Innviðafjárfestingar í fyrirrúmi í nýrri fjármálaáætlun

Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hyggst auka fjár­fest­ingar í innviðum sam­fé­lags­ins. Lagt verður upp með ábyrga hag­stjórn, segja ráða­menn lands­ins.

Inn­viða­fjár­fest­ingar verða í for­grunni í rík­is­fjár­mál­unum, horft til næstu ára. Ný fjár­mála­á­ætlun, fyrir árin 2018 til 2023, hefur verið kynnt, og kemur fram í henni að fjár­fest­ingar muni vaxa umtals­vert á næsta ári, eða um 13 millj­arða króna og ná hámarki á árinu 2021. Alls er gert ráð fyrir að fjár­fest­ingar á árunum 2019 til 2023 nemi 338 millj­örðum króna.

„Umfangs­mikil fjár­fest­ing í sam­göngu- og fjar­skipta­málum verður meðal ann­ars fjár­mögnuð með arð­greiðslum frá fjár­mála­fyr­ir­tækjum í eigu rík­is­ins. Alls er reiknað með að fram­lög nemi 124 ma.kr. á tíma­bil­inu og að frá árinu 2019 bæt­ist við sér­stök árleg fram­lög til þriggja ára upp á 5,5 ma.kr. Gert ráð fyrir að ljós­leið­ara­væð­ingu lands­ins ljúki árið 2020,“ segir meðal ann­ars í sam­an­tekt úr áætl­un­inni, en for­menn stjórn­ar­flokk­anna, Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu­ráð­herra, kynntu áætl­un­inni í dag.

Alls er gert ráð fyrir tæp­lega 75 ma.kr. í fjár­fest­ingu í sjúkra­húss­þjón­ustu og fer mest til bygg­ingar nýs Land­spít­ala við Hring­braut. Fram­kvæmdir við bygg­ingu nýs með­ferð­ar­kjarna hefj­ast á þessu ári en meg­in­þungi fram­kvæmda verður á árunum 2020-2023.

Í áætl­un­inni er einnig gert ráð fyrir að ráð­ist verði í upp­bygg­ingu á innviðum og önnur verk­efni á fjöl­sóttum stöðum í nátt­úru Íslands og öðrum ferða­manna­stöðum.

Skattalækkanir

Rík­is­stjórnin stefnir á að lækka skatta á næstu árum, og verður meðal ann­ars banka­skattur lækk­aður. Hann fer úr 0,376 pró­sent í 0,165 pró­sent, en for­svars­menn allra fjár­mála­fyr­ir­tækja lands­ins hafa gagn­rýnt skatt­inn lengi.

Áfram er stefnt að því að draga úr álögum, gera skatt­heimtu sann­gjarn­ari og tryggja skil­virkt skatt­eft­ir­lit. „Rík­is­stjórnin mun eiga sam­tal við aðila vinnu­mark­að­ar­ins um sam­spil tekju­skatts og bóta­kerfa á árinu, en í áætl­un­inni er gengið út frá að tekju­skattur lækki í neðra skatt­þrepi og geti lækkað um 1 pró­sentu­stig í áföngum á áætl­un­ar­tím­anum,“ segir í sam­an­tekt­inni.

Um leið er stefnt að heild­ar­end­ur­skoðun tekju­skatts ein­stak­linga, sam­hliða end­ur­skoðun bóta­kerfa. Þar er horft til stuðn­ings hins opin­bera við barna­fjöl­skyldur og vegna hús­næðis­kostn­aðar, með „mark­viss­ari fjár­hags­legum stuðn­ingi við efna­minni heim­ili.“

Tryggingargjald lækkar

Gert er ráð fyrir lækkun trygg­inga­gjalds um 0,25% á árinu 2019, úr 6,85% í 6,6%. Frekari lækkun ræðst m.a. af nið­ur­stöðu sam­ráðs við aðila vinnu­mark­að­ar­ins um útfærslu rétt­inda, sem fjár­mögnuð eru með trygg­inga­gjaldi, og afkomu rík­is­sjóðs. Virð­is­auka­skattur á bækur verður afnum­inn í byrjun árs 2019 og ári síðar verða höf­unda­rétt­ar­greiðslur, sem við­ur­kennd rétt­hafa­sam­tök inn­heimta, skatt­lagðar sem eign en ekki tekjur.

Skattaí­vilnun vegna þró­un­ar­kostn­aðar verður aukin á árinu 2019 og stefnt að afnámi þaks­ins síðar á tíma­bil­inu. Skatt­stofn fjár­magnstekju­skatts verður end­ur­skoð­aður með það að mark­miði að skatt­leggja raun­á­vöxtun, en áhrif þeirra breyt­inga koma fram árið 2020.

Í upp­hafi árs var kolefn­is­gjald á elds­neyti hækkað um 50% og er fyr­ir­hugað að hækka gjaldið um 10% árið 2019 og aftur 2020. Skoðaðar verða leiðir til gjald­töku af ferða­mönnum. Miðað er við að gjaldið verði lagt á frá og með árinu 2020.

„Í fjár­mála­á­ætlun er gert ráð fyrir áfram­hald­andi afgangi af rekstri ríkis og sveit­ar­fé­laga öll ár áætl­un­ar­innar í sam­ræmi við þá fjár­mála­stefnu sem lögð var fram sam­hliða fjár­lögum árs­ins 2018 og Alþingi hefur nú sam­þykkt. Góður árangur hefur náðst við að lækka skuldir rík­is­sjóðs frá því þær náðu hámarki árið 2012. Stefnt er að því að heild­ar­skuldir hins opin­bera sam­kvæmt við­miðum laga um opin­ber fjár­mál fari undir lög­boðið 30% við­mið í árs­lok 2019, eða ári fyrr en fjár­mála­stefnan gerir ráð fyrir og verði um 22% í árs­lok 2023,“ segir í sam­an­tekt­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár