Seðlabankinn greip inn í á gjaldeyrismarkaði og veiking gekk til baka

Gengi krón­unnar gagn­vart helstu myntum hafði veikst hratt í dag.

Seðla­banki Íslands greip inn við­skipti á gjald­eyr­is­mark­aði í dag, og gekk hröð veik­ing krón­unnar gagn­vart helstu alþjóð­legu myntum, að mestu til baka eftir það, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Frétta­blaðið greindi fyrst frá þessu á vef sínum.

Nokkurs titr­ings hefur gætt á mark­aði í dag, og hafa hluta­bréf fallið í verði - hjá öllum félögum nema Icelandair. Gengi bréfa Icelandair hefur hækkað um 9,21 pró­sent en öll önnur félög hafa lækkað í verði, á bil­inu 0,5 til 4,5 pró­sent, en mest hefur lækk­unin verið á bréfum N1, eða um 4,47 pró­sent.

Svo virð­ist sem fjár­festa hafi áhyggjur af því að flug­fé­lagið WOW Air lendi í vand­ræðum með að ljúka fjár­mögnun upp á 50 til 100 millj­ónir evra, eins og að hefur verið stefnt.

Eins og greint var frá á vef Kjarnans í gær­kvöldi, hefur gengi krón­unnar veikst nokkuð að und­an­förnu. Evran kostar nú um 131 krónu og Banda­ríkja­daldur 113,5 krónur. Í dag var gengi krón­unnar gagn­vart þessum myntum búið að veikj­ast tölu­vert meira, en Banda­ríkja­dalur var kom­inn í 115,7 krónur og evran í tæp­lega 135 krónur, áður en Seðla­bank­inn greip inn í með við­skiptum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár