Persónuvernd krefst úrbóta vegna Mentor

Per­sónu­vernd hefur gefið fimm grunn­skólum frest til að bæta úr öryggi við skrán­ingur við­kvæmra per­sónu­upp­lýs­inga um nem­endur í upp­lýs­inga­kerfið Mentor. Ellegar skoðar Per­sónu­vernd að stöðva frek­ari skrán­ingu per­sónu­upp­lýs­inga skól­anna í Mentor.

Per­sónu­vernd hefur krafið fimm grunn­skóla, sem álit stofn­un­ar­innar í svoköll­uðu Mentor-máli frá árinu 2015 tók til, um að ljúka þeim úrbótum sem til­greindar voru í álit­inu eigi síðar en 15. ágúst 2018. Verði ekki orðið við því mun Per­sónu­vernd taka til skoð­unar að stöðva alla frek­ari skrán­ingu per­sónu­upp­lýs­inga í vef­kerfið Mentor hjá skól­unum fimm. Þetta er meðal þess sem fram kemur í bréfi sem skól­unum var sent þann 4. júní síð­ast­lið­inn.

Í fyrr­nefndu áliti Per­sónu­verndar frá 2015, þar sem fjallað var um vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga í Mentor hjá fimm grunn­skólum sem valdir voru af handa­hófi, voru fyr­ir­mæli í fimm liðum lögð fyrir skól­ana með það fyrir augum að tryggja öryggi per­sónu­upp­lýs­inga sem skráðar væru í Mentor.

Skrá ekki viðkvæmar upplýsingar í Mentor án ráðstafana

Var þeim til­mælum meðal ann­ars beint til skól­anna að skrá ekki við­kvæmar per­sónu­upp­lýs­ingar í Mentor nema útbúið yrði sér­stakt umhverfi fyrir slíka skrán­ingu sem full­nægði kröfum Per­sónu­verndar. Auk þess var lagt fyrir skól­ana að senda Per­sónu­vernd lýs­ingu á því hvernig eft­ir­liti yrði háttað fram­vegis svo skrán­ingar í Mentor sam­rýmd­ust per­sónu­vernd­ar­lögum. Tæplega þrjú ár eru nú liðin frá því að álitið var birt.

Í bréf­unum var til­tekið sér­stak­lega hvaða fyr­ir­mælum hefði þegar verið farið að, og hvaða fyr­ir­mæli hefðu enn ekki verið upp­fyllt með full­nægj­andi hætti.

Gerðar eru ítar­legar athuga­semdir við nokkur atriði í þeim gögnum sem lögð hafa verið fram fyrir hönd grunn­skól­anna í mál­inu.

Er það nið­ur­staða Per­sónu­verndar að skól­arnir hafi ekki enn orðið við fyr­ir­mælum eft­ir­lits­stofn­un­ar­innar. Sem fyrr segir er skól­unum veittur frestur til 15. ágúst næst­kom­andi til að ljúka nauð­syn­legum úrbótum. Berist engin gögn innan frests­ins, eða ef fram­lögð gögn eru ófull­nægj­andi, mun Per­sónu­vernd taka til skoð­unar að stöðva frek­ari skrán­ingu per­sónu­upp­lýs­inga í Mentor hjá skól­unum fimm þar til fyr­ir­mæli Per­sónu­verndar verða upp­fyllt að fullu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár