Lífeyrissjóðirnir eiga mikið undir Marriott

Arion banki og íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eiga mikið undir í bygg­ingu glæsi­hót­els við hlið Hörpu. Allt stefnir í að fram­kvæmdir við það fari millj­arða fram úr áætlun.

Verið er að byggja Marriott hótel við hlið Hörpu.
Verið er að byggja Marriott hótel við hlið Hörpu. Mynd: EPA

Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eiga, í félagi við aðra íslenska fjár­festa, tæp­lega 40 pró­sent hlut í félag­inu Cambridge Plaza Hotel Company ehf. sem á bygg­ing­una sem á að hýsa vænt­an­legt Marriott Edition hót­elið sem verið er að byggja við hlið Hörpu. Morg­un­blaðið greindi frá því í gær að allt stefni í að fram­kvæmdir við bygg­ingu hót­els­ins muni fara millj­arða króna fram úr áætl­unum.

Blaðið greinir frá því í dag að umrætt félag, Cambridge Plaza Hotel Company ehf. sé hins vegar í meiri­hluta eigu hol­lenska félags­ins Cambridge Nether­lands Investors B.V. Eigendur þess eru banda­ríska fast­eigna­þró­un­ar­fé­lagið Carpenter & Company og íslenski fjár­festir­inn Eggert Þór Dag­bjarts­son. Eign­ar­hlutur líf­eyr­is­sjóð­anna er vistaður í félag­inu Mandólín ehf. Stærsti eig­andi þess er SÍA III slhf., félag sem sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækið Stefnir, í rekstri Arion banka, rekur.

Stefnir er rekið af Arion banka sem seldi bygg­ing­ar­rétt­inn undir Marriott hót­elið og er auk þess stærsti lán­veit­andi verk­efn­is­ins. Morg­un­blaðið segir frá því í dag að Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn og Festa líf­eyr­is­sjóður séu einnig beinir eig­endur að Mandólín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár