Tíu verkefni valin til þátttöku í Startup Reykjavík

Í átt­unda skipti fer Startup Reykja­vík hrað­all­inn nú fram.

Við­skipta­hrað­all­inn Startup Reykja­vík fer fram í átt­unda skipti í sumar en verk­efnið hefur fest sig í sessi sem eft­ir­sóttur vett­vangur fyrir sprota­fyr­ir­tæki sem vilja þróa áfram við­skipta­hug­myndir sínar og hraða vexti undir leið­sögn sér­fræð­inga.

Tíu verk­efni hafa nú verið valin áfram til þátt­töku í hraðl­inum, en til­kynnt var um þau í dag.

Fyr­ir­tækin tíu njóta leið­sagnar reyndra frum­kvöðla, fjár­festa og ann­ara sér­fræð­inga yfir tíu vikna tíma­bil í þeim til­gangi að þróa áfram við­skipta­hug­myndir sínar, und­ir­búa mark­aðs­sókn og hraða vexti. Í gegnum dótt­ur­fé­lagið Startup Reykja­vík Invest ehf. fjár­festir Arion banki í hverju fyr­ir­tæki fyrir 2,4 millj­ónir króna gegn 6 pró­sent eign­ar­hlut.

Frá árinu 2012 hafa 68 fyr­ir­tæki tekið þátt í Startup Reykja­vík og er rúm­lega helm­ingur þeirra enn starf­andi. Alls hafa þau fengið um fjóra millj­arða íslenskra króna í fjár­mögnun, þar af er um 65% hlutafé og 35% styrkir.

„Lögð er áhersla á að velja til þátt­töku öflug teymi með nýjar lausnir ætl­aðar alþjóða­mark­aði,“ segir í til­kynn­ingu.

Alls bár­ust um 200 umsóknir og vekur það athygli að fyr­ir­tækin sem valin hafa verið eru lengra komin en oft áður, flest þeirra hafa nú þegar hafið starf­semi og eru byrjuð að afla tekna.

Startup Reykja­vík er sam­starfs­verk­efni Arion banka og Icelandic Startups. Arion banki fjár­magnar verk­efnið og fjár­festir í þeim fyr­ir­tækjum sem taka þátt. Icelandic Startups hefur umsjón með verk­efn­inu sem hefst þann 11. júní n.k.

Þátt­tak­endur Startup Reykja­vík 2019:

Basepark­ing

Bíla­stæða­þjón­usta á Kefla­vík­ur­flug­velli sem hefur þjón­u­stað yfir 20.000 við­skipta­vini.

CheckMart

Skil­virkt inn­viða- og vist­kerfi fyrir staf­rænar versl­anir.

Hvísl­ar­inn

Hug­bún­að­ar­lausn sem stuðlar að betri og örugg­ari þjón­ustu við sjúk­linga með því að nýta snjall­tækni, sjálf­virkni og gervi­greind til að auka tím­a­nýt­ingu og skil­virkni heil­brigð­is­starfs­fólks.

Íslensk Gervi­greind

Stafrænn starfs­maður í ský­inu sem ein­faldar verk­ferla og þjón­ustu fyr­ir­tækja.

Proency

Heilsu­tækni­lausn fyrir fag­fólk sem nýtir gervi­greind til þess að auka skil­virkni sál­fræði­legra aðferða og auð­velda inn­leið­ingu heilsu­efl­ingu innan fyr­ir­tækja.

Raf­í­þrótta­skól­inn

Félags­legur og stuðn­ings­ríkur vett­vangur fyrir raf­í­þrótta­spil­ara til þess að efla iðk­endur félags­lega og hjálpa þeim að stíga sín fyrstu skref í sínum raf­í­þrótta­ferli.

Rebutia

Gervi­greindar hug­bún­aður sem velur fatnað út frá ítar­legri grein­ingu á lík­ams­bygg­ingu not­enda og hjálpar þeim að upp­götva fata­stíl sem er snið­inn að þörfum hvers og eins.

Smart­Sampling

Hug­bún­aður fyrir vöru­kynn­ing­ar­fyr­ir­tæki sem býður upp á betri og skil­virk­ari leið til þess að fá upp­lýs­ingar frá við­skipta­vinum um vörur.

Snorricam

Háþróað tól fyrir kvik­mynda­töku sem fest er á lík­amann og gerir kvik­mynda­gerð­ar­fólki kleift að ná ein­stökum sjón­ar­hornum.

TrackEHR

Hug­bún­að­ar­lausn til að miðla upp­lýs­ingum um með­ferð­ar­plan og sjúk­dóms­gang á öruggan og skil­virkan hátt til inniliggj­andi sjúk­linga á sjúkra­húsum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár