Segir hættur steðja að heimshagkerfinu

Pró­fessor í hag­fræði bendir á ýmis hættu­merki í heims­búsk­anum sem gætu komið annarri kreppu af stað í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Gylfi Zoëga, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands.
Gylfi Zoëga, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands. Mynd: Kjarninn.

Gylfi Zoëga, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands, segir óveð­urs­ský liggja á sjón­deild­ar­hringnum sem gætu valdið nýrri kreppu á alþjóða­vísu. Jafn­framt segir hann heim­inn minna til­bú­inn í efna­hags­legar svipt­ingar nú og hann var fyrir ára­tug síðan, en bætir þó við að Ísland standi betur að vígi en flest önnur lönd. Þetta kemur fram í ítar­legri grein Gylfa í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar sem kom út í gær.

Í grein sinni skrifar Gylfi um stöðu efna­hags­mála í heim­inum í dag, en sam­kvæmt honum hefur hún vænkast á und­an­förnum tíu árum með auknum hag­vexti og meira eft­ir­liti með fjár­mála­stofn­unum. Hins vegar séu ýmis við­vör­un­ar­ljós í hag­kerfum Vest­ur­landa og nýmark­aðs­ríkja farin að blikka, einkum vegna auk­innar skuld­setn­ingar, vaxta­muna­við­skipta og póli­tískra átaka.

Skuldir og vaxtamunir

Gylfi segir þær aðgerðir sem ráð­ist var í í kjöl­far fjár­málakrepp­unnar árin 2007 og 2008 hafi virkað til að við­halda fram­leiðslu-og atvinnustigi, en ein­ungis slegið afleið­ingum hennar á frest með auk­inni skuld­setn­ingu. Nú, þegar örv­un­ar­að­gerðir banda­ríska seðla­bank­ans eru á enda og vaxta­hækk­anir vænt­an­legar, skapi skuld­setn­ingin vanda­mál fyrir önnur lönd sem tekið hafa lán í Banda­ríkja­dölum.

Þessi lönd séu að miklu leyti nýmark­aðs­ríki með hag­kerfi sem eru mörg hver enn að skreppa saman, en vaxta­hækkun Banda­ríkja­dals­ins myndi neyða þau til að hækka sína inn­lendu vexti og þrengja enn frekar að efna­hag sínum. Nokkur lönd hafi nú þegar lent í vanda vegna hækk­unar doll­ara­vaxta, til að mynda Argent­ína og Tyrkland. Líklegt er svo að Brasilía og Suður-Afríka bæt­ist í hóp þess­ara landa sem eru á barmi fjár­málakreppu í náinni fram­tíð.

Aukin skuld­setn­ing felur einnig í sér vanda­mál á Vest­ur­löndum, en yfir­vof­andi vaxta­hækk­anir gæti sprengt fast­eigna­bólur á mörgum stöðum og leitt þannig til auk­innar skulda­byrði heim­ila og gjald­þroti banka.

Pólitísk og efnahagsleg óvissa

Vegna auk­innar skuld­setn­ingar ríkj­anna gætu óvæntir atburðir í póli­tík eða efna­hags­málum snúið gæfu þeirra við og hrundið af stað nýrri kreppu. Nýlegar tolla­hækk­anir rík­is­stjórnar Banda­ríkj­anna auk við­bragða Kína og Evr­ópu­sam­bands­ins við þeim gætu til dæmis leitt til við­skipta­stríðs sem valdi lækkun á eigna- og hluta­bréfa­verði í heim­inum. Einnig sé mögu­legt að skyndi­leg hækkun verð­bólgu kalli á enn meiri vaxta­hækk­anir, en slíkt myndi lækka eigna­verð og auka skulda­byrði.

Standa verr að vígi

Fari svo að skyndi­lega þrengi að í heims­hag­kerf­inu segir Gylfi aukna skuld­setn­ingu og lágt vaxta­stig gera ríkj­unum erf­ið­ara fyrir að bregð­ast við heldur en þau gerðu fyrir ára­tug síðan. Ekki bæti úr skák að Banda­ríkja­for­seti hafi lækkað skatta í miðri upp­sveiflu og gert lítið úr hvers kyns alþjóð­legu sam­starfi. Þó bætir Gylfi við að Ísland sé betur í stakk búið til að bregð­ast við áföllum þessi miss­erin, en það sé vegna hárra vaxta, lágra opin­berra skulda og þess að hækkun hús­næð­is­verðs sé ekki drifin áfram af vexti útlána.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjármálakerfi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár