Gott uppgjör hjá Marel - 3,6 milljarðar í arð til hluthafa

Starfs­menn Marel eru nú 5.400 á heims­vísu. Stefna hefur verið sam­þykkt um að vaxa um að með­al­tali 12 pró­sent á ári, næsta ára­tug­inn.

Stjórn Marel leggur til að hlut­hafar fái greiddan arð fyrir rekstr­ar­árið 2017 sem nemur 4,19 evru sentum á hlut sem nemur um 30% af hagn­aði rekstr­ar­árs­ins 2017 miðað við útistand­andi hluti í árs­lok. Jafn­framt hefur stjórn Marel veitt stjórn­endum félags­ins heim­ild til að kaupa eigin bréf félags­ins fyrir allt að nafn­virði 20 milljón hluta, að því er segir í til­kynn­ingu frá félag­inu til kaup­hallar. 

Óhætt er að segja að árið 2017, þegar Marel fagn­aði 25 fimm ára afmæli sem skráð félag, hafi verið gott, en félagið hagn­að­ist um 97 millj­ónir evra í fyrra, eða sem nemur um 12,1 millj­arði króna. Arð­greiðslan nemur um 3,6 millj­örðum króna.

Árni Oddur Þórð­ar­son, for­stjóri félags­ins, fagnar góðu gengi í yfir­lýs­ingu. „Fjórði árs­hluti var góður endir á sterku rekstr­ar­ári. Pantanir hækk­uðu um 13% á milli ára og námu 1.144 mill­ljónum evra yfir árið. Okkar starf snýr að því að umbylta mat­væla­fram­leiðslu. Síðustu ár hefur Marel einnig tekið miklum fram­förum. Við höfum for­gangs­raðað fjár­fest­ingum og bætt ferla til að tryggja við­skipta­vinum okkar hágæða heild­ar­lausnir á réttum tíma,“ segir Árni Oddur.

Til að mæta miklum vexti í pöntum hefur félagið fjölgað fólki, en 5.400 starfs­menn eru nú hjá félag­inu á heims­vísu, og starfs­stöðv­arnar í 30 löndum. „Samhentu starfs­fólki okkar tókst að skila 295 millj­ónum evra í tekjur á fjórða árs­fjórð­ungi 2017, sem er nýtt met og aukn­ing um 18% miðað við sama tíma­bil í fyrra. Pantanir og tekjur hafa vaxið hraðar en rekstr­ar­kostn­aður sem skilar félag­inu góðri rekstr­ar­nið­ur­stöðu. Heild­ar­tekjur Marel árið 2017 námu yfir einum millj­arði evra og 15% í EBIT. Í ljósi góðrar rekstr­ar­nið­ur­stöðu og sterkrar pant­ana­bókar, gerir félagið ráð fyrir góðum innri vexti árið 2018. Nýsköpun og mark­aðs­sókn styður við áfram­hald­andi innri vöxt og verð­mæta­sköpun. Félagið hyggst vaxa enn frekar með yfir­tökum og öfl­ugu sam­starfi við leið­andi fram­leiðslu- og tækni­fyr­ir­tæki. Í sam­vinnu við við­skipta­vini erum við að umbylta mat­væla­vinnslu á heims­vísu.“

Marel, sem er nú metið á 236 millj­arða króna, stefnir að tólf pró­sent með­al­vexti árlega yfir tíma­bilið 2017-2026 sem byggir á öfl­ugri mark­aðs­sókn og nýsköpun, sam­starfi við lyk­il­að­ila og yfir­tökum á fyr­ir­tækjum, eins og segir í til­kynn­ingu frá félag­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár