Tommy Robin­son bannaður á Facebook og Instagram

Hinn umdeildi Tommy Robinson var á dög­unum mein­aður aðgangur á sam­fé­lags­miðl­unum Facebook og Instagram eftir að hafa ítrekað brotið reglur miðl­anna um hat­urs­orð­ræðu. Twitter-reikn­ingi hans var auk þess lokað í mars í fyrra.

Tommy Robinson
Tommy Robinson Mynd: EPA

Hinn umdeildi Tommy Robinson, hefur verið bann­aður á sam­fé­lags­miðl­unum Facebook og Instagram. Tommy Robinson er öfga-hægri­s­inn­aður aðgerð­ar­sinni en hann stofn­aði meðal ann­ars sam­tökin English Defence League árið 2009. Sam­tök­in hafa það að mark­miði að berj­ast gegn „íslam­væð­ingu“ í Bret­landi en auk þess hefur hann tekið þátt í þróun hinna andíslömsku Pegida- sam­taka í Bret­landi. Aðgangi hans var eytt af sam­fé­lags­miðl­unum eftir að hann hafði ítrekað brotið reglur Facebook um hat­urs­orð­ræðu. Frá þessu er greint á The Guardian.

Braut ítrekað reglur Facebook um hatursorðræðu

Fyr­ir­tækið Facebook hefur sett sér þá stefnu að bannað er að nota hat­urs­orð­ræðu á miðlum fyr­ir­tæks­ins. Bannaið er er að ýta undir hatur og ofbeldi eða önnur form af umburð­ar­leysi sem ganga á rétt fólks og verði fyr­ir­tækið vart við slíkt efni er það fjar­lægt sam­stundis. Auk þess er bannað að styðja opin­ber­lega eða vera hluti af skipu­lögðum hat­urs­hópum á sam­félas­g­miðl­inum. Samkvæmt til­kynn­ingu frá Facebook hefur Robinson ítrekað hvatt til ofbeldis gagn­vart múslimum á Facebook-síðu sinni.

Robinson var end­an­lega bann­aður af miðl­inum á dög­unum eftir að fyri­tækið hafði sent Robins­son loka­við­vörun þess efnis að hann yrði fjar­lægður af miðl­inum ef hann héldi áfram að brjóta reglur fyr­ir­tæk­is­ins um hat­urs­orð­ræðu. Samkvæmt fyr­ir­tæk­inu hélt Robinson ítrekað áfram að ýta undir hatur gagn­vart múslimum og auk þess hafi hann deilt fjölda ein­elt­is­mynda­banda á síðu sinni. Aðgangi hans hefur því nú verið lokað til fram­tíðar bæði Facebook og Instagram.

Í umfjöllun Guardian segir að nú þegar Robinson hefur verið bann­aður á sam­fé­lags­miðlum gæti það haft veru­leg áhrif á mögu­leika hans að ná til fólk. Hann er nú þegar bann­aðar á sam­félas­g­miðl­inum Twitter síðan í mars í fyrra en í kjöl­far banns­ins á Facebook og Instagram hefur Robinson nú aðeins mið­il­inn Youtube til að ná til fylgj­enda sinna og breiða út hug­mynda­fræði sína.

Robinson deildi mynd­bandi á Instagram rétt áður en aðgangi hans var lokað þar sem hann ásak­aði Facebook um að vinna með fjöl­miðlum með það að mark­miði að rit­skoða hann á sem flestum stöðum. Robison hefur ítrekað gagn­rýnt fjöl­miðla í Bret­landi fyrir rit­skoðun og sagt þá í her­ferð gegn honum. Auk þess hefur hann birt vin­sæl mynd­bönd á sam­fé­lags­miðlum þar sem hann sýnir fram á meinta tví­feldni almennra fjöl­miðla.

Átti að halda fyrirlestur hér á landi

Til stóð að Robins­son héldi fyr­ir­lestur hér á landi á ráð­stefnu á Grand Hótel í fyrra en það voru sam­tökin Vakur sem stóðu að henni. Ekkert varð þó úr við­burð­unum og end­aði Robinson á að koma ekki til lands­ins.

Þá kærði Sig­ur­freyr Jónasson blaða­mann­inn Sigmar Guð­munds­son til Blaða­manna­fé­lags­ins fyrir hönd Robinson. Ástæðan var við­tal Sigmars við Viðar Þor­steins­son, heim­spek­ing, í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í febr­úar þar sem þeir ræddu Robinson og fyrir hvað hann stæði. Kærunni var að lokum vísað frá en hún barst nefnd­inni of seint.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár