Vinstri græn ekki mælst lægri frá 2015

Fylgi Vinstri grænna hefur ekki mælst lægri frá 31. des­em­ber 2015 og stuðn­ingur rík­is­stjórn­ina fer fyrir neðan 50 pró­sent í fyrsta skiptið í Þjóð­ar­púlsi Gallup.

Formenn ríkisstjórnarflokkanna þriggja.
Formenn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Stuðn­ingur við Vinstri græna og rík­is­stjórn­ina dalar, en rík­is­stjórnin nýtur í fyrsta skipti stuðn­ings minni­hluta kjós­enda ásamt því að fylgi VG hefur ekki mælst minni frá 31. des­em­ber 2015. Þetta kemur fram í nýjum þjóð­ar­púlsi Gallup.

Fylgi Vinstri grænna mælist í 10,7 pró­sentum og hefur lækkað um 0,8 pró­sentu­stig milli mán­aða. Með því hefur fylg­is­aukn­ing flokks­ins í kjöl­far birt­ingar Panama­skjal­anna árið 2016 horfið og stuðn­ingur við hann ekki mælst lægri síðan í árs­lok 2015, en þá var fylgi hans um 10,2 pró­sent.

Sömu­leiðis hefur stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina minnkað, en hann mælist nú í 49,7% sem eru lægstu stuðn­ings­tölur sem mælst hafa fyrir þessa rík­is­stjórn. Stuðn­ing­ur­inn lækkar úr 54 pró­sentum frá síð­asta mán­uði, en í fyrsta Þjóð­ar­púlsi Gallup mæld­ist hann í 74 pró­sentum.

Samkvæmt þjóð­ar­púls­inum eru stærstu hreyf­ing­arnar á fylgi flokka innan Við­reisnar, en flokk­ur­inn lækkar um tæp­lega tvö pró­sentu­stig milli mán­aða og mælist nú í um 8,7 pró­sentum. Samhliða því eykst fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar um tæp­lega tvö pró­sentu­stig, eða úr 15 pró­sentum upp í 16,7 pró­sent.

Fylgi ann­arra flokka breyt­ist lít­il­lega, en fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins mælist í 24,6 pró­sentum, Pírata í 13,9 pró­sentum, Fram­sókn­ar­flokks­ins í 9,2 pró­sentum, Mið­flokks­ins í 8,6 pró­sentum og Flokks fólks­ins í sléttum 6 pró­sentum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár