Svíkja út gríðarlega háar fjárhæðir á Íslandi

Algeng­ustu fjár­svikin í dag eru svokölluð stjórn­enda­svik eða fyr­ir­mæla­fölsun, þar sem erlendum glæpa­mönnum tekst að plata fjár­mála­stjóra eða gjald­kera fyr­ir­tækja, félaga eða stofn­ana til að leggja fjár­muni inn á erlenda reikn­inga.

Svokölluð stjórn­enda­svik eða fyr­ir­mæla­fölsun, þar sem erlendum glæpa­mönnum tekst að plata fjár­mála­stjóra eða gjald­kera fyr­ir­tækja, félaga eða stofn­ana til að leggja fjár­muni inn á erlenda reikn­inga, eru algeng­ustu fjár­svikin á net­inu. Þetta kemur fram í frétt Morg­un­blaðs­ins í morgun.

Samkvæmt frétt­inni hefur lög­reglan ekki yfir­lit yfir umfangið, ekki einu sinni þau til­vik sem eru til­kynnt, en það skiptir örugg­lega hund­ruðum millj­óna.

Hákon Lennart Aakerlund, net­ör­ygg­is­sér­fræð­ingur hjá Lands­bank­anum, segir í sam­tali við Morg­un­blaðið að svik sem þessi hafi auk­ist mikið eftir að gjald­eyr­is­höftin voru afnumin. Að und­an­förnu hafi verið gerðar hnit­mið­aðar árásir á fyr­ir­tæki og íþrótta­fé­lög.

Einbeita sér að Íslandi núna

Hákon segir enn fremur að svika­til­raun­irnar komi í hrinum. Þjófarnir ein­beiti sér aug­ljós­lega að Íslandi núna en færi sig hratt á milli landa. Þeir noti einkum tvær aðferðir til að und­ir­búa svikin. Í fyrsta lagi leiti þeir á vef­síðum fyr­ir­tækja og félaga eftir upp­lýs­ingum um for­stjóra og fjár­mála­stjóra og hver ann­ist greiðslur, nöfnum og net­föngum.

Annars vegar geta þeir komið fyrir óværum í tölvum stjórn­enda, að sögn Hákonar. Ekki þurfi tækni­kunn­áttu eða að fjár­festa í dýrum bún­aði til að ná árangri, aðeins að vera góður í því að semja svika­pósta og senda sem víð­ast.

Svikararnir fagmenn

Í frétt­inni kemur jafn­framt fram að upp­lýs­ing­arnar séu not­aðar til að senda gjald­kerum eða fjár­mála­stjórum trú­verðug fyr­ir­mæli í nafni hátt­setts stjórn­anda um greiðslur inn á erlenda reikn­inga. Þetta séu gjarnan afar óform­leg tölvu­bréf og þá sett með að þau séu send úr síma til þess að afsaka smá­vægi­legar villur. Oft séu net­föngin höfð lík net­fangi við­kom­andi stjórn­anda. Beðið sé um að þetta sé gert fljótt og þrýst­ingnum haldið áfram með ítrek­unum.

Ef gjald­ker­inn fram­kvæmir greiðsl­una en svikin upp­götvast fjót­lega hefur bank­inn mögu­leika á að stöðva yfir­færsl­una til erlenda bank­ans. Sá tími telst í klukku­stundum. En ef búið er að leggja inn á erlenda reikn­ing­inn eru hverf­andi líkur á að hægt sé að ná pen­ing­unum til baka, segir í frétt Morg­un­blaðs­ins.

Þrjófarnir hafa stöðugan aðgang að reikn­ing­unum og milli­færa strax eitt­hvað annað og áfram eftir þörfum til að fela slóð­ina eða taka pen­ing­ana út í reiðufé. Þórir Ingv­ars­son, lög­reglu­full­trúi hjá Lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, segir í sam­tali við Morg­un­blaðið að svik­ar­arnir séu fag­menn á sínu sviði, noti útibú sem ekki er fylgst mikið með og feli slóð sína.

Íslenskt samfélag viðkvæmt gagnvart slíkum svikum

Þórir segir að íslenskt sam­fé­lag sé því miður nokkuð við­kvæmt gagn­vart slíkum svikum. Kostur sé að búa í litlu sam­fé­lagi en það bjóði jafn­framt upp á þá galla að stjórn­endur og fjár­mála­stjórar séu oft í miklum og óform­legum sam­skiptum. Svik­ar­arnir spili inn á það. Svikin fara fram hjá við­skipta­vinum bank­anna án aðkomu þeirra og bera bank­arnir ekki ábyrgð á þeim.

Í frétt Morg­un­blaðs­ins kemur enn fremur fram að við­skipta­bank­arnir hafi sér­staka heim­ild hjá sam­keppn­is­yf­ir­völdum til að vinna saman í bar­átt­unni við fjár­svik á net­inu. Þeir hafi sam­vinnu við lög­regl­una og séu með tengsla­net erlendis.

Númerum reikn­inga sem not­aðir eru í þessum svikum og öðrum upp­lýs­ingum sé safnað og þeim miðlað. Þannig tak­ist að stöðva margar til­raunir til svika. Stærsta fjár­hæðin sem þannig hafi tek­ist að koma í veg fyrir að færi til svik­ara var nærri 60 millj­ónir krónur.

Stórar eða litlar upp­hæðir geti haft slæm áhrif á fjár­hag fyr­ir­tækja og félaga, allt eftir aðstæðum. Þórir Ingv­ars­son segir við Morg­un­blaðið mik­il­vægt að fyr­ir­tæki, stofn­anir og félög sem oft sýsla með mikið fé hafi skýrt verk­lag um það hvernig greiðslur eru fram­kvæmdar. Ekki sé treyst á tölvu­póst ein­göngu heldur athugað á annan hátt hvort fyr­ir­mælin komi sann­ar­lega frá réttum aðila.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár