Barnafjölskyldur og millitekjufólk með verri skuldastöðu

Skulda-og greiðslu­byrði hjóna með börn og með­al­háar tekjur er hærri en ann­arra sam­kvæmt nýjum tölum Hagstofu.

Skuldahlutfall barnafjölskyldna er mun hærra en hlutfall barnlausra hjóna
Skulda­hlut­fall barna­fjöl­skyldna er mun hærra en hlut­fall barn­lausra hjóna Mynd: Birgir Þór Harðarson

Skuldir barna­fjöl­skyldna í hlut­falli við tekjur þeirra eru allt að sex sinnum hærri en skulda­hlut­fall barn­lausra hjóna. Þetta kemur fram í nýjasta hefti Hag­tíð­inda, en þær eru hluti af töl­fræði­verk­efni um skuldir heim­il­anna sem stjórn­völd fólu Hag­stof­unni.

Í töl­unum kemur fram að skulda­staða heim­il­anna hefur batnað tölu­vert á síð­ustu þremur árum, en fjöl­skyldum með lága greiðslu­byrði og lágt hlut­fall skulda af tekjum hefur farið fjölg­andi frá árinu 2015. Á tíma­bil­inu hafði rúm­lega helm­ingur fjöl­skyldna lága greiðslu­byrði, sem sam­svarar undir 10% af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum. Í ár nálg­að­ist það hlut­fall svo 60%.

Með því að skoða greiðslu­byrði eftir fjöl­skyldu­gerð fást svo ítar­legri upp­lýs­ingar, en nær 60% hjóna án barna flokk­ast með lága greiðslu­byrði. Til sam­an­burðar er um þriðj­ungur hjóna með börn í sömu sporum, þ.e. með greiðslu­byrði sem sam­svarar 0-10% af ráð­stöf­un­ar­tekjum.

Sé skulda­staða sem hlut­fall af tekjum skoðuð eftir fjöl­skyldu­gerð sést munur milli barna­fjöl­skyldna og barn­lausra hjóna enn betur. Algeng­ast er að hjón án barna séu með skulda­stöðu á bil­inu 0-50% sem hlut­fall af ráð­stöf­un­ar­tekjum en algeng­ast er að hjón með börn hafi skulda­stöðu sem nemur um 100-300% af þeirra ráð­stöf­un­ar­tekjum.

Ung hjón og ellilífeyrisþegar skýringin

Ein ástæða fyrir mis­ræmi þess­ara tveggja hópa gæti verið sú að hjón með börn eru lík­legri til að búa í stærra hús­næði. Auk þess sam­anstendur hópur barn­lausra hjóna meðal ann­ars af ungu fólki sem býr í ódýr­ara hús­næði og eldri hjónum sem greitt hafa skuldir sínar.

Í Hag­tíð­indum er skulda­staðan einnig flokkuð eftir tekju-og eigna­tí­undum, en þar kemur fram að hæsta skulda- og greiðslu­byrðin er meðal milli­tekju­fólks. Byrði lág­tekju­fólks sé að jafn­aði minni, en skýr­ingin á því gæti verið sú að þeir tekju­lægri séu eftir sem áður ann­ars vegar ungt fólk sem geti búið í smærri heim­ilum og elli­líf­eyr­is­þegum sem skulda lítið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skuldir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár