Um efnahagslegar afleiðingar Trumps

Hver verða áhrifin af efna­hags­stefnu Trumps fyrir umheim­inn? Hvað þýðir tolla­stríðið fyrir fyr­ir­tæki og þjóð­ríki? Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði, rýnir í breyt­ingar sem Donald Trump hefur leitt fram í valda­tíð sinni sem Banda­ríkja­for­seti.

Persóna Donald Trumps kemur oft fyrir í frétta­tímum sjón­varps­stöða þessa dag­ana og eru skoð­anir skiptar um ágæti for­set­ans. Hins vegar er mik­il­vægt að geta aðreint per­sónu hans og aðgerðir. Hvað hefur breyst með hinum nýja for­seta og hverjar eru lík­legar afleið­ingar gerða hans? Í við­tali við Financial Times fyrir nokkrum vikum lýsti Henry Kissen­ger því yfir að Trump væri hold­gerv­ingur breyttra tíma en ekki með­vituð orsök. Svo hvernig hefur heim­ur­inn breyst og af hverju er per­sóna Trump hold­gervin­ugur þess­ara breyt­inga?

Orsakir vinsælda forsetans

Stjórn­mál á Vestu­löndum hafa þró­ast á óvæntan hátt und­an­farin ár. Bretland á í deilum við önnur ríki Evr­ópu­sam­bands­ins um skil­mála brott­hvarfs úr Evr­ópu­sam­band­inu. Í Póllandi og Ung­verja­landi eru þjóð­ern­is­sinn­aðir hægri­flokkar við völd og á Ítalíu er komin rík­is­stjórn sem hefur efa­semdir um ágæti Evr­ópu­sam­starfs­ins og evr­unnar. Hægri­s­inn­aðir þjóð­ern­is­flokkar eru einnig vin­sælir í Hollandi, Frakk­landi, Svíþjóð og Þýska­landi og þótt þeir séu ekki við völd í þessum síð­ast­nefndu löndum þá setja vin­sældir þeirra stjórn­völdum skorður.

Stjórn­mála­hreyf­ing Trumps og sam­bæri­legar hreyf­ingar í Evrópu eiga sam­eig­in­leg þrenn ein­kenni. Í fyrsta lagi eru þau undir stjórn ein­stak­lings og sækja fylgi til per­sónu hans. Þessi ein­stak­lingur ákvarðar stefn­una og það er dóm­greind hans sem ræður en ekki sam­þykktir flokks­þinga. Í öðru lagi sýna stjórn­mála­hreyf­ing­arnar inn­lendum stofn­unu, alþjóða­sam­vinnu og alþjóða­sam­tökum litla virð­ingu. Hreyf­ing­arnar fara þannig á móti fjöl­miðlum, háskólum, fjár­mála­stofn­unum og alþjóða­sam­tökum, svo nokkur dæmi séu nefnd. Evr­ópu­sam­bandið verður oft fyrir gagn­rýni og árásum þess­ara aðila enda bygg­ist það á sam­vinnu þjóða og sam­eig­in­legu reglu­verki. Í þriðja lagi leggja þessir aðilar áherslu á hags­muni „inn­fæddra“ og þá ógn sem að þeim steðjar frá inn­flytj­endum og fólki sem hefur annað húð­lit, trú­ar­brögð eða venjur. Slíkar hreyf­ingar sem byggja á sterkum leið­toga, þjóð­ern­is­hyggju og and­ófi gegn ríkj­andi við­horfum og stofn­unum hafa verið kall­aðar „pop­ul­ískar“ af stjórn­mála­fræð­ingum.

Orsakir vin­sælda þjóð­ern­is­hreyf­ing­anna hafa verið rann­sak­aðar und­an­farin ár og hefur komið í ljós að fylgi þeirra má rekja til hópa kjós­enda sem van­treysta hinum hef­bundnu flokkum og hræð­ast breyt­ingar. Þessir kjós­endur eru yfir­leitt eldri, búsettir í stjál­býli, minna mennt­aðir og telja hags­munum sínum ógnað af inn­flutn­ingi vinnu­afls og alþjóða­við­skiptum. Þetta á einnig við í Banda­ríkj­unum. Hlut­skipti hvíta minni­hlut­ans í Banda­ríkj­unum sem ekki hefur háskóla­próf er ekki gott. Dán­ar­tíðni innan hóps­ins hefur farið hækk­andi um nokk­urt skeið, þannig eru dán­ar­líkur fimm­tugs hvíts manns sem ekki hefur háskóla­próf nú hærri en föður hans þegar hann var á sama aldri. Ástæðuna má rekja til lyfja­nokt­unar, mis­notk­unar á áfengi og sjálfs­morða. Þannig hafa hvítir Banda­ríkja­menn sem ekki hafa háskóla­próf það að jafn­aði slæmt og verra en kyn­slóð for­eldra hafði það. Á meðan for­eldrar, afar og ömmur höfðu betur launuð störk í iðn­aði þá þarf núlif­andi kyn­slóð að láta sér nægja lágt launuð störf í þjón­ustu­geir­anum. Heilsu­kvillar er algengir, t.d. er tíðni krónískra verkja há, og lyfjum er þá beitt til þess að bæta líðan, t.d. opi­odar og heróín. Lyfja­mis­notkun fylgir oft í kjöl­farið.

Áhyggjur af vax­andi veldi Kína hafa einnig aukið vin­sældir Trumps. Sú von að frjáls alþjóða­við­skipti auki frelsi og mann­rétt­indi í Kína hefur ekki ræst og vax­andi her­veldi Kína er farið að ógna alþjóð­legum skipa­leiðum. Við­skipta­halli Banda­ríkj­anna gagn­vart Kína nam 375 millj­örðum doll­ara árið 2017 en þá fluttu Banda­ríkin út vörur og þjón­ustu til Kína fyrir 130 milljar­aða á meðan Kín­verjar flutti vörur til Banda­ríkj­anna fyrir 506 millj­arða doll­ara. Unnt er að reikna út hversu mörg störf hafa tap­ast í Banda­rískum iðn­aði vegna inn­flutn­ings á iðn­varn­ingi frá Kína og skipta þau nokkrum millj­ónum.

Aðgerðir Trumps

Hingað til hafa ákvarð­anir og stefna Trumps haft áhrif á sviði dóms­mála, alþjóða­við­skipta, skatta og reglu­verks.

Rík­is­stjórn Trump hefur skipað fjölda hægri­s­inn­aðra dóm­ara í emb­ætti. Nú stendur til að skipa nýjan hæsta­rétt­ar­dóm­ara en skipan Brett Kavin­augh gæti, m.a., orðið til þess að afnema rétt kvenna til fóst­ur­eyð­inga. Áhrifa emb­ætt­is­veit­ing­anna mun gæta um langa fram­tíð.

Skattar á fyr­ir­tæki og hátekju­fólk hafa verið lækk­aðir, einkum á fyr­ir­tæki sem eiga í fast­eigna­við­skiptum. Þessi skatta­lækkun magnar upp­sveiflu efna­hags­lífs­ins þegar til skamms tíma er litið en eykur skuldir rík­is­sjóðs mikið þegar lengri tíma er litið. Skatta­lækk­an­irnar hafa aukið hag­vöxt og skýra að hluta af hverju efna­hags­líf­inu gengur vel um þessar mundir.

En skatta­lækk­an­irnar hafa sína skugga­hlið. Skulda­staða rík­is­sjóðs er bág og fer ört versn­andi. Skuld­irnar eru nú rúm­lega ein lands­fram­leiðsla og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn spáir því að rík­is­skuldir muni vaxa meira í Banda­ríkj­unum en í öðrum þró­uðum ríkjum næstu árin, aukast um 8.9% af vergri lands­fram­leiðslu fram til árs­ins 2023. Á næstu þremur árum mun halli á rík­is­sjóði Banda­ríkj­ann nema einni trilljón doll­ara. Þessi halla­rekstur hefur tvenns konar áhrif. Í fyrsta lagi verður meiri spenna í hag­kerf­inu þegar til skemmri tíma er litið sem kallar á hærri vexti og sterk­ari dollar. Þetta mun engan veg­inn hjálpa hvítum Banda­ríkja­mönnum vegna þess að útflutn­ingur iðn­að­ar­vara verður erf­ið­ari, sam­keppn­is­staða verri. Í öðru lagi verða skuldir rík­iss­ins hærri þegar hag­kerfið fer í næstu kreppu og þá erf­ið­ara að bregð­ast við krepp­unni með því að slaka á aðhaldi í rík­is­fjár­málum eins og gert var árin 2008 og 2009.

Rík­is­stjórn Trump hefur lagt á tolla á inn­flutn­ing frá Kína, Kanada og Evr­ópu­sam­band­inu. Nú í vik­unni voru lagðir tollar á 200 millj­arða doll­ara inn­flutn­ing frá Kína. Þessi lönd hafa síðan svarað í sömu mynt. Með toll­unum á að minnka við­skipta­halla Banda­ríkj­anna við Kína og flytja störf frá Kína til Banda­ríkj­anna. Ekki er lík­legt að toll­arnir bæti hag Banda­ríkj­anna. Í fyrsta lagi er veru­legur hluti af inn­flultn­ingi frá Kína fram­leiddur af banda­rískum fyr­ir­tækjum í Kína sem þá nota ódýrt vinnu­afl. Farsímar Apple fyr­ir­tæk­is­ins eru fram­leiddir í Kína og verða þá tollar til þess að hækka verð á þeim fyrir banda­ríska neyt­endur. Í öðru lagi geta banda­rísk fyr­ir­tæki brugð­ist við toll­unum með því að flytja fram­leiðslu til þriðja ríkis, t.d. Víetnam. Í þriðja lagi gætu þau flutt fram­leiðsl­una til Banda­ríkj­anna en látið vélar og tölvur um fram­leiðsl­una en ekki inn­lent vinnu­afl.

Það sem mestu máli skiptir er þó að við­skipta­halli þjóðar felur í sér að hún eyðir um efni fram, þjóð­ar­út­gjöld eru meiri en þjóð­ar­fram­leiðsla. Tollar breyta hér engu um. Við­skipta­halli Banda­ríkj­anna minnkar ein­ungis ef Banda­ríkja­menn fara að spara meira, opin­ber sparn­aður er auk­inn eða fjár­fest­ing minnkar. Minni sparn­aður í við­skipta­löndum hefur sömu áhrif, aukin útgjöld í Þýska­landi, svo dæmi sé tekið, myndi minnka við­skipta­af­gang þess lands og þá einng við­skipta­halla Banda­ríkj­anna, sparn­aður í síð­ar­nefnda land­inu myndi aukast. Skatta­lækk­anir Trumps minnka opin­beran sparnað sem að öðru óbreyttu eykur á við­skipta­hall­ann.

Höfundur er pró­fessor í hag­fræði. Lengri og ítar­legri útgáfa af grein­inni birt­ist í Vís­bend­ingu sem kom til áskrif­enda í dag, 28. sept­em­ber. Hér er hægt að ger­ast áskrif­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár