Íslendingar mest varir við skort á samkeppni í farþegaþjónustu

Íslend­ingar verða mest varir við sam­keppn­is­vanda­mál í far­þega­þjón­ustu, fjár­mála­þjón­ustu og mat­væla­mark­aði sam­kvæmt könnun MMR. Þá var hátt verð og lít­ill mark­tækur munur á verði nefnd sem helstu vanda­mál mark­að­anna.

Íslendingar verða varir við samkeppnisvandamál á matvörumarkaði
Íslend­ingar verða varir við sam­keppn­is­vanda­mál á mat­vöru­mark­aði Mynd: Rú

Íslend­ingar verða mest varir við sam­keppn­is­vanda­mál í far­þega­þjón­ustu. Um 42 pró­sent svar­enda nefna þjón­ust­una sem þann geira þar sem við­kom­andi hefði upp­lifað vanda­mál sökum skorts á sam­keppni. Þar á eftir nefna svar­endur fjár­mála­þjón­ustu, eða um 33 pró­sent og þar á eftir mat­vöru­markað, 24 pró­sent.

Þetta kemur fram í nið­ur­stöður MMR könn­unar fyrir Sam­keppn­is­eft­ir­litið um við­horf almenn­ings til sam­keppn­is­stefnu stjórn­valda og sam­keppni í til­teknum atvinnu­greinum. Alls voru 941 ein­stak­lingar spurðir við fram­kvæmd könn­un­ar­innar dag­ana 30. apríl til 3. maí 2019.

Hátt verð og lítill verðmunur

Íslend­ingar eru mest varir við sam­keppn­is­vanda­mál í ferða­þjón­ustu, fjár­mála­þjón­ustu og á mat­vöru­mark­aði. Þegar spurt var hver séu helstu vanda­málin á við­kom­andi mörk­uðum þá var hátt verð og lítil verð­munur oft­ast nefnt. Alls sögðu 64 pró­sent að verð­lag væri vanda­málið í mat­vöru­mark­aði, far­þega þjón­ustu og 54 pró­sent svör­uðu að verð­lagið væri vanda­málið á lyfja­mark­aði.

[adspot]Lítill mark­tækur munur á verði fyrir svip­aða þjón­ustu var einnig oft nefndur sem vanda­mál á þessum mörk­uðu. Af þeim sem töldu skort á sam­keppni í fjár­mála­þjón­ustu nefndu þau oft­ast verð­lag en auk þess var verð­lag oft nefnt sem vanda­mál í síma- og net­þjón­ustu í könn­un­inni.

Könnunin Sam­keppn­is­eft­ir­lits er byggð á könnun sem fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins hefur látið gera þrisvar sinnum í öllum aðild­ar­ríkjum sam­bands­ins. Eft­ir­litið segir að með því að fram­kvæma könn­un­ina hér á landi gefst tæki­færi til þess að bera nið­ur­stöð­urnar saman við nið­ur­stöður innan ESB og ein­stakra aðild­ar­ríkja.

Íbúar ESB verða mest varir við sam­keppn­is­vanda­mál í síma- og net­þjón­ustu, eða 27 pró­sent svar­enda, auk þess verða þeir varir við vanda­mál innan orku­mark­aðs­ins og lyfja­mark­aðs­ins. Í könnun ESB var hátt verð einnig oft­ast nefnt sem vanda­mál á þessum mörk­uðum. Í til­felli síma- og net­þjón­ustu nefndu að með­al­tali um 70 pró­sent svar­enda í könnun ESB verð, það sama á við um aðra geira sem spurt var um.

Íslenskir neytendur meðvitaðir

Nær allir svar­endur í könn­un­inni töldu virka sam­keppni hafa góð áhrif á sig sem neyt­endur eða 97 pró­sent svar­enda. Það er hærra en gengur og ger­ist í ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins þar sem hlut­fallið er að með­al­tali 83 pró­sent í sam­bæri­legri könnun.

Þá sögðu 8 af hverjum 10 Íslend­ingum hafa heyrt um ákvörðun tekna af sam­keppn­is­yf­ir­völdum og nær allir þeirra nefna Sam­keppn­is­eft­ir­litið í því sam­hengi miðað við 5 af hverjum 10 innan ESB sem hafa heyrt um ákvörðun sam­keppn­is­yf­ir­valda.

Samkvæmt til­kynn­ingu frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu benda nið­ur­stöður könn­un­ar­innar til þess að íslenskir neyt­endur séu mjög með­vit­aðir um mik­il­vægi virkrar sam­keppni og sam­keppn­is­eft­ir­lits.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár