Gera ráð fyrir „mjúkri lendingu“

Stjórn­völd gera ráð fyrir að það muni hægja nokkuð á hag­vexti á næstu árum eftir mik­inn upp­gang.

Eftir mik­inn upp­gangs­tíma í íslensku hag­kerfi, allt frá árinu 2011, þá er gert ráð fyrir að það muni hægja nokkuð á hag­vexti á næstu árum og að lend­ing hag­kerf­is­ins verið „mjúk“ eins og segir í sam­an­tekt stjórn­valda, þar sem fjár­mála­á­ætlun fyrir árin 2018 til 2023 er kynnt.

Áætlun stjórn­valda gerir ráð fyrir að skuldir hins opin­bera haldi áfram að lækka hratt, sem hlut­fall af árlegri lands­fram­leiðslu, og verði komnar undir 30 pró­sent lög­bundið hámark, strax á næsta ári. Í lok áætl­un­ar­tím­ans, árið 2023, eiga skuld­irnar að vera í kringum 20 pró­sent af árlegri lands­fram­leiðslu.

Á und­an­förnum árum hafa stoðir íslenska hag­kerf­is­ins styrkst hratt og mikið, sam­hliða end­ur­skipu­lagn­ingu á fjár­mála­kerf­inu og ævin­týra­legum upp­gangi íslenskrar ferða­þjón­ustu. Á síð­asta ári komu um 2,3 millj­ónir ferða­manna til lands­ins en árið 2010 voru þeir um 450 þús­und. Á árunum 2008 til 2016 hafa komið fleiri ferða­menn til lands­ins en komu í sex­tíu ár þar á undan.

Þessi upp­gangur ferða­þjón­ust­unnar hefur skilað sér í auknum útflutn­ings­tekjum þjóð­ar­búss­ins, og hefur stuðlað að sterk­ari gengi krón­unnar gagn­vart erlendum myntum.

Í fjár­mála­á­ætl­un­inni, sem byggir á spá um efna­hags­þróun á Íslandi, er ráð fyrir því gert að það muni hægja umtals­vert á hag­vext­inum, eins og áður segir, en að atvinnu­leysi verði áfram lítið sem ekk­ert, en það mælist nú um 3 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár