Hagsmunasamtök sameinuð í persónuverndarlaga gagnrýni

Fjöldi sam­taka sem sinna hags­muna­gæslu fyrir atvinnu­stéttir gera sam­eig­in­lega alvar­legar athuga­semdir við frum­varp til nýrra per­sónu­vernd­ar­laga.

Samtök atvinnu­lífs­ins, Samtök iðn­að­ar­ins, Samtök ferða­þjón­ustunna, Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja, Samtök versl­unar og þjón­ustu, Samorka, Semtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi og Við­skipta­ráð Íslands gera sam­eig­in­lega alvar­legar athuga­semdir við frum­varp til nýrra laga um per­sónu­vernd og vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga.

Í umsögn sam­tak­anna kemur fram að gagn­rýnd sé sú leið sem farin er við inn­leið­ingu á reglu­gerð Evr­ópu­sam­bands­ins um per­sónu­vernd. „Lagt er til að reglu­gerðin verði lög­fest, valdar greinar úr henni umrit­aðar og að hún eigi að ganga framar íslenskum lögum. Á sama tíma verði vikið frá ýmsum ákvæðum reglu­gerð­ar­innar með lögum.“

Samtökin telja að þetta muni valda mik­illi réttaró­vissu og mis­skiln­ingi í fram­kvæmd og efast um að þessi inn­leið­ing­ar­að­ferð stand­ist kröfur íslenskar stjórn­skip­unar og 7. gr. EES samn­ings­ins. „Samtökin leggja til að farin verði sama leið og á hinum Norð­ur­lönd­unum, þ.e. að reglu­gerðin verði inn­leidd með til­vís­un­ar­að­ferð og lög­festar verði svo sér­stak­lega þær útfærslur, íviln­andi sér­reglur og tak­mark­anir sem settar verða.“

Þá lýsa sam­tökin yfir áhyggjum sínum af því að frum­varpið verði ekki orðið að lögum þann 25. maí líkt og hjá öðrum löndum EES-svæð­is­ins. Ef sú verður raunin mun Ísland flokk­ast sem svo­kallað þriðja ríki. Það gæti haft í för með sér umtals­vert fjár­hags­legt tjón fyrir hið opin­bera, atvinnu­lífið og við­semj­endur þeirra ásamt því að veikja sam­keppn­is­hæfni íslenskra fyr­ir­tækja í alþjóð­legri starf­semi.

Samtökin lýsa yfir and­stöðu við að í frum­varps­drög­unum sé í mörgum til­vikum gengið lengra í inn­leið­ingu en þörf er á með setn­ingu íþyngj­andi sér­reglna. Í því sam­bandi gagn­rýna sam­tökin meðal ann­ars að lagt sé til að fyr­ir­tæki þurfi, ólíkt sam­keppn­is­löndum sínum, að standa undir kostn­aði við eft­ir­lit.

Að sama skapi er lagt til að það svig­rúm sem reglu­gerðin heim­ilar til setn­ingar íviln­andi und­an­þágu­heim­ilda fyrir atvinnu­lífið verði lítið sem ekk­ert nýtt. Þannig er t.d. lagt til að vinnu­gögn og önnur und­ir­bún­ings­gögn verði ekki und­an­þegin upp­lýs­inga­rétt­inum í til­viki fyr­ir­tækja, ólíkt því sem er í núver­andi lögum og á hinum Norð­ur­lönd­unum. Ef af verður segja sam­tökin afleið­ing­una þá að íslensk fyr­ir­tæki muni búa við meira íþyngj­andi reglu­verk en sam­keppn­is­að­ilar þeirra í öðrum ríkjum.

Að lokum benda sam­tökin á að í ljósi umfangs máls­ins og skamms tíma­frests er afar brýnt að Per­sónu­vernd setji fræðslu- og leið­bein­ing­ar­hlut­verk sitt í for­grunn og sýni hóf­semd í beit­ingu sekta á næstu miss­erum. Alltof stuttur tími er þar til reglu­verkið á að taka gildi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár