Stór hluti skýrslu um Samgöngustofu gerður ólæsilegur

Stór hluti af áfanga­skýrslu starfs­hóps sam­göngu­ráðu­neyt­is­ins um störf og starfs­hætti Sam­göngu­stofu er svertur svo ekki er hægt að lesa hvað þar stendur. Ráðu­neytið hefur ekki svarað spurn­ingum Kjarnans um hvað veldur.

Stór hluti af áfanga­skýrslu starfs­hóps sam­göngu­ráðu­neyt­is­ins um störf og starfs­hætti Sam­göngu­stofu er svertur svo ekki er hægt að lesa hvað þar stendur.

Um er að ræða að mestu kafla hóps­ins um stjórnun stofn­un­ar­innar, í yfir­kafla sem nefn­ist „Helstu athuga­semdir sem starfs­hópnum bár­ust“.

Í læsi­legum hluta kafl­ans segir að mik­il­væg­ustu ábend­ing­arnar sem starfs­hópnum hafi borist lúti að fjár­mögnun stofn­un­ar­innar sem ekki hafi fengið að nýta til fulls tekjur sínar af þjón­ustu­gjöldum til að bregð­ast við stór­auknum verk­efnum, einkum vegna auk­ins inn­flutn­ings öku­tækja. Einnig hafi athuga­semdir beinst að áherslum í rekstri og stjórnun.

Sér­stak­lega er tekið fram að mikið álag sé á starfs­fólki og starfs­á­nægja tak­mörkuð af þeim sökum.

Kjarninn krafði sam­göngu­ráðu­neytið um rök­stuðn­ing fyrir því af hverju svo stór hluti skýrsl­unnar sé gerður ólæsi­legur. Ekki hafa borist svör að svo stöddu.

Morg­un­blaðið hefur fjallað ítar­lega um starfs­hóp­inn og skýrsl­una sem Jón Gunn­ars­son, þáver­andi sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, setti í mars 2017 á stofn sem átti að vinna grein­ingu á verk­efn­um Sam­göngu­stofu. Starfs­hóp­ur­inn skil­aði af sér umræddri áfanga­skýrslu í októ­ber á síð­asta ári en síðan ekki sög­una meir.

Í sam­tali við Morg­un­blaðið sagði Sigurður Kári Krist­jáns­son lög­maður og for­maður starfs­hóps­ins að hóp­ur­inn hafi gert athuga­semdir við ýmis­legt í innri starf­semi og stjórnun Sam­göngu­stofu. Öll þau atriði hafi verið til­greind og rök­studd ítar­lega en í kjöl­farið hafi ráðu­neytið ekki óskað eftir því að starfs­hóp­ur­inn legði af mörgum frek­ari vinnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár