Gera ráð fyrir mannmergð í ÁTVR fyrir verslunarmannahelgi

Í fyrra seld­ust um 767 þús­und lítrar af áfengi og um 137 þús­und við­skipta­vinir komu í Vín­búð­irnar vik­una fyrir versl­un­ar­manna­helgi.

Vikan fyrir versl­un­ar­manna­helgi er jafnan ein anna­samasta vika árs­ins í Vín­búð­unum. Í fyrra seld­ust um 767 þús­und lítrar af áfengi og um 137 þús­und við­skipta­vinir komu í Vín­búð­irnar þessa viku. Til sam­an­burðar má gera ráð fyrir að um 110 þús­und við­skipta­vinir komi að jafn­aði í Vín­búð­irnar í hverri viku í júlí. Þetta kemur fram í frétt á heima­síðu ÁTVR.

„Reynslan sýnir að flestir við­skipta­vinir koma í Vín­búð­ina föstu­dag­inn fyrir versl­un­ar­manna­helgi sem er jafnan einn anna­samasti dagur árs­ins. Í fyrra seld­ust 230 þús­und lítrar þann dag og fjöldi við­skipta­vina var um 38 þús­und. Flestir við­skipta­vinir koma á milli kl. 16 og 18, eða allt að 6.400 við­skipta­vinir á klukku­stund. Þar sem álagið er mest er algengt að grípa þurfi til þess ráðs að hleypa við­skipta­vinum inn í hollum.“

ÁTVR beinir því til við­skipta­vina sinna sem vilja forð­ast langar biðraðir að vera tím­an­lega. Flest bendi til þess að við­skipta­vina­fjöldi fyrir versl­un­ar­manna­helgi í ár verði svip­aður og í fyrra. Í Vín­búð­unum er opið um versl­un­ar­manna­helg­ina á föstu­degi og laug­ar­degi en lokað sunnu­dag og mánu­dag (frí­dag versl­un­ar­manna)

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verslunarmannahelgi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár