Segir misræmi í öryggisvitund almennings og stjórnvalda

Aðjúnkt í stjórn­mála­fræði telur örygg­is­stefnu stjórn­valda ekki sam­rým­ast almennu við­horfi Íslend­inga gagn­vart örygg­is­málum.

Könnunin sem Silja Bára fjallar um var framkvæmd af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands
Könnunin sem Silja Bára fjallar um var fram­kvæmd af Félags­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands Mynd: Birgir Þór Harðarson

Stjórn­völd hafa til­hneig­ingu til að for­gangs­raða hern­að­ar­legu öryggi, þrátt fyrir að íslenskur almen­inngur telur helstu ógnir við öryggi sitt steðja að á öðrum sviðum. Þetta segir Silja Bára Ómars­dóttir aðjúnkt í stjórn­mála­fræði í nýrri grein sinni.

Í grein­inni, sem birt­ist í nýjasta tölu­blaði Stjórn­mála og stjórn­sýslu, er farið yfir nið­ur­stöður skoð­ana­könn­unar sem lögð var fyrir á vegum Félags­vís­inda­stofn­unnar Háskóla Íslands í lok árs 2016. Tæplega fimm þús­und manns svör­uðu könn­un­inni, en í henni voru 18 spurn­ingar sem sner­ust allar um utan­ríkis-og alþjóða­mál á ein­hvern hátt.

Umhverfis-og efnahagsmál algengasta ógnin

Skoð­ana­könn­unin fól meðal ann­ars í sér spurn­ingu um hver helsta ógn við­mæl­endur teldu að ríkið stæði frammi fyrir, en um 67% þeirra nefndu ýmist nátt­úru­ham­farir, umhverf­isvá eða óstöð­ug­leika í efna­hags­málum. Einungis 5,8% töldu hryðju­verk vera stærstu ógn­ina og 1,8% nefndu sömu­leiðis kjarn­orkuvá eða vopnuð átök.

Í grein­inni segir að þessi röðun bendi til þess að almenn­ingur telji umhverf­is­legt og félags­legt öryggi mik­il­væg­ara for­gangs­mál stjórn­valda en aðgerðir gegn hryðju­verka­hópum eða öðrum sem snúa að hern­að­ar­legu öryggi. Einnig bendir Silja Bára á að þrátt fyrir mikla fjölgun hryðju­verka­árása í nágranna­löndum og veru­lega umm­fjöllun um þau í fjöl­miðlum þá settu ein­ungis 31,6% svar­enda hryðju­verk í eitt af sínum fimm efstu sætum.

Í annarri spurn­ingu könn­un­ar­innar voru þáttak­endur beðnir um að velja eitt atriði sem þeir töldu helst tryggja öryggi rík­is­ins á alþjóða­vett­vangi. Þar var vin­sæl­asti val­kost­ur­inn sá að Ísland ættu að halda frið­sam­legum tengslum við nágranna­ríki sín (41%), en Atl­ants­hafs­banda­lags­að­ild (17%) og önnur vest­ræn sam­vinna (7%) skor­uðu lægra.

Í ljósi þess­ara nefnir Silja sam­þykkis Alþingis á örygg­is­stefnu fyrir Ísland í apríl 2016. Stefnan lagði áherslu á sam­starf ann­arra landa í varn­ar­málum, þrátt fyrir til­lögur þverpóli­tískrar þing­nefndar, um að meg­in­á­hersla ætti að vera á umhverf­isvá, nátt­úru­ham­farir og netógnir.

Líta til Noregs

Í sam­tali við Kjarnann telur Silja Bára orð­ræð­una í kringum nýlega stofnun þjóðar­ör­ygg­is­ráðs og vopna­burð lög­reglu auk hraðrar fram­kvæmdar þess­ara aðgerða vera hluti af þá örygg­i­s­væð­ingu á Íslandi sem er til þess gerð að vekja ákveð­inn ótta gegn vopn­uðum átökum.

Þá leggur Silja Bára einnig til aukna þátt­töku almenn­ings að stefnu­mótun í örygg­is­málum á Íslandi til að sporna við því mis­ræmi sem liggur milli íslenskra stjórn­valda og við­horfa almenn­ings. Í því sam­hengi nefnir hún Noreg sem dæmi, en þar er hefur þverpóli­tísk hug­veita fyrir varn­ar­mál verið stofnuð sem bæta á sam­skipti milli stjórn­valda og þjóðar í þeim efnum.

Silja Bára mun kynna grein sína í Háskóla Íslands seinna í dag, en fyr­ir­lestur hennar verður liður af útgáfu­hófi tíma­rits Stjórn­mála og stjórn­sýslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár