Þorsteinn: Yfirlýsing ráðherra með ólíkindum

Fyrr­ver­andi félags­mála­ráð­herra segir að ómögu­legt sé að meta málin er tengj­ast fyrr­ver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu nema með því að birta rann­sókn ráðu­neyt­is­ins.

„Það verður að segj­ast eins og er að þessi yfir­lýs­ing ráð­herra er með ólík­indum.“

Þetta segir Þor­steinn Víglunds­son, þing­maður Við­reisnar og fyrr­ver­andi félags­mála­ráð­herra, á Facebook síðu sinni.

Það vitnar hann til yfir­lýs­ingar Ásmundar Einars Daða­sonar, núver­andi félags­málarað­herra, þess efnis að rann­sókn ráðu­neyt­is­ins, á málum er tengj­ast kvört­unum Barna­verndar Reykja­víkur og Barna­verndar Hafn­ar­fjarðar, á afskiptum Braga Guð­brands­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu, sé ekki hafin yfir gagn­rýni.

„Ráðu­neytið fer með eft­ir­lits­skyldu gagn­vart Barna­vernd­ar­stofu og er því hinn rétti aðili til að sinna þess­ari rann­sókn. Rann­sóknin var sett af stað í ráð­herra­tíð minni eftir að form­legar kvart­anir höfðu borist frá Barna­vernd­ar­nefnd Reykja­víkur og Barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar. Vandinn er hins vegar sá að nið­ur­staða þeirrar rann­sóknar sem fór fram hefur aldrei verið birt. Það var vænt­an­lega ákvörðun ráð­herra að gera það ekki. Án birt­ingar á nið­ur­stöðu er engin leið að taka afstöðu til rann­sókn­ar­innar. Það er ótrú­legt að ráð­herra kasti með þessum hætti rýrð á vinnu eigin ráðu­neytis án þess að sú nið­ur­staða hafi verið birt,“ segir Þor­steinn.

Enn fremur segir hann, að það sé svo sjálf­stætt mál hvað ráð­herra geri með þá nið­ur­stöðu, með ann­ars að styðja við fram­boð Braga á alþjóða­vett­vangi, en eins og kunn­ugt er þá er Bragi í fram­boði fyrir Íslands hönd til setu í Barna­rétt­ar­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna. Í henni eiga sæti 18 full­trúar sem hafa það hlut­verk að hafa eft­ir­litið með Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna. „Það er engin leið að leggja mat á þá ákvörðun án þess að hafa nið­ur­stöðu ráðu­neyt­is­ins í mál­inu við hend­ina. Það er hins vegar enn og aftur nokkuð sem heyrir undir ábyrgð ráð­herra en ekki ráðu­neyt­is­ins. Það er ekki sér­lega stór­mann­legt af ráð­herra að varpa ábyrgð á eigin gjörðum yfir á emb­ætt­is­menn ráðu­neyt­is­ins með þessum hætti,“ segir Þor­steinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár