Sjálfstæði Fjármálaeftirlitsins getur verið ógnað af stjórnmálamönnum

Gylfi Zoega, hag­fræði­pró­fessor, skrif­aði ítar­lega um starf­semi Seðla­bank­ans og Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

Marg­vís­legar hættur geta steðjað að fjár­mála­eft­ir­liti og sjálf­stæði þess, á litlum mark­aði eins og þeim íslenska. T.d. geta stjórn­mála­menn reynt að hafa áhrif á, bæði í gegnum per­sónu­leg tengsl við fjár­festa og með póli­tískum skip­unum í stjórnir.

Þetta er meðal þess sem Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði, gerir að umtals­efni í ítar­legri grein í Vís­bend­ingu, þar sem fjallað er meðal ann­ars um fyr­ir­hug­aða sam­ein­ingu Seðla­banka Íslands og Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, með gagn­rýnum hætti.

Í grein­inni segir meðal ann­ars:

„Á fjár­mála­eft­ir­lit einnig að vera sjálf­stætt eða lúta póli­tísku valdi? Rökin fyrir sjálf­stæðu eft­ir­liti eru þau ann­ars vegar að hætta sé á að þeir sem hafa á eft­ir­lit með, þ.e.a.s. aðilar á fjár­mála­mark­aði, nái tökum á eft­ir­lit­inu (e. reg­ul­atory capture) og hins vegar að stjórn­mála­öfl nái yfir­hönd­inni og láti þá eft­ir­litið stjórn­ast af póli­tískum hags­munum sínum til skamms tíma, t.d. að ekki megi hemja banka­kerfi sem vex of hratt fyrir kosn­ingar. Hér eru því einnig rök fyrir sjálf­stæði en þau eru sum­part ann­ars konar og aðrir kraftar ógna sjálf­stæði fjár­mála­eft­ir­lits.

Fjár­mála­eft­ir­liti er ætlað að gæta þess að við­skipta­bankar og aðrar fjár­mála stofn­anir taki ekki of mikla áhættu í við­leitni sinni til að skila sem mestum hagn­aði. Stjórn­endur banka verða að vega og meta hversu mikla áhættu á að taka í rekstri banka sem ann­ars miðar að því að ná sem bestri afkomu. Það getur verið mikil freist­ing í þessum rekstri að taka áhættu til að hámarka hagnað til skamms tíma einkum ef aðgengi að erlendu fjár­magni er full­kom­lega frjálst. Þannig er unnt að reka banka með lak­ari afkomu en minni áhættu eða með því að auka áhættu og einnig hagnað til skamms tíma.

Við­skipta­bankar á Íslandi árin 2003-2008 eru skóla­bók­ar­dæmi um það sem getur farið úrskeiðis. Óheft aðgengi að erlendu lánsfé sem fékkst í skjóli láns­hæfis rík­is­sjóðs (lán­ar­drottnar gátu reiknað með að ríkið kæmi til hjálpar ef bankar lentu í van­skilum!) gerði eig­end­unum kleift að hagn­ast gríð­ar­lega til skamms tíma en með því að stofna til mik­illar áhættu bæði innan hvers banka og í krónu­hag­kerf­inu. Aðgengi að erlendu lánsfé gerir bönkum og eig­endum þeirra kleift að hagn­ast mikið til skamms tíma með meiri skuld­setn­ingu en mögu­leg væri innan lands.

En sjálf­stæði fjár­mála­eft­ir­lits er einnig stundum ógnað af stjórn­völdum. Aðgerðir sem bein­ast gegn ákveðnum fjár­mála­stofn­unum geta haft áhrif á hag­kerfið til lengri tíma. Gott dæmi er stefna íslensku rík­is­stjórn­ar­innar fyrir 2008 að því að koma upp alþjóð­legri fjár­mála­mið­stöð á Íslandi, slaka á reglu­verki og styðja við vöxt bank­anna. Aðgerðir FME til að hamla slíkum vexti hefðu þá gengið á skjön við stefnu rík­is­sjórn­ar­innar.

Ekki þarf mikið ímynd­und­ar­afl til að ímynda sér að ráð­andi stofn­anir á fjár­mála­mörk­uðum séu tengdar stjórn­mála­flokkum eða stjórn­mála­mönnum á ein­hvern hátt. Þá steðjar hætta að eft­ir­lit­inu úr tveimur áttum: Í fyrsta lagi reyna stórar stofn­anir á fjár­mála­mark­aði að ná tökum á fjár­mála­eft­ir­lit­inu; ráða til sín reyndasta starfs­fólk þess, hafa fleiri lög­fræð­inga á sínum vegum og á betri kjörum en eft­ir­litið getur haft. Í öðru lagi geta póli­tískir hags­munir komið fram í vali á stjórn­ar­mönnum fjár­mála­eft­ir­lits­ins og þrýst­ingur frá ráð­herrum haft áhrif á gerðir þess. Hættan er þá sú að fjár­mála­kerfið verði brot­hætt þótt hagn­aður sé mik­ill og ef illa fer þá bitni afleið­ing­arnar á almenn­ingi á meðan eig­endur komi sínu fé í skjól.

Aðgerðir fjár­mála­eft­ir­lits fel­ast í beinum afskiptum af rekstri fjár­mála­fyr­ir­tækja til að draga úr áhættu­sókn þeirra og geta þær hæg­lega bitnað á afkomu við­kom­andi fyr­ir­tækja. Því er mik­il­vægt að fjár­mála­eft­ir­lit sé fag­legt, lúti ekki flokkspóli­tískum vilja, og einnig að það fari ekki offari. En lík­legt er að aðgerðir fjár­mála­eft­ir­lits verði engu að síður umdeildar. Sér­stak­lega á þetta við um eft­ir­lit um við­skipta­hætti á mark­aði og neyt­enda­vernd sem gefur eft­ir­lit­inu, og eftir sam­ein­ingu Seðla­bank­anum, heim­ild til þess að ákveða refs­ingar fyrir ólög­lega hegðun á skulda­bréfa og hluta­bréfa­mark­aði.“

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hérna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár