45 prósent álagning íslenskra banka - Það er ríkisins að hagræða

Fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins segir í grein í Frétta­blað­inu, að íslenska ríkið þurfi að beita sér fyrir hag­ræð­ingu og skil­virkni í banka­kerf­inu.

„Fram kemur í hvít­bók­inni að með­al­vextir útlána íslensku bank­anna voru í fyrra 5,8% en með­al­vextir skulda bank­anna 3,2%. Á því ári var því 2,6 pró­sentu­stiga munur á með­al­tals­vöxtum vaxta­ber­andi eigna og skulda íslenskra banka. M.ö.o var álagn­ing íslensku bank­anna 45% í fyrra. Háir vextir útlána bank­anna skýr­ast því að mjög stórum hluta af þess­ari háu álagn­ingu þeirra.“

Þetta segir dr. Sigurður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins, í grein í Frétta­blað­inu í dag, þar sem hann fjallar um hvít­bók um fram­tíð­ar­sýn fyrir fjár­mála­kerfið, sem kynnt var á dög­unum. Yfir­skrift grein­ar­innar er; Ríkið getur lækkað vexti.

Hann segir í grein­inni að það sé íslenska rík­is­ins að hag­ræða í banka­kerf­inu, þar sem það er eig­andi þess að stærstum hluta. Með því móti megi bæta kjör, stuðla að meiri skil­virkni og auka verð­mæta­sköpun í sam­fé­lag­inu.

„Í hvít­bók­inni er rætt um hvað skýri þessa álagn­ingu íslensku bank­anna. Samkvæmt nið­ur­stöð­unum skýrir rekstr­ar­kostn­aður, sem að helm­ingi er launa­kostn­aður, álagn­ing­una að mestu. Auk þess skýra sér­tækir skattar og tölu­vert miklar eig­in­fjár­kröfur álagn­ing­una.

Grein­ingin er áhuga­verð því hún sýnir hvaða leiðir megi fara til að lækka vexti hér á landi og bæta sam­keppn­is­hæfni íslensks efna­hags­lífs. Íslensku bank­arnir eru að mestu í eigu rík­is­ins auk þess sem ríkið mótar laga- og reglu­gerð­ar­um­gjörð þeirra. Það er rík­is­ins, sem eig­anda bank­anna, að beita sér fyrir því að hag­ræða og auka skil­virkni í banka­þjón­ustu og skapa þannig skil­yrði fyrir lægri inn­lendum vöxtum til hags­bóta fyrir íslensk fyr­ir­tæki og heim­ili,“ segir Sigurður.

Íslenska ríkið er 100 pró­sent eig­andi Íslands­banka og ríf­lega 98 pró­sent eig­andi Lands­bank­ans. Auk þess á ríkið Íbúða­lána­sjóð, og er þannig eig­andi og ábyrgð­ar­að­ili um 70 til 80 pró­sent af fjár­mála­kerfi lands­ins.

Sam­an­lagt eigið fé Íslands­banka og Lands­bank­ans er um 450 millj­arðar króna, og heild­ar­eignir bank­anna, aðal­lega útlán, upp á ríf­lega tvö þús­und millj­arða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár