Nýtt frammistöðumat Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) sýnir að Ísland eigi eftir að innleiða 0,7 prósent EES-gerða á Íslandi. Það er jafnframt þriðja árið í röð sem innleiðingarhalli landsins er innan við eitt prósent, að því er kemur fram á vef Stjórnarráðsins.
Liechtenstein stendur í 0,9 prósentum en Noregur í 0,4 prósentum. Innleiðingarhalli EFTA-ríkjanna innan EES var 0,7 prósent. Jafnframt náði innleiðingarhalli Íslands hámarki árið 2013 þegar hann nam 3,2 prósentum.
[adspot]„Þessi árangur kemur mér ekki á óvart enda hef ég lagt á það áherslu í embætti utanríkisráðherra að bæta framkvæmdina á EES-samningnum. Bætt framkvæmd eykur möguleika okkar á að hafa áhrif á lagasetninguna á fyrri stigum, sem hefur ef til vill aldrei verið mikilvægara en nú,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.

Hluti af stefnu stjórnvalda
Í frammistöðumatinu er tekinn saman árangur EFTA-ríkjanna þriggja innan evrópska efnahagssvæðisins (EES) við innleiðingu EES-gerða. Samhent átak innan stjórnsýslunnar við bætta framkvæmd EES-samningsins er ástæða þess viðsnúnings sem orðið hefur á innleiðingu EES-gerða á Íslandi, samkvæmt fréttatilkynningu Stjórnarráðsins. Unnið hefur verið að því að auka getu ráðuneyta til að vinna að innleiðingunni. Bætt frammistaða Íslands við framkvæmd samningsins er enn fremur hluti af stefnu stjórnvalda í EES-málum.
Þegar litið er til reglugerða töldust alls 38 reglugerðir óinnleiddar og versnaði frammistaðan lítillega frá síðasta mati þegar 35 reglugerðir höfðu ekki verið innleiddar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir