Virði eigna Heimavalla yfir 50 milljarðar og eigið féð 17,6 milljarðar

Leigu­fé­lagið Heima­vellir hefur vaxið hratt á síð­ustu árum.

Leigu­fé­lagið Heima­vellir, sem er á leið á skráðan markað mán­að­ar­mótin mars/apríl, var með eignir upp á 53,6 millj­arða í lok árs í fyrra og var aukn­ingin milli ára 12,9 millj­arðar króna. Rekstr­ar­hagn­aður nam 2,7 millj­örðum en var 2,2 millj­arðar árið 2016.

Leigu­tekjur á árinu 2017 voru rúm­lega þrír millj­arðar, sem er tvö­földun frá árinu 2016. Mats­breyt­ing á virði eigna, meðal ann­ars vegna hækk­andi fast­eigna­mats, nam 3,8 millj­örðum króna, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá félag­inu.

Í árs­lok í fyrra átti félagið rúm­lega tvö þús­und íbúðir, en það hefur tryggt sér kaup á 340 nýjum íbúðum á þessu ári.

Vaxta­ber­andi skuldir félags­ins eru tæp­lega 35 millj­arðar króna og eigið fé þess 17,6 millj­arðar. Eig­in­fjár­hlut­fallið er 31,4 pró­sent.

Guð­brandur Sig­urðs­son, for­stjóri Heima­valla, segir í til­kynn­ingu að fjár­hagur félags­ins sé sterkur. „Ég er sáttur við rekstr­ar­nið­ur­stöðu félags­ins á árinu 2017. Félagið hefur vaxið hratt og tekið yfir stór og krefj­andi leigu­söfn sem hefur gengið vel að sam­þætta annarri starf­semi félags­ins. Rekst­ur­inn styrkt­ist veru­lega á síð­asta ári sem sést best á því að mán­að­ar­leg velta hækk­aði úr 230 millj­ónum króna á fyrsta árs­fjórð­ungi 2017 í 290 millj­ónir króna á síð­asta árs­fjórð­ungi árs­ins. Þessi veltu­aukn­ing skil­aði sér í bættum rekstri og afkomu. Við teljum okkur í góðri stöðu fyrir fyr­ir­hug­aða skrán­ingu félags­ins í Kauphöll. Við horfum bjart­sýn fram á veg­inn. Það er mik­il­vægt að geta boðið nýjar lausnir og val­kosti eins og staðan er á hús­næð­is­mark­aði í dag. Við erum mark­visst að byggja upp leigu­markað þar sem fólk getur reitt sig á örugga lang­tíma­leigu eins og þekk­ist í nágranna­löndum okkar. Þannig viljum við stuðla að fjöl­breytt­ari og stöðugri hús­næð­is­mark­aði á Íslandi. Áherslur félags­ins verða þar sem þörfin er mest, þar á meðal íbúðir fyrir eldri borg­ara, en við erum einnig að skoða leiðir til að koma á markað litlum hag­kvæmum leigu­í­búðum sem mikil þörf er fyrir um þessar mundir,“ segir Guð­brandur.

Hluti af þeim 340 íbúðum sem koma til afhend­ingar hjá Heima­völlum á þessu og næsta ári eru sér­hann­aðar fyrir eldri borg­ara, segir í til­kynn­ing­unni. „Þetta er nýj­ung hjá Heima­völlum til að bregð­ast við þörf á fjöl­breytt­ari úrræðum í hús­næð­is­málum fyrir þennan ald­urs­hóp,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Annars vegar er um að ræða 58 íbúðir í tveimur fjöl­býl­is­húsum við Boðaþing í Kópavogi, í nágrenni við þjón­ustu fyrir eldri borg­ara á vegum Hrafn­istu og Kópa­vogs­bæjar. Hins vegar er um að ræða átján íbúða fjöl­býl­is­hús fyrir eldri borg­ara við Jað­ar­leiti, á nýjum bygg­ing­ar­reit sunnan við Útvarps­húsið í Efsta­leiti.

Þá hafa Heima­vellir fjár­fest í 164 íbúðum í nýju hverfi við Hlíð­ar­enda og kemur félagið þar til móts við stóran hóp fólks sem hefur áhuga á að kom­ast í öruggt leigu­hús­næði mið­svæðis í Reykja­vík. Gert er ráð fyrir að íbúð­irnar verði til­búnar til afhend­ingar á árinu 2019. Alls verða um sex hund­ruð íbúðir á svæð­inu og er mark­mið skipu­lags­ins „að skapa hverfi með borg­ar­brag, með fjöl­breytni í húsa­gerð, stórum sam­eig­in­legum inn­görðum og iðandi mann­lífi,“ að því er segir í til­kynn­ingu.

Einnig eru að koma til afhend­ingar 47 íbúðir við Eini­velli í Hafn­ar­firði. Um er að ræða góðar fjöl­skyldu­í­búðir í barn­vænu og vin­sælu hverfi. Þá verður fram­hald á verk­efni sem hófst í fyrra að breyta setu­stofum í fast­eignum Heima­valla á Ásbrú í stúd­íó­í­búðir. Í fyrra var 51 íbúð stand­sett en gert er ráð fyrir að þetta verk­efni muni skila félag­inu 36 nýjum stúd­íó­í­búðum til við­bótar næsta sumar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár