WOW air búið að ljúka skuldabréfaútboði – náðu 50 milljónum evra

Skulda­bréfa­út­boði WOW air er lokið. 50 millj­ónir evra hafa þegar verið seldar úr skulda­bréfa­flokknum en til stendur að selja 10 millj­ónir evra í við­bót.

Skulda­bréfa­út­boði WOW air er lokið. Í til­kynn­ingu kemur fram að stærð skulda­bréfa­flokks­ins nemi 60 millj­ónum evra, þar af 50 millj­ónir evra sem þegar hafa verið seldar og 10 millj­ónir evra sem verða seldar fjár­festum í fram­haldi af útboð­inu. Skulda­bréfa­flokk­ur­inn er til þriggja ára og vextir eru níu pró­sent ofan á þriggja mána Euribor vexti, en þó aldrei lægri en níu pró­sent skyldu þeir vextir verða nei­kvæðir. Auk þess eru lagðar fram ábyrgðir sem eru ekki til­greindar sér­stak­lega.

Þar segir enn fremur: „Pareto Securities hefur fyrir hönd WOW air umsjón með skulda­bréfa­út­boð­inu ásamt Arctica Finance. Bréfin verða gefin út með raf­rænum hætti í Vær­dipap­ir­sentra­len ASA í Noregi og verða í kjöl­farið skráð til við­skipta í Nasdaq kaup­höll­inni í Stokk­hólmi. Þátt­tak­endur voru bæði inn­lendir og erlendir fjár­festar.“

Skúli Mogensen, for­stjóri og eig­andi WOW air, segir að nið­ur­staðan sé mikil hvatn­ing og þakkar fyrir þann góða stuðn­ing sem félagið hafi fengið í „gegnum þetta ferli sem og öllum þeim sem tóku þátt í útboð­inu.“

Sér­stak­lega er tekið fram í til­kynn­ingu frá WOW air að engin við­töl verði veitt að svo stöddu. Engar upp­lýs­ingar eru um hverjir keyptu þau skulda­bréf sem þegar hafa verið seld.

Ætla að skrá sig á markað

Skúli fór í við­tal við Financial Times í gær þar sem hann sagði að WOW air ætl­aði að safna um 200 til 300 millj­ónum doll­ara, eða 22 til 33 millj­örðum íslenskra króna, í nýtt hlutafé í hluta­fjár­út­boði sem fyr­ir­tækið ætlar að ráð­ast í á næstu tveimur árum.

WOW air hefur ráðið Arion banka og Arctica Finance til að hefja und­ir­bún­ing að skrán­ingu hluta­bréfa félags­ins innan 12-18 mán­aða, bæði hér­lendis og erlendis. Arion banki er einnig á meðal kröfu­hafa WOW air.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár