Stjórnarandstöðuflokkar hafna veiðigjaldafrumvarpinu

Formenn Sam­fylk­ing­ar­innar, Við­reisnar, Pírata og Flokk fólks­ins hafa lagt fram til­lögu um að veiði­gjalda­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar verði vísað frá þingi. Formenn Sam­fylk­ing­ar­innar, Við­reisnar og Pírata leggja fram þrjár breyt­ing­ar­til­lögur að frum­varp­inu

Formenn Sam­fylk­ing­ar­innar, Við­reisnar, Pírata og Flokk fólks­ins hafa lagt fram til­lögu um að veiði­gjalda­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar verði vísað frá þingi og að á sama tíma verði gengið út frá því að gild­andi lög verði fram­lengd og farið verði eftir ákvæðum þeirra til árs­loka 2019. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá for­mönnum flokk­ana.

„Veiði­gjalda­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar er ógagn­sætt og ber vott um hroð­virkn­is­leg vinnu­brögð. Því ber að vísa frá enda ótækt að veiði­gjöld á útgerð­ina lækki um fjóra millj­arða á sama tíma og gengið fellur og ekki er staðið við lof­orð til öryrkja, heil­brigð­is­stofn­ana og skóla.“ segir í til­kynn­ing­unni.

Segja ytri aðstæður hafa gjörbreyst

Samkvæmt til­kynn­ing­unni þykir for­mönnum stjórn­ar­and­stöðu flokk­anna það sorg­legt að rík­is­stjórnin ætli að keyra frum­varpið í gegn í ósátt. Í til­kynn­ing­unni segir að ljóst sé að ytri aðstæður hafi gjör­breyst meðal ann­ars vegna veik­ingu krón­unnar og nið­ur­skurði milli fjár­laga í vel­ferð­ar­málum sem, sam­kvæmt for­mönn­unum, gefur svig­rúmið sem þarf til að vinna málið áfram. For­menn­irnir segja það mik­il­vægt að vandað verði til verka við gerð frum­varps­ins og að nauð­syn­legt sé að lág­marks­sam­staða ríki um jafn mik­il­vægt mál og stjórn fisk­veiða þjóð­ar­innar og gjöld sem greidd eru fyrir nýt­ingu auð­lind­ar­innar. Gagnrýnt er í til­kynn­ing­unni að ekk­ert sam­ráð hafi verið haft við und­ir­bún­ing máls­ins, hvorki við þá sem starfa í grein­inni né við full­trúa ann­arra þing­flokka. Þá telja for­menn­irnir það algert ógagn­sæi ríkja um tölu­legar for­sendur til­lögu meiri­hlut­ans og um afleið­ingar breyt­ing­anna.

Í til­kynn­ing­unni kemur fram að for­svars­menn flokk­anna fjög­urra harma að rík­is­stjórnin vilji frekar stíga skref aft­urá­bak í flýti í stað þess að vinna að sam­eig­in­legum lausnum, almenn­ingi og sjáv­ar­út­veg­inum til hags­bóta. „Þessi vinnu­brögð þings­ins eru ekki til þess fall­inn að skapa rétt­læti fyrir þjóð­ina eða stöð­ug­leika fyrir grein­ina.“ segir jafn­framt í til­kynn­ing­unni

Leggja fram þrjár breytingar á frumvarpinu

Logi Ein­ars­son, Þor­gerður Katrín Gunn­ar­dóttir og Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir hafa fyrir hönd sinna flokka lagt fram þrjár breyt­ingar á frum­varp­inu. Breyt­ingar fela í sér að í fyrsta lagi verði vilji þjóð­ar­innar um eign­ar­hald fisk­veiði­auð­lind­anna sinna virtur og tekið verði fram með skýrum hætti að veiði­gjald sé greiðsla fyrir tíma­bundin afnot af sam­eig­in­legri fisk­veiði­auð­lind þjóð­ar­innar. Önnur breyt­ingin sem þau leggja fram er að nýt­ing­ar­réttur á auð­lind­inni verði gerður tíma­bund­inn, í sam­ræmi við ítrek­aðar nið­ur­stöður þverpóli­tískra starfs­hópa. Þriðja breyt­ingin er að tekjur af veiði­gjaldi, umfram þær sem þarf til að standa undir kostn­aði við stjórn og eft­ir­lit með veiðum, renni í Upp­bygg­ing­ar­sjóð lands­hlut­anna. Frá þessu er greint í til­kynn­ing­unni frá flokk­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

veiðigjöld

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár