Samkaup kaupir allar Iceland verslanir og fimm 10-11 búðir

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur tekið til rann­sóknar sam­keppn­is­leg áhrif sam­runa vegna kaupa Samkaupa á alls eignum 14 versl­ana af Basko versl­unum.

Samkaup hf. hyggst kaupa allar versl­anir Iceland af félag­inu Basko versl­anir ehf. Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur tekið til rann­sóknar sam­keppn­is­leg áhrif sam­runa vegna kaupa Samkaupa á alls eignum 14 versl­ana af Basko versl­unum. Auk Iceland versl­an­ana eru í sam­run­anum fimm versl­anir 10-11 og tvær Háskóla­búðir.

Í til­kynn­ingu frá eft­ir­lit­inu segir að þar sem um sé að ræða sam­runa á mörk­uðum sem varða almenn­ing miklu hefur Sam­keppn­is­eft­ir­litið ákveðið að óska opin­ber­lega eftir sjón­ar­miðum almenn­ings og fyr­ir­tækja um áhrif sam­run­ans á sam­keppni.

„Til að gefa almenn­ingi og öðrum hag­að­ilum kost á að kynna sér málið hefur Sam­keppn­is­eft­ir­litið birt sam­runa­til­kynn­ingu máls­ins á heima­síðu sinni,“ segir í til­kynn­ingu frá eft­ir­lit­inu.

Þær versl­anir sem Samkaup hyggst kaupa eru:

Iceland Við Engi­hjalla í Kópavogi

Iceland við Vest­ur­berg í Reykja­vík

Iceland við Arn­ar­bakka í Reykja­vík

Iceland í Glæsibæ í Reykja­vík

Iceland við Stað­ar­berg í Hafn­ar­firði

Iceland við Hafn­ar­götu í Reykja­nesbæ

Iceland í Kaupangi á Akureyri

10-11 við Hjarð­ar­haga í Reykja­vík

10-11 í Grímsbæ í Reykja­vík

10-11 við Laugalæk í Reykja­vík

10-11 við Borg­ar­tún í Reykja­vík

Háskóla­búðin við Mennta­veg í Reykja­vík

Háskóla­búðin við Egg­erts­götu í Reykja­vík

Eftir við­skiptin munu Basko versl­anir áfram reka 18 versl­anir undir nafn­inu 10-11 auk versl­un­ar­innar Kvosar­innar, Inspired by Iceland versl­unar og veit­inga­stað­ar­ins Bad Boy Burgers & Grill. Basko á einnig 50 pró­sent í félag­inu Eldum rétt ehf.

Velta Samkaupa árið 2017 var 25.570 millj­ónir króna en velta Basko versl­ana var 9.528 millj­ónir.

Í mál­inu ber Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu að rann­saka hvort við­kom­andi sam­runi hindri virka sam­keppni með því að mark­aðs­ráð­andi staða eins eða fleiri fyr­ir­tækja verði til eða slík staða styrk­ist, eða að sam­keppni á mark­aði rask­ist að öðru leyti með umtals­verðum hætti.

Við rann­sókn­ina hefur Sam­keppn­is­eft­ir­litið m.a. til skoð­unar hver stað­bundin áhrif sam­run­ans kunna að vera á svæðum þar sem keppi­nautum mun fækka í kjöl­far sam­run­ans. Hefur Sam­keppn­is­eft­ir­litið sér­stak­lega til skoð­unar hvort þeir keppi­nautar sem eftir standa á til­teknum svæðum muni veita sam­runa­að­ilum nægi­legt sam­keppn­is­legt aðhald í kjöl­far sam­run­ans. Í þessu sam­hengi horfir Sam­keppn­is­eft­ir­litið m.a. til dag­vöru­mark­aðar á Akureyri og í Reykja­nesbæ. Einnig horfir Sam­keppn­is­eft­ir­litið til mögu­legra áhrifa á til­teknum svæðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár