Áfrýjunarnefnd lækkar sekt BYKO úr 650 milljónum í 65 milljónir

Áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála hefur í dag til­kynnt um nið­ur­stöðu sína vegna sektar sem lögð hafði verið á Norvik hf., móð­ur­fé­lag BYKO, vegna meints sam­ráðs á bygg­inga­vöru­mark­aði. Nið­ur­staða áfrýj­un­ar­nefndar er sú að ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um 650 millj­óna króna sekt er ógilt en félag­inu gert að greiða tíu 65 millj­ónir króna í sekt­ar­greiðslu vegna brota gegn sam­keppn­is­lögum.

Stjórn BYKO telur nið­ur­stöð­una áfanga­sigur. „BYKO telur nið­ur­stöð­una við­ur­kenn­ingu á því að Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafi farið offari í þessu máli allt frá byrjun og mun á næstu dögum taka ákvörðun um með hvaða hætti verður brugð­ist við,“ segir í yfir­lýs­ingu frá stjórn BYKO.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið til­kynnti um sekt­ar­á­kvörðun sína þann 15. maí síð­ast­lið­inn. Í yfir­lýs­ingu frá stjórn­inni segir að að ítrasta réttar verði leitað fyrir dóm­stólum, endi telji stjórn BYKO að engin lög hafi verið brotin.

„Nið­ur­staða Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins var að mati for­svars­manna BYKO í beinni and­stöðu við úrskurð fjöl­skip­aðs Hér­aðs­dóms Reykja­ness á síð­ast­liðnu vori þar sem 11 af 12 sak­born­ingum í sama máli voru sýkn­aðir. Dómurinn taldi gögn máls­ins sýna það með óyggj­andi hætti að verð­sam­keppni á bygg­inga­vöru­mark­aðnum væri mikil. Orðrétt sagði í nið­ur­stöðum dóms­ins: „Benda öll þessi skila­boð til þess að hið gagn­stæða hafi verið, mikil og hörð sam­keppni, en ekki verð­sam­ráð“. Vandséð er hvernig hægt var að kom­ast að svo ólíkri nið­ur­stöðu í tveimur málum sem fjalla um sömu máls­at­vik, þ.e. ann­ars vegar í nið­ur­stöðu fjöl­skip­aðs Hér­aðs­dóms Reykja­ness og hins vegar í nið­ur­stöðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Að mati BYKO tekur Áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála undir með dóm­stólnum um að óeðli­lega hátt hafi verið reitt til höggs. BYKO hefur frá upp­hafi haldið fram sak­leysi sínu gagn­vart hvers kyns ásök­unum um ólög­mætt verð­sam­ráð. Enda þótt Áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að sekt­ar­fjár­hæðin skuli ein­ungis vera 10% af ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins er ljóst að nefndin hefur að engu fram­an­greinda nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms um að ekki hafi verið um verð­sam­ráð að ræða. BYKO lítur á úrskurð áfrýj­un­ar­nefndar sem áfanga­sigur og telur sig vera sak­laust af hvers kyns ólög­mætu verð­sam­ráði. BYKO mun leita allra leiða til þess að fá þá ein­örðu afstöðu sína stað­festa,“ segir í til­kynn­ingu stjórnar BYKO.

Fréttin verður upp­færð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár