Flóttamaðurinn sem er að skrifa nýjan kafla í sögu NBA

Giannis Antetokounmpo er þjóð­hetja í Milwaukee. Saga hans er þyrnum stráð. Ótrúlegt er að hugsa til þess að honum sé að takast að kom­ast á topp­inn í NBA.

Giannis Antetokounmpo skor­aði í gær 39 stig, tók 16 frá­köst og gaf fjórar stoðsend­ingar á félaga sína í Milwaukee Bucks í NBA deild­inni, þegar liðið vann sterkt lið Boston Celtics og komst í 3 - 1 í ein­vígi lið­anna í und­an­úr­slitum aust­ur­deild­ar­innar.

Það yrði magn­aður árangur hjá Milwaukee Bucks ef liðið kæm­ist í úrslit aust­ur­deild­ar­innar, og auð­vitað enn meira afrek ef liðið færi alla leið í úrslit.

Eitt er alveg öruggt: Leikur liðs­ins mun standa og falla með því hvernig Giannis Antetokounmpo mun spila. Hann hefur verið stór­kost­legur í allan vetur og sýnt og sannað að fáir - ef þá ein­hverjir - geta ráðið við hann þegar hann er upp á sitt besta.

Þyrnum stráð

Óhætt er að segja að ferð Giannis á topp­inn í NBA deild­inni sé þyrnum stráð, og til marks um hversu mikið sumir þeirra sem ná langt í íþróttum þurfa að leggja á sig.

Giannis er með grískt rík­is­fang, en fékk það ekki fyrr en seint og um síðir, þrátt fyrir að hafa verið alinn upp í Grikk­landi og fæðst þar 6. des­em­ber 1994. For­eldrar hans fluttu frá Lagos í Nígeríu og bjuggu við sára fátækt í Grikk­landi, í Sepolia hverf­inu í Aþenu.

Framan af ævinni eyddi Giannis drjúgum tíma á hverjum degi í að reyna að afla tekna fyrir fjöl­skyld­una, ásamt þremur bræðrum sínum, með því að selja varn­ing á götu­hornum. Svo sem úr og ýmis­legt smá­legt, sem faðir hans hafði kom­ist yfir.

Í Grikk­landi öðl­ast fólk ekki sjálf­krafa grískan rík­is­borg­ara­rétt með fæð­ingu í land­inu, og því voru bræð­urnir - þrátt fyrir að hafa fæðst í Grikk­landi og alist þar upp - rík­is­fangs­lausir lengst af, og með stöðu flótta­fólks. Einn bróð­ir­inn var skil­inn eftir í Nígeríu en hann ólst upp hjá ömmu og afa.

Í þessum aðstæðum dró fjöl­skyldan fram lífið, frá degi til dags. Í sárri fátækt, rík­is­fangs­laus og í raun alls laus. Litla vinnu var að fá fyrir for­eld­rana, alveg frá fyrsta degi þeirra í land­inu.

Miklir hæfileikar

Snemma varð ljóst að Giannis var eng­inn venju­legur hæfi­leika­maður þegar kom að körfu­bolta. Hann var hávax­inn eftir aldri og gríð­ar­lega kraft­mik­ill.

Grikk­land hefur ára­tugum saman verið hálf­gerð vagga körfu­bolt­ans í Suður-Evrópu, og lengi hafa verið þar sterk félags­lið og hefð fyrir miklum gæðum í deild­ar­keppni, líka á meðal yngri leik­manna.

Giannis var réttur maður á réttum stað, í Aþenu.

Hann skar­aði fljótt fram úr og var orð­inn hluti af aðal­liði Fil­at­hliti­kos 18 ára gam­all, og spil­aði til að byrja með í grísku 2. deild­inni. Hann skrif­aði undir samn­ing við Real Zaragoza á Spáni árið 2013, en var með ákvæði í samn­ingnum um að inn­ganga í NBA væri mögu­leiki fyrir hann. Samn­ing­ur­inn gerði ráð fyrir að hann kæmi til Zaragoza fyrir tíma­bilið 2013/2014.

Á þessum tíma­punkti gerð­ust hlut­irnir hratt, eins og stundum vill verða hjá mönnum á þessum aldri sem hafa mikla hæfi­leika. Mikið æði greip um sig í Grikk­landi, þar sem þessi 18 ára gamli leik­maður varð betri með hverjum leiknum.

Svo fór að lokum, að hann varð hluti af nýliða­val­inu í NBA deild­inni fyrir tíma­bilið 2013/2014, og því varð ljóst að hann væri ekki á leið til Zaragoza.

Saga Giannis heill­aði marga í Banda­ríkj­unum, en samt sem áður er oft erfitt að keppa um athygli fjöl­miðla í nýliða­val­inu, ef þú kemur ekki úr banda­rískum háskólum. Svo fór að lokum að Giannis var val­inn númer 15 í röð nýliða inn í deild­ina af Milwaukee Bucks, lið­inu sem hann hefur síðan leikið með.

Ógnvekjandi leikmaður

Óhætt er að segja að Giannis sé óvenju­legur leik­maður. Þjálfari hans, Mike Budenholzer, hefur sagt að Giannis sé ein­stakur og óút­reikn­an­legur sem leik­maður. Hann er með ógn­vekj­andi hraða, miðað við hversu hávax­inn hann er, hefur góða bolta­með­ferð og gegn­umbrots­hæfi­leikar hans eru sér­stakir.

Hann leitar ekki mikið eftir lang­skotum, en hefur þó bætt sinn leik einkum með því að opna fyrir aðra og bæta ákvarð­ana­töku, þegar mest liggur við.

Þessi 24 ára gamli leik­maður er einnig orð­inn að leið­toga, sem dregur vagn­inn fyrir sitt lið þegar þess þarf. Oft lýkur hann sóknum með því að troða bolt­anum af afli í körf­una, án þess að nokkur geti gert neitt til að hindra það. Það virkar ein­falt, en er það ekki.

Á þessu keppn­is­tíma­bili skor­aði Giannis 27,7 stig að með­al­tali í leik, hitti úr 57,8 pró­sent skota sinna og tók 12,5 frá­köst.

Hann hefur leikið enn betur í úrslita­keppn­inni og engin bönd hafa haldið honum í skefjum. Framundan er síð­asti kafl­inn á tíma­bil­inu, þar sem bestu leik­menn­irnir stíga oftar en ekki upp og sýna listir sínar á stærsta svið­inu.

Flótta­mað­ur­inn frá Nígeríu - sem fékk grískt rík­is­fang 18 ára, eftir að hafa verið alinn upp rík­is­fangs­laus á götum Aþenu - er að skrifa nýjan kafla í NBA-sögu­bæk­urnar með stór­brot­inni frammi­stöðu sinni á vell­inum.

Hvort sem hann stendur uppi sem sig­ur­veg­ari eða ekki, þegar úrslita­keppn­inni lýkur, þá hefur Giannis sýnt það á sínum ferli að draumar geta ræst, jafn­vel þó aðstæð­urnar í æsku gefi ekki mikla von um það.

Að því leyt­inu til er Giannis mik­il­væg fyr­ir­mynd fyrir aðra sem eiga erfitt með að skilja erf­iðar aðstæður flótta­manna og inn­flytj­enda, ekki síst í stór­borgum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár