Traust á Alþingi hrynur

Traust til Alþingis mælist nú minna en til banka­kerf­is­ins sam­kvæmt nýjum þjóð­ar­púlsi Gallup.

Traust til Alþingis hefur hrunið niður að und­an­förnu og er nú um 18 pró­sent þjóð­ar­innar sem treystir því. Það er um 11 pró­sentu­stigum minna en þegar þjóð­ar­púls Gallup mældi það síð­ast.

Frá þessu greindi RÚV í kvöld.

Banka­kerfið mælist með 20 pró­sent traust, og hefur und­an­farin ára­tug verið í neðsta sæt­inu, en er nú í þriðja neðsta sæti. Minnst er traustið til borg­ar­stjórnar Reykja­víkur og Alþingis. Borg­ar­stjórn með 16 pró­sent og Alþingi 18, eins og fyrr segir. 

Könnunin var gerð dag­ana 7. til 20 febr­úar og var heild­ar­úr­taks­stærð 1.424 og var þátt­töku­hlut­fallið 54,3 pró­sent, segir í frétt RÚV.

Flestir bera mikið traust til Land­helg­is­gæsl­unnar, eða 89 pró­sent. Embætti for­seta Íslands, sem Guðni Th. Jóhann­es­son gegnir, er í öðru sæti annað árið í röð, en rúm­lega 83 pró­sent bera mikið traust til þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár