Staða leigjenda erfið

Aðeins 8 pró­sent leigj­enda vilja vera á leigu­mark­aði, lang flestir vilja búa í eigin hús­næði en hafa ekki efni á því. Þriðj­ungur leigj­enda greiða meira en helm­ing ráð­stöf­un­ar­tekna sinna í leigu en leigu­verð á Íslandi hefur hækkað um 90 pró­sent á 7 árum.

Fáir vilja vera á leigu­mark­aði á Íslandi í dag eða aðeins 8 pró­sent leigj­enda. Lang­flestir leigj­endur vilja búa í eigin hús­næði, 86 pró­sent. ­Þrátt fyrir að nærri allir leigj­endur vilji búa í eigin hús­næði þá telja aðeins 40 pró­sent leigj­enda öruggt eða lík­legt að þeir kaupi sitt eigið hús­næði næst þegar skipt er um hús­næði. Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum nýrrar könn­unar á við­horfi leigj­enda á Íslandi sem unnin var af Zenter, að frum­­kvæði hag­­deildar Íbúða­lána­­sjóðs.

Meiri­hluti leigj­enda er á leigu­mark­aðnum af nauð­syn en ástæða þess að leigj­endur telji ekki lík­legt að þeir kaupi sitt eigið hús­næði næst þegar þeir skipta um hús­næði var af því þeir eiga ekki efni á því algeng­asta ástæð­an. Næst algeng­asta svarið var að þeir ættu ekki fyrir útborgun og að fast­eigna­verð væri of hátt.

Leiguverð hefur hækkað um 90 prósent á 7 árum

Leigu­verð hefur hækkað um 90 pró­sent síðan reglu­legar mæl­ingar á leigu­verði hófust árið 2011 en á sama tíma hefur íbúa­verð tvö­fald­ast og laun hækkað um 74 pró­sent.

Þegar rýnt var í það hvar fólk leigir kemur í ljós að mik­ill meiri­hluti leigir af ein­stak­lingum á almennum mark­aði, eða alls 35 pró­sent. Tæpur fjórð­ungur hjá leigir af ætt­ingjum og vinum og 16 pró­sent leigir af einka­reknum leigu­fé­lagi. 

Rúmlega 20 pró­sent leigj­enda á Íslandi telja frekar eða mjög lík­legt að þeir missi hús­næðið sitt og þeir sem leigja á almennum mark­aði telja það lík­legri. Þetta kemur fram í nýj­ustu við­horfskönnun Íbúð­ar­lána­sjóðs sem kom út í dag. Í nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar kom einnig fram að leigj­endur hafa að með­al­tali flutt 3,8 sinnum á síð­ustu 10 árum og 1,6 sinnum á síð­ustu 3 árum. Þeir sem eru með lægstu leig­una hafa flust oft­ast.

Leigumarkaðurinn

Leigu­mark­að­ur­inn á Íslandi telur um 30.000 heim­ili og á honum eru um 16–18 pró­sent lands­manna 18 ára og eldri.

Meiri­hluti leigj­enda er yngri en 35 ára. Fjöl­menn­asta ald­urs­hóp­ur­inn er 25 til 34 ára og heim­ils­tekjur meiri­hluta leigj­enda er á bil­inu 250 til 800 þús­und kr. á mán­uði. 

Staða leigjenda verri.

Árið 2016 var hlut­fall þeirra sem búa við íþyngj­andi hús­næð­is­kostnað meðal hús­næð­is­eig­enda aldrei verið jafn lágt síðan 2004. Munurinn á hlut­falli þeirra sem búa við íþyngj­andi hús­næð­is­kostnað eftir búsetu­formi hefur auk­ist frá 2008 og er þessi nið­ur­staða vís­bend­ing um að staða leigj­enda sé verri en staða hús­næð­is­eig­enda

Aðeins 57 pró­sent leigj­enda telja sig búa við hús­næð­is­ör­yggi á miðað við 94 pró­sent þeirra sem búa í eigin hús­næði. En 21 pró­sent leigj­enda telur það frekar eða mjög lík­legt að þeir missi hús­næðið sitt en 32 pró­sent leigj­enda sem búa á almennum mark­aði telja það lík­legt.

Framboð af íbúð­ar­hús­næði til leigu sem hentar ein­stak­lingum eða fjöl­skyldum þykir lítið, 79 pró­sent leigj­enda voru sam­mála um það.

Þriðjungur leigjenda greiða meira en helming ráðstöfunartekna sinna í leigu

Leigj­endur voru spurðir hversu háa fjár­hæð þeir greiddu fyrir leigu í júní­mán­uði 2018. Í ljós kom að með­alleigu­fjár­hæðin er 142.620 kr. á mán­uði og nán­ast óbreytt milli ára. Þriðj­ungur leigj­enda telja sig greiða meira en helm­ing ráð­stöf­un­ar­tekna í leigu sem er nokkurn veg­inn sama hlut­fall og fyrir ári síðan. Leigj­endur sjá fáa kosti við að leigja, 72 pró­sent segja helstu gall­ana við að leigja vera háa­leigu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár