Eðlilegt að spyrja hvort talsmenn stóriðjunnar hafi skipað sér í fremstu röð í deilunni

Fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra segir mis­skiln­ings gæta um þriðja orku­pakk­ann svo­kall­aða frá Evr­ópu­sam­band­inu.

Björn Bjarna­son, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir mis­skiln­ings gæta hjá þeim sem segja hinn svo­kall­aða orku­pakka 3 frá Evr­ópu­sam­band­inu geta opnað á að yfir­ráð yfir orku­auð­lindum fari til Brussel. 

Hann segir Alþingi ráða ferð­inni og að engin yfir­ráð fari til Brussel þó orku­pakk­inn verði form­lega sam­þykktur, en það hefur þó ekki verið gert enn.

Á Facebook síðu Björns hafa verið líf­legar umræður um færslu hans á síðu sinni, þar sem hann fjallar um útúr­sning vegna EES, þar sem orku­pakk­inn svo­nefndi er til umræðu. Í skrifum á Facebook síðu sinni segir Björn meðal ann­ars: „Að sjálf­sögðu ber stjórn­völdum að setja allar trygg­ingar og gera ráð­staf­anir til að verja auð­lind­ina, þau hafa fulla heim­ild til þess. Lítum til þess að stóru hags­mun­irnir í íslenska raf­orku­kerf­inu eru samn­ing­arnir við stór­iðju, sem kaupir 80% af raf­magn­inu. Aðildin að EES leiðir til þess að verð undir mark­aðs­verði eru bönnuð, sem hefur fært Íslandi tugi millj­arða á ári í hærra orku­verði. Við getum auð­vitað ímyndað okkur að við hefðum samið um þau hvort sem er, en að hafa ESA sem svipu hefur ekki skaðað og nær örugg­lega hjálpað,við að knýja fram hærri verð. Með því að hafna 3. orku­pakk­anum ýtum við þessu aðhaldi á brott. Þess vegna er eðli­legt að spurt sé hvort tals­menn stór­iðju­fyr­ir­tækja hafi skipað sér í fremstu röð í þess­ari deilu. Næsta verk­efni er lík­lega að greina það ef eng­inn gefur sig fram,“ segir Björn meðal ann­ars.

Innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur orku­pakk­inn verið til umræðu, og var meðal ann­ars fjöl­mennur fundur 30. ágúst síð­ast­lið­inn sem hverfa­fé­lög Sjálf­stæðis­flokks­ins í Smá­í­búða-, Bú­staða- og Foss­vogs­hverfi og Hlíða- og Holta­hverfi í Reykja­vík­ur boð­uðu til í kvöld í aðal­sal Val­hall­ar, höf­uð­stöðva flokks­ins.

Mikl­ar umræður urðu á fund­in­um, sam­kvæmt frá­sögn mbl.is, um fyr­ir­hug­aða sam­þykkt á þriðja orku­pakka Evr­ópu­sam­bands­ins hér á landi í gegn­um aðild Íslands að EES-samn­ingn­um. Bor­in var upp álykt­un á fund­in­um þar sem skorað var á for­ystu Sjálf­stæðis­flokks­ins að sam­þykkja ekki orku­pakk­ann þegar hann kæmi til af­greiðslu á Alþingi og var hún sam­þykkt mót­atkvæða­laust, en álykt­un­in var svohljóð­andi, sam­kvæmt frétt mbl.is:

„Fund­ur­inn skor­ar ein­dregið á for­ystu Sjálf­stæðis­flokks­ins að hafna þriðja orku­pakka Evr­ópu­sam­bands­ins á þeim grunni að hann stang­ast á við ákvæði stjórn­ar­skrár­inn­ar, opn­ar Evr­ópu­sam­band­inu leið til yf­ir­ráða yfir einni helstu auð­lind Íslands og hækk­ar verð á raf­orku og af­leið­ing­ar til langs tíma eru óviss­ar.“

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra skip­aði Björn Bjarna­son for­mann starfs­hóps á dög­unum sem falið verður það hlut­verk að vinna skýrslu um aðild Íslands að Evr­ópska efna­hags­svæð­inu (EES).

Auk Björns sitja í hópnum þær Kristrún Heim­is­dótt­ir, lög­fræð­ingur og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Sam­taka iðn­að­ar­ins, og Berg­þóra Hall­dórs­dótt­ir, lög­fræð­ingur hjá Sam­tökum atvinnu­lífs­ins og erind­reki um sam­starf atvinnu­lífs­ins og utan­rík­is­þjón­ust­unn­ar. Þá fær hóp­ur­inn starfs­mann sem hefur aðsetur í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár