Hlaðvörp Kjarnans í Strætó-appinu

Bílveiki og vilj­inn til að ýta undir hlað­varps­menn­ingu á Íslandi varð kveikjan að því að hlað­vörp eru nú aðgengi­leg í einu vin­sælasta appi lands­ins, Strætó-app­inu.

Umsjónarmenn hlaðvarpanna sem nálgast má í Strætó-appinu.
Umsjón­ar­menn hlað­varpanna sem nálg­ast má í Strætó-app­inu. Mynd: Strætó.

Strætó hefur bætt þeim eig­in­leika við Strætó-appið, sem um 96.500 manns hafa sótt, að hægt er að hlusta á hlað­vörp í því. Á meðal þeirra þeirra hlað­varpa sem eru aðgengi­leg í nýj­ustu upp­færslu apps­ins eru öll hlað­vörp Kjarnans. Auk þess er þar hægt að hlusta á hlað­vörp frá Alvarp­inu, Fótbolta.net, Fílalag og Í frjettum er þetta elzt.

Sem stendur býður hlað­varp Kjarnans upp á tólf mis­mun­andi þætti. Þeir eru Hismið, Tækni­varpið, Glim­merkok­teill­inn, Hefn­end­urnir, Aðförin, Klikkið, Samtal við sam­fé­lagið, Kvikan, Sparkvarpið, Stóru málin, Þetta er merki­legt og Fex-hatt­ur­inn.

Ótrúleg flóra af góðum íslenskum hlaðvörpum

Guð­mundur Heiðar Helgason, mark­aðs- og upp­lýs­inga­full­trúi Strætó, segir að hug­myndin af því að gera hlað­vörp aðgengi­leg í Strætó-app­inu hafi meðal ann­ars sprottið upp frá því að hann hafi langað til að ýta undir hlað­varps­menn­ingu á Íslandi. „Ég stund­aði nám út í London í eitt ár og not­aði strætó eða lest­ina á hverjum degi. Ég var alltaf með hlað­vörp í eyr­unum til þess að stytta mér stund­irnar. Ég get ekki lesið eða verið mikið í sím­anum á ferð þar sem ég verð hræði­lega bíl­veikur, þannig að hafa afþr­ey­ingu í eyr­unum var full­komin lausn. Það var mikil hlað­varps­menn­ing úti og þá sér­stak­lega í kringum almenn­ings­sam­göngur. Mig lang­aði til þess að ýta frekar undir þessa menn­ingu hérna heima og þetta verk­efni er alveg í takt við þau mark­mið sem ég vinn eftir til að byggja upp ímynd Strætó. Svo má ekki gleyma að það er til ótrú­leg flóra af góðum íslenskum hlað­vörpum og okkur lang­aði að vekja frek­ari athygli á þeim meðal not­enda Strætó.“

Guð­mundur segir að honum sjálfum þyki best að hlusta á hlað­vörp þegar hann er einn að ferð­ast. „Hvort sem að ég sé að fara í flug eða í strætó þá verður ferðin alltaf aðeins þægi­legri með gott hlað­varp í eyr­unum. Það sem ég tel vera öðru­vísi við hlað­vörp, í sam­an­burði við t.d. tón­list, er að fólk sest niður og hlustar að ein­beit­ingu á hlað­vörp á meðan tón­list verður oft að hálf­gerðum bak­grunns­há­vaða.“

Hlaðvarpssenan mun bara stækka

Domino´s Pizza á Íslandi hefur verið frum­kvöð­ull því að aug­lýsa í hlað­vörpum Kjarnans. Anna Fríða Gísla­dóttir, mark­aðs­stjóri Domino´s, segir að fyr­ir­tæk­inu hafi ein­fald­lega þótt þetta nýr og spenn­andi vett­vangur til þess að prófa að aug­lýsa vörur þess. „Hlað­varps­senan á Íslandi er í stöðugri þróun og ég hef á til­finn­ing­unni að hún muni bara stækka, bæði hvað hlust­endur og þætti varðar.“

Aðspurð um hver upp­á­halds hlað­vörp hennar á Kjarn­anum séu seg­ist hún aldrei missa af sínum bestu mönnum í Hisminu. „Svo hlusta ég reglu­lega á Tækni­varpið. Glim­merkok­teill­inn er líka að koma skemmti­lega á óvart en síðan fer það eig­in­lega eftir efnum hvað ég hlusta á. Ég er í raun að segja að ég hlusta á þau öll.“

Anna Fríða segir að hún trúi því að sífellt fleiri séu að átta sig á því hvað hlað­vörp geti verið skemmti­leg og fræð­andi. Þau séu lika meiri flötur fyrir sam­töl milli ein­stak­linga frekar en t.d. það að hlusta á tón­list. „Fyrir mig per­sónu­lega hvetja hlað­vörp mig enn frekar að vera aktív en ég fer reglu­lega í göngutúr eða þríf heim­ilið hátt og lágt þegar ég sé að það er komið nýtt og spenn­andi hlað­varp inn. Það getur ekki verið annað en jákvætt. Þau erlendu hlað­vörp sem ég hlusta á leggja mikið upp úr fram­leiðslu og í raun er oft eins og maður sé að hlusta á heim­ild­ar­mynd frekar en spjall. Mér finnst hins vegar gaman að hlusta á óform­leg spjöll en held að meira unnin hlað­vörp muni koma inn í auknum mæli hér­lendis.“

Stjórn­endur Sparkvarps­ins, hlað­varps Kjarnans um knatt­spyrnu, tóku upp nýjasta þátt sinn um borð í Strætó þar sem þeir fóru meðal ann­ars yfir hvernig hinn jap­anski popp­kúltur bjó til hinn full­komna leik­mann. Hlaðvörp Kjarnans má einnig nálg­ast hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár