, hæfi­legri lík­ams­þyngd og hollu og fjöl­breyttu matar­æði. „Það er því til mik­ils að vinna að bæta og við­halda góðu matar­æði fyrir góða heilsu,“ segir í grein­inni.

Leggja til að neytt sé fimmfalt minna af rauðu kjöti en landlæknir mælir með

Vís­inda­menn Eat-hóps­ins hafa sýnt fram á að með því að breyta matar­æði fólks sé hægt að fækka ótíma­bærum dauðs­föllum og minnka kolefn­is­fót­spor svo um munar. Hópurinn leggur til svo­kallað „Flex­it­arian“ matar­æði þar sem við­miðin fyrir helstu prótein­gjaf­ana eru eft­ir­far­andi, miðað við viku­skammt,: 100 gr. af rauðu kjöti, 200 gr. af ali­fugla­kjöti, 200 gr. af fiski, 350 gr. hnetur, 90 gr. egg og 525 gr. baunir/belg­jurtir.

„Hér sést að aðal­á­hersla er lögð á að draga úr neyslu á dýra­af­urðum en ekki er langt síðan þau við­mið voru sett um allan heim (þar með talið á Íslandi) að ekki væri borðað meira en 500 g viku­lega af rauðu kjöti til að minnka líkur á krabba­meini í ristli og enda­þarmi. Samkvæmt EAT-skýrsl­unni minnkar þetta magn fimm­falt en eins og áður sagði þá er kolefn­is­spor tengt kjöt­fram­leiðslu það allra hæsta borið saman við aðrar fæðu­teg­undir,“ segir í grein­inni.

Kjöt­neysla Íslend­inga hefur auk­ist frá árinu 2002 en síð­ustu fæð­is­fram­boðs­tölur sýna að hver lands­maður borð­aði að með­al­tali 93 grömm af rauðu kjöti dag­lega. Tekið er þó fram í grein­inni að taka þurfi þessar tölur með fyr­ir­vara, þar sem fjöldi ferða­manna og rýrnun geti haft áhrif.

„Í dag horfum við fram á að breyt­inga er þörf og það strax ef takast á að fæða 10 millj­arða manna. Stór þáttur í þeirri breyt­ingu er að minnka neyslu á rauðu kjöti og auka neyslu á fæðu úr jurta­rík­inu,“ segir í grein­inni.

Mögulegt sóknarfæri núna fyrir aukna grænmetisneyslu

Embætti land­læknis gefur reglu­lega út opin­berar ráð­legg­ingar um matar­æði fyrir full­orðna og börn frá tveggja ára aldri. Í ráð­legg­ingum emb­ætt­is­ins frá 2017 segir að nú sé meiri áhersla en áður lögð á umhverf­is­mál. „Ef ráð­legg­ing­unum er fylgt þá er það jákvætt fyrir umhverfið þar sem aukin neysla á jurta­af­urðum og minni neysla dýra­af­urða hjálpar til við að tak­marka losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.“

Í ráð­legg­ingum land­læknis er miðað við að neytt sé 3,5 lítrum af mjólk og/eða mjólk­ur­af­urðum á viku sem sam­kvæmt grein Jóhönnu og Thors eru það nokkuð meira en mælt er með í Eat-skýrsl­unni sem leggur til 1,8 lítra á viku.

Jafn­framt er mælt með minni fiskneyslu í Flex­it­arian matar­æð­inu en í íslenskum ráð­legg­ingum en sam­kvæmt grein Jóhönnu og Thors mætti rök­styðja fiskneyslu tvisvar til þrisvar sinnum í viku vegna þeirra nær­ing­ar­efna sem finna má í sjáv­ar­fangi, sem erfitt er að fá ann­ars­staðar úr fæð­inni en þá verði fram­leiðslan að vera sjálf­bær.

Að lokum segir í grein­inni að mögu­lega sé nú sókn­ar­færi til að auka græn­metis og ávaxta­neyslu lands­manna þar sem sífellt fleiri séu orðnir með­vit­aðir um hvaða umhverf­is­á­hrif mat­væla­fram­leiðsla hefur. Grein­ar­höf­undar leggja því til emb­ætti land­læknis end­ur­skoði matar­æð­is­ráð­legg­ingar sínar og taki til­lit til sjálf­bærni og umhverf­is­á­hrifa eins og vís­inda­menn EAT-hóps­ins leggja til. „Flex­it­arian-matar­æði getur verið við­mið til að stefna að fyrir þá sem vilja breyta neyslu­venjum til bættrar heilsu og minnka ágang á gæði jarðar,“ segir grein­ar­höf­undar að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár