Héraðsdómur Reykjavíkur staðfestir alvarleg brot Byko og hækkar sekt

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur stað­festi í dag að Byko hafi framið alvar­leg brot á sam­keppn­is­lögum og hækk­aði álagða sekt.

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur stað­festi í dag að Byko hafi framið alvar­leg brot á sam­keppn­is­lögum og hækk­aði álagða sekt í 400 millj­ónir króna. Áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála hafði talið 65 millj­óna króna sekt hæfi­lega. 

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu.

Jafn­framt kemur fram að aðdrag­andi máls­ins sé sá að í maí 2015 hafi Sam­keppn­is­eft­ir­litið kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Byko hafi brotið gegn sam­keppn­is­lögum og EES-samn­ingnum með umfangs­miklu ólög­mætu sam­ráði við gömlu Húsa­smiðj­una. Um hafi verið að ræða verð­sam­ráð á mik­il­vægum bygg­inga­vörum. Málið hafi haf­ist þegar Múrbúðin snéri sér til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og gerði grein fyrir til­raunum Byko og gömlu Húsa­smiðj­unnar til að fá Múr­búð­ina til að taka þátt í hinu ólög­mæta sam­ráði. Taldi Sam­keppn­is­eft­ir­litið að um alvar­leg brot væri að ræða og lagði 650 millj­óna króna sekt á Norvik, móð­ur­fé­lag Byko.

Norvik og Byko kærðu ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins til áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála. Í októ­ber 2015 komst nefndin að þeirri nið­ur­stöðu að Byko hefði tekið þátt í ólög­mætu verð­sam­ráði og brotið gegn sam­keppn­is­lögum. Hins vegar féllst nefndin ekki á að ákvæði EES-samn­ings­ins hefðu verið brotin. Einnig taldi nefndin að brot Byko hafi ekki verið jafn alvar­leg og Sam­keppn­is­eft­ir­litið lagði til grund­vallar. Taldi nefndin því hæfi­legt að lækka sekt Byko úr 650 í 65 millj­ónir króna.

Segir í til­kynn­ing­unni að sam­kvæmt sam­keppn­is­lögum sé Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu falið að meta hvort þeir almanna­hags­munir, sem fel­ast í virkri sam­keppni, kalli á að úrskurðir áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála séu bornir undir dóm­stóla. Jafn­framt sé Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu falið að beita sam­keppn­is­reglum EES-samn­ings­ins. Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafi því höfðað mál fyrir hér­aðs­dómi þar sem eft­ir­litið byggði á því að áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála hefði túlkað EES-samn­ing­inn með röngum hætti. Einnig hefði nefndin ekki lagt rétt mat á alvar­leika brota Byko og sekt nefnd­ar­innar gæti ekki tryggt full­nægj­andi varn­að­ar­á­hrif. Slík áhrif séu mik­il­væg til að stuðla að því að fyr­ir­tæki raski ekki sam­keppni, neyt­endum til tjóns. Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafi kraf­ist þess að sekt Byko yrði hækkuð.

„Með dómi sínum í dag féllst Hér­aðs­dómur Reykja­víkur á að brot Byko hefðu verið alvar­leg og hækk­aði sekt félags­ins í 400 mkr. Að mati hér­aðs­dóms geti það ekki „verið nokkrum vafa und­ir­orpið að um var að ræða sam­ráð í skiln­ingi sam­keppn­is­réttar.“ Með hátt­semi sinni hafi félögin haldið uppi vöru­verði og bætt fram­legð sína á kostnað við­skipta­vina. Í dómnum segir að sekt áfrýj­un­ar­nefndar hafi verið „of lág. Hér hefur helst þýð­ingu að um alvar­legt brot var að ræða á mark­aði milli mark­aðs­ráð­andi fyr­ir­tækja sem framin voru í þeim til­gangi að styrkja stöðu þeirra á kostnað neyt­enda. Var með því brotið gegn mik­il­vægum hags­munum þorra almenn­ings.“ Einnig féllst dóm­ur­inn á það að ákvæði EES-samn­ings­ins hefðu verið brotin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár