Bjarni ekki farinn að hugsa um að hætta og telur Sjálfstæðisflokk geta náð fyrri styrk

Formaður Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir í við­tali við Þjóðmál að honum finn­ist merki­lega mikil nei­kvæði vera í umræðu um starf stjórn­valda og að hann hafi ekki verið til­bú­inn til að verða ráð­herra þegar hann sótt­ist eftir því árið 2007.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, seg­ist ekk­ert vera að hugsa um að hætta í stjórn­málum og telur að flokkur sinn geti náð fyrri styrk. Honum finnst líka merki­lega mikil nei­kvæðni vera áber­andi í umræð­unni um starf stjórn­valda þrátt fyrir að Ísland mælist fremst á meðal þjóða á ýmsa lífs­kjara­mæli­kvarða. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ítar­legu við­tali við Bjarna í nýút­komnu haust­hefti Þjóðmála.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mynd­aði rík­is­stjórn með Vinstri grænum og Fram­sókn­ar­flokknum eftir kosn­ing­arnar haustið 2017, eftir að rík­is­stjórn undir for­sæti Bjarna hafði sprungið með látum eftir ein­ungis um átta mán­aða setu.

[links]Frá því að Bjarni tók við stjórn­ar­taumunum í Sjálf­stæð­is­flokknum tæpum mán­uði fyrir þing­kosn­ing­arnar 2009 hefur flokk­ur­inn fengið 23,7 pró­sent (2009), 26,7 pró­sent (2013), 29 pró­sent (2016) og 25,3 pró­sent (2017). Árang­ur­inn 2009 var versta nið­ur­staða Sjálf­stæð­is­flokks­ins í sögu hans og sú sem kom upp úr kjör­köss­unum í fyrra nú næst­versta, en flokk­ur­inn var um ára­tuga­skeið með um og yfir 40 pró­sent fylgi. Hann hefur ein­ungis fimm sinnum í sög­unni fengið undir 30 pró­sent atkvæða, þar af fjórum sinnum í síð­ustu fjórum kosn­ingum.

Bjarni segir að tæki­færi Sjálf­stæð­is­flokks­ins liggi meðal ann­ars í því að vera kjöl­festa á umbrota­tímum. Fyrir því hafi hann fundið mjög sterkt 2016 enn að kosn­ing­arnar 2017 hafi verið um margt for­dæma­lausar. „Til fram­tíðar er það í okkar höndum hvernig fylgið þró­ast. Við getum náð fyrri styrk en við megum ekki gefa okkur í ina mín­útu að við eigum ein­hvern til­tek­inn stuðn­ing vísan.“

[adspot]Bjarni segir að of algengt sé að menn leiti til gam­alla slag­orða og bar­áttu­mála sem við til­teknar aðstæður voru grunnur að góðum stuðn­ingi. Hann segir að stuðn­ingur vinn­ist ekki með slag­orðum einum saman. „Þetta er annað sam­fé­lag í dag og aðrir kjós­endur. Maður heldur ekki þræði í sam­tali við kjós­anda nú með því einu að rifja upp ein­hverja hluti sem gerð­ust fyrir ein­hverjum ára­tugum.“

Ekki farinn að hugsa um að hætta

Bjarna finnst að þrátt fyrir að Ísland mælist reglu­lega fremst meðal þjóða á ýmsa lís­kjara­mæli­kvarða, að tek­ist hafi að laga skulda­stöðu rík­is­sjóðs og heim­ila og auka kaup­mátt um 25 pró­sent á fjórum árum sé merki­lega mikil nei­kvæðni áber­andi í umræðu um starf stjórn­valda. „Sumt af því finnst mér koma frá eldri kyn­slóð­inni, sem á köflum virð­ist telja að hér sé margt að fara aftur á bak. Að allt hafi verið svo miklu betra hér áður fyrr.“·

Í við­tal­inu við Þjóðmál er Bjarni spurður út í fram­tíð­ina í stjórn­málum. Hann hefur nú setið á þingi í 15 ár og verið for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í ára­tug í byrjun næsta árs. Bjarni segir að hann hafi verið í póli­tík mun lengur en hann sá fyrir sér og seg­ist hafa áttað sig á því þegar hann steig inn í fjár­mála­ráðu­neytið árið 2013 hversu mikil blessun það hafi verið fyrir hann að verða ekki ráð­herra fyrr. „Ég gerði kröfu til þess eftir kosn­ing­arnar 2007, þá 37 ára, að verða ráð­herra og hafði mik­inn metnað til þess. En ég veit að ég var lík­lega ekki til­bú­inn þá.“

Aðspurður um hversu lengi hann ætli að halda áfram í stjórn­málum segir Bjarni að á meðan að hann brenni fyrir verk­efnum sínum og þeim breyt­ingum sem hann vill sjá verða sé engin ástæða til að hætta. „Ég fékk góða kosn­ingu á síð­asta lands­fundi og ég hef haft þá reglu að setja verk­efni mín á hverjum tíma í for­gang og hleypa ekki hugs­unum um annað að. Ég held að um leið og ég færi að velta því fyrir mér hversu lengi ég ætl­aði að vera eða hvort ég ætti að fara að hætta og fara að gera eitt­hvað annað, þá fjar­aði kraft­ur­inn út í öll því sem ég er að gera í dag. Það er enn margt sem mig langar til að koma í fram­kvæmd og ég ætla því að geyma mér allar vanga­veltur um það hversu lengi ég held áfram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár