Bankaráð Landsbankans hækkaði mánaðarlaun bankastjórans í 3,8 milljónir króna í apríl í fyrra. Með því hafa laun hans hækkað um 140 prósent á fjórum árum, sem er fjórum sinnum meiri hækkun en hjá almennri launavísitölu.
Samkvæmt frétt Fréttablaðsins í morgun voru mánaðarlaun Lilju Bjarkar Einarsdóttur, bankastjóra Landsbankans, hækkuð um 17 prósent þann fyrsta apríl í fyrra, úr 3,25 milljónum í 3,8 milljónir. Þannig hafa laun hennar auk bifreiðahlunninda hækkað um tæp 82 prósent því að ákvörðun um þau færðust undan kjararáði þann 1. júlí 2017.
[links]Kjarninn hefur áður fjallað um mikla launahækkun forstjóra ríkisfyrirtækja eftir að kjör þeirra voru ekki lengur í höndum kjararáðs. Í kjölfarið fengu forstjórar ríkisfyrirtækja mikla kauphækkun, til að mynda hækkuðu mánaðarlaun forstjóra Landsvirkjunar úr 2 milljónum í 3,3 milljónir og mánaðarlaun forstjóra Isavia úr 1,7 milljónum í 2,4 milljónir
Samkvæmt frétt Fréttablaðsins segir bankaráð Landsbankans að laun bankastjórans hafi nú verið færð nær þeim kjörum sem almennt gilda fyrir æðstu stjórnendur fjármálafyrirtækja.

Á mynd hér að ofan sést þó að laun forstjóra ríkisfyrirtækja hafa hækkað umtalsvert borið saman við almenna launaþróun í landinu. Á árunum 2014-2018 hækkaði launavísitala Hagstofunnar um 36 prósent, en sú hækkun er um það bil fjórðungur af 140 prósent hækkun bankastjóra Landsbankans á sama tíma.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir